„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hvernig skal viðhalda blessuðu jólatrénu

Hvernig skal viðhalda blessuðu jólatrénu
Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Margir kjósa að hafa lif­andi barr­tré í stof­unni yfir hátíð­irnar, greni­teg­undir eða furu, en það er afar mik­il­vægt að umhirða og með­ferð trjánna sé rétt svo þau lifi sem lengst og felli ekki barrið áður en jólin eru yfir­staðin.

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Í ljósi umræðu um umhverf­is­mál er nær­tækt að hvetja fólk til þess að kaupa íslensk tré. Þau eru höggvin um miðjan nóv­em­ber og fram í des­em­ber og sum­arið áður en þegar eru höggvin fá þau áburð­ar­skammt sem gerir þau sér­stak­lega barr­heldin og gefur það þeim einnig fal­legan grænan lit.

Fura. Mynd / Hallur Karlsson

Stafa­fura er sér­lega heppi­legt jóla­tré en hún vex um allt land og getur dafnað vel í rýrum jarð­vegi og náð allt að 30 metra hæð. Stefna skóg­rækt­enda á Íslandi er að eiga að minnsta kosti um helm­ings­mark­aðs­hlut­deild í sölu jólatrjáa eftir 20 ár og því til­valið að styrkja það góða fram­tak.

Hér koma nokkur ráð sem gott er að fara eftir til þess að jóla­tréð hald­ist fal­legt sem allra lengst.

  1. Algengt er að trén séu geymd úti þar til þau eru tekin inn og skreytt. Best er að láta tréð standa upp­rétt á meðan það er úti við, sé þess kostur.
  2. Afar mik­il­vægt er að taka tréð inn sól­ar­hring áður en til stendur að skreyta það en aldrei má taka tré beint inn í stofu­hita úr miklu frosti. Ef frost er úti er mik­il­vægt að leyfa trénu að þiðna hægt og rólega eftir að það er tekið inn. Best er að taka tréð inn í kalda geymslu eða þvotta­hús þar sem raki er til staðar. Sé þess ekki kostur er hægt að láta það standa í köldu vatni í baðk­ari og leyfa því að þiðna þar. Við snöggar hita­breyt­ingar verður tréð fyrir áfalli og getur því misst barrið fyrr en ella.
  3. Þegar tréð hefur jafnað sig er gott að snyrta fót­inn. Það er alveg óhætt að snyrta og fjar­lægja óþarfa­greinar við stofn­inn. Gott er að saga 3-5 cm af stofn­inum til þess að opna fyrir æðarnar og tálga börk­inn neðst af stofn­inum, eða um það bil 10 cm.
  4. Gott er að hella sjóð­andi vatn í fötu og setja stofn­inn ofan í vatnið í um það bil 10 mín­útur. Heita vatnið opnar vel æðar trés­ins og auð­veldar því að draga til sín vatn.
  5. Að þessu loknu skal setja tréð strax í vatns­fót og gæta þarf að því að fót­ur­inn tæm­ist aldrei. Athuga skal að tréð drekkur mikið fyrstu dag­ana og því nauð­syn­legt að fylgj­ast vel með. Tæmist fót­ur­inn er hætta á að loft­bólur kom­ist í vökva­æðar stofns­ins og tréð dáið.
Mynd / Hallur Karlsson
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & híbýli

Landsliðs- og markadrottning selur í Mosfellsbæ
MannlífiðHús & híbýli

Lands­liðs- og marka­drottn­ing selur í Mos­fellsbæ

Berglind Björg Þor­valds­dóttir, lands­liðs­kona í knatt­spyrnu, og Kristján Sig­urðs­son hafa ákveðið að selja heim­ili sitt í Mos­fells­bænum. Berglind hefur á und­an­förnum ára­tug verið ein besta knatt­spyrnu­kona lands­ins og algjör marka­drottn­ing. Þá hefur hún spilað 72 lands­leiki fyrir Ísland og skorað í þeim leikjum 12 mörk. Hún skipti nýlega úr Val yfir í Breiða­blik eftir að for­ráða­menn Vals létu Berg­lindi vita...
Litrík og skemmtileg heimili í nýja blaðinu
MannlífiðHús & híbýli

Litrík og skemmti­leg heim­ili í nýja blað­inu

Þau eru ansi lit­rík og skemmti­leg heim­ilin sem við hjá Húsum og híbýlum heim­sóttum fyrir nýja blaðið okkar sem er komið í versl­anir. Stofur og borð­stofur eru í aðal­hlut­verki í þessu blaði ásamt inn­litum inn á íslensk heim­ili þar sem per­sónu­legur stíll ræður ríkjum. Það er fal­leg íbúð þeirra Hebu Fjal­ars­dóttur og Birgis Har­alds­sonar sem prýðir for­síð­una að þessu sinni....
Hvað ætla hönnuðirnir að sjá á HönnunarMars?
MannlífiðHús & híbýli

Hvað ætla hönn­uð­irnir að sjá á Hönn­un­ar­Mars?

Umsjón/ María Erla og Guðný Hrönn Hönn­un­ar­Mars hefst á morgun, 19 maí, og er þetta í 13. sinn sem hátíðin er haldin. Við­burð­ur­inn er stærsta hönn­un­ar­há­tíð lands­ins. Við heyrðum í nokkrum hönn­uðum sem sýna á Hönn­un­ar­Mars í ár og spurðum þau meðal annasr út í hvað þau ætla að sjá. Sig­mundur Frey­steins­son fata­hönn­uður Hvað ert þú að sýna á Hönn­un­ar­Mars?...
Deiglumór, áhugaverð heimildabók um leirlist á Íslandi 1930–1970
Mannlífið

Deiglu­mór, áhuga­verð heim­ilda­bók um leir­list á Íslandi 1930–1970

Í ár kom út bókin Deiglu­mór: Keramik úr íslenskum leir 1930-1970. Í bók­inni er farið yfir sögu leir­list­ar­innar sem hefur fylgt mann­kyn­inu frá örófi alda og segja má að sé órjúf­an­legur hluti af menn­ingar- og lista­sögu heims­ins. Hugtakið deiglu­mór er fornt orð yfir leir og vitnar í notkun hans á Íslandi til deiglu­gerðar á öldum áður. Sú saga er fallin...
Handgerð og eftirtektarverð sojakerti
Mannlífið

Handgerð og eft­ir­tekt­ar­verð soja­kerti

Kerti í alls konar birt­ing­ar­formum hafa verið vin­sæl upp á síðkastið; svo sem lík­ams­kerti og snún­ings­kerti og því óvenju­legri því skemmti­legri að okkar mati. Mynd / soyar Við rák­umst á þetta breska vöru­merki, soyar, sem býður upp á úrval soja­kerta í alls konar útfærslum og litum. Mynd / soy­ar­Mynd: Höfundur ókunnur Kertin eru hand­gerð úr soja­vaxi, eit­ur­efna­laus og vegan. Glæddu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður