„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Litið um öxl – Forsíður ársins 2020

Það er gaman og áhuga­vert að líta yfir far­inn veg þegar ára­mótin nálg­ast. Hús og híbýli heim­sótti fjöld­ann allan af glæsi­legum heim­ilum á árinu sem er að líða og for­síður árs­ins bera þess glögg­lega merki. Hérna tökum við smá upp­rifjun og skoðum for­síður Húsa og híbýla á árinu 2020.

Litið um öxl – Forsíður ársins 2020

Fyrsta tölublað ársins

Nýr og glæsi­legur DILL Restaur­ant prýddi fyrsta tölu­blað árs­ins. Gunnar Karl Gíslason,
eig­andi stað­ar­ins og mat­reiðslu­maður ræddi við Hús og híbýli um nýja stað­inn.  Hann ákvað að hanna nýja DILL sjálfur og fékk til liðs við sig góðan vin sinn, hönn­uð­inn og lista­mann­inn Anthony Bacigalupo.

Anthony og Gunnar. Mynd / Hallur Karlsson

Gunnar Karl sagði að mark­miðið hafi verið að ná fram ákveðnum hug­hrifum hjá gestum stað­ar­ins en gengið er inn frá Lauga­veg­inum þar sem oft er ys og þys. Gunnar Karl og Anthony voru algjör­lega sam­mála um að sú nálgun að skapa nýjan heim sem tæki
gesti í ferð­lag fjarri Lauga­veg­inum væri sú sem þeir vildu leggja áherslu á.

Annað tölublað ársins

Nátt­úru­legt og afslappað í Laug­ar­dalnum var yfir­skriftin á inn­lit­inu sem prýddi þessa for­síðu.

Við heim­sóttum Dagnýju Berg­lindi sem er mjög hrifin af lítið unnum nátt­úru­legum efnum og það sem hún leitar eftir á nytja­mörk­uðum er gegn­heill viður, bambus, bast og leir­munir
en hún er lítið fyrir plast­húðað. Heimili hennar ber þess merki að end­ur­nýt­ing er henni hug­leikin.

Mynd / Hallur Karlsson

Þriðja tölublað ársins

Við heim­sóttum þau Caroline og Benoit á Álftanes en þau rifu sig upp með rótum
og fluttu með fjöl­skyld­una til Íslands. Caroline og Benoit eru frá Le Mens í Vestur-Frakk­landi en höfðu búið í Lúx­em­borg í yfir tíu ár áður en þau ákváðu að elta draum­inn sem þau höfðu gengið með í nokkurn tíma, að flytja til Íslands.

Mynd / Hallur Karlsson

Húsið sem þau búa í er sér­stak­lega bjart og fal­legt og þar kveður við ein­hvern nýjan og ferskan tón. „Við mál­uðum allt í mis­mun­andi litum og svo voru auð­vitað nokkrir veggir vegg­fóðraðir en krakk­arnir fengu að velja lit­ina og vegg­fóðrið í sín her­bergi og gaman að sjá hvað þau völdu ólíkt,“ sagði Caroline í sam­tali við Hús og híbýli fyrr á árinu.

Fjórða tölublað árins

Þessi bjarta íbúð í Holtunum í Reykja­vík prýddi fjórðu for­síð­una okkar. Þar búa þau Tanja Rós og Guð­mundur ásamt syni þeirra Emanúel, tveggja ára.

Þau keyptu íbúð­ina haustið 2019 og réð­ust í tölu­verðar fram­kvæmdir á eign­inni. Alrýmið var allt tekið í gegn og fimm vikum seinna voru þau flutt inn. Íbúðin er í ljósum tónum og fær hvert smá atriði að njóta sín vel.

Mynd / Hákon Davíð

Guð­mundur og Tanja sögðu blaða­manni Húsa og híbýla frá fram­kvæmd­unum. Þau gerðu íbúð­ina nær fok­helda, skiptu um allt gól­f­efni, hurðir og eld­húsinn­rétt­ingu. Þá settu þau upp vegg til þess að búa til auka­her­bergi og útbjuggu renni­hurð til þess að nýta rýmið sem best.

Fimmta tölublað árins

Í vor heim­sóttum við þetta fal­legt hús sem stendur við Gálga­hraun í Garðabæ en húsið
hefur tekið miklum breyt­ingum síð­asta ára­tug­inn. Það var arki­tekta­stofan Gláma•Kím sem sá um að hanna við­bygg­ingu við húsið auk breyt­inga að innan árið 2003.

Húsið var síðan tekið í gegn að nýju 2018-2019 og var það inn­an­húss­hönn­uð­ur­inn Dóra Björk Magn­ús­dóttir sem sá um verkið í góðu sam­starfi við eig­endur húss­ins.

Dóra tók á móti okkur og sagði okkur frá þessu stór­feng­lega húsi.

Sjötta tölublað árins

Þetta und­urfagra heim­ili prýddi sjötta tölu­blað árs­ins. Eva Dögg Rún­ars­dóttir tók á móti okkur. Hún hefur skýra sýn þegar kemur að heim­il­inu og ræður nátt­úran ríkjum,
sem dregin er inn með efni og áferð á borð við tré, bambus, stein og gler,
keramík, kork og demp­uðum jarð­lita­tónum.

„Ég get ekki ímyndað mér að eiga heima í íbúð þar sem allt er svart og grátt en mér líður best umvafin hvítum og ljósum litum,“ sagði Eva. Hún fylgir eigin inn­sæi og hug­ar­heimi þegar kemur að heim­il­inu og lýsir hún stílnum sem nátt­úru­legum fyrst og fremst með exó­tísku ívafi.

Sjöunda tölublað ársins

Í fag­ur­bláu húsi, byggt árið 1945, undir Eyja­fjöllum hafa þau Fríða Jóns­dóttir og eig­in­maður hennar, Guð­mundur Tómasson, búið sér fal­legan íveru­stað. Þetta var ein­stak­lega skemmti­leg ehim­sókn og bláa húsið rataði á for­síðu Húsa og híbýla í sumar.

Fríða hefur lengi verið við­loð­andi sölu á antík­munum og rak versl­un­ina Hús fiðr­ild­anna
um nokk­urra ára skeið. Sum­ar­húsið ber þess glöggt merki enda hlaðið ein­stökum munum héðan og þaðan, lita­gleðin er við völd og eru þau hjónin óhrædd við að fara eigin leiðir.

Mynd / Hákon Davíð

Áttunda tölublað ársins

Stór­kost­legt hús með sögu og sál var yfir­skriftin á þessu skemmti­lega inn­liti í veiði­húsið við Laxfoss.

Norðurá er um 62 kíló­metra löng á sem á upp­tök sín í Holta­vörðu­vatni. Þrír fossar eru í ánni en þeir eru Laxfoss, Glanni og Króks­foss. Laxfoss er neðstur og er lík­lega fræg­asti foss­inn í ánni en þar hefur staðið veiði­hús frá árinu 1907. Sigrún Ása Sturlu­dóttir nátt­úru­fræð­ingur og Þór Gunn­ars­son líf­eðl­is­fræð­ingur eru eig­endur jarð­ar­innar Laxfoss í dag.

Elsti hluti veiði­húss­ins við Laxfoss var byggður árið 1907 af Friðriki Jónssyni stór­kaup­manni en hann var betur þekktur sem annar Sturlu­bræðra en þeir bræður, Friðrik og Sturla, voru meðal helstu kaup­manna og athafna­manna í Reykja­vík fyrir og eftir alda­mótin 1900.

Sigrún og Þór hafa ráð­ist í tölu­verðar fram­kvæmdir und­an­farin miss­eri sem áttu að vera litlar en undu svo upp á sig eins og oft vill verða. Munirnir eru flestallir sam­ofnir sögu húss­ins og tengj­ast margir þeirra veiði­mennsk­unni. Ákaflega skemmti­legt inn­lit.

Mynd / Hákon Davíð

Níunda tölublað árins

Fyrir þetta blað heim­sóttum við magnað hús Jakobs Jak­obs­sonar og Guð­mundar Guð­jóns­sonar á Vest­fjörðum.

Jakob og Guð­mundur eru eig­endur Mat­kránnar í Hvera­gerði. Þá hafði dreymt um að eign­ast afdrep úti á landi og varð sá draumur að veru­leika árið 2011 þegar þeir festu kaup á jörð við fal­legan fjörð fyrir vestan.

Bæj­ar­húsið var byggt um 1850 og hefur það tekið miklum breyt­ingum í tím­ans rás. „Húsið var alveg á síð­ustu metr­unum þegar við keyptum það. Það sem bjarg­aði því í raun frá eyði­legg­ingu var að brú­ar­starfs­menn höfðu aðsetur hér á meðan þeir voru við vinnu í sveit­inni. Þeir lögðu raf­lagnir svo hægt væri að búa í hús­inu og þeir sáu um að hægt væri að setja hita á ofn­ana. Þakið lak og við byrj­uðum á að setja málm­plötur á þakið og kítta til að stöðva lek­ann en skiptum svo alveg um þakið síðar,“ sagði Jakob í sam­tali við blaða­mann Húsa og híbýla.

Tíunda tölublað ársins

Í grónu hverfi í Hvassa­leit­inu, búa fram­taks­söm hjón, þau Hildur, arki­tekt og
umhverf­is­fræð­ingur, og Hreiðar Levy fast­eigna­sali. Við heim­sóttum þau fyrir tíunda blaðið okkar. Það var Magnús Guð­munds­son bygg­inga­fræð­ingur sem teikn­aði húsið, tví­lyft rað­hús með íbúð í kjall­ar­anum, sem telur rúma 270 fer­metra.

Húsmunir bera þess merki að eig­endur heill­ast mikið af klass­ískri hönnun um og eftir 1960, en einnig setja ýmiss konar ger­semar af mörk­uðum og sölu­síðum sterkan svip á heim­ilið. Inn­an­húss­straumar frá Danmörku hafa einnig fylgt þeim en Hildur bjó lengi vel þar í landi er hún lagði stund á nám í arki­tektúr í Kon­ung­legu dönsku listaka­dem­í­unni.

Græni og grái lit­ur­inn nær að miklu leyti í gegnum íbúð­ina og ber opið rýmið lit­ina vel. Stíll heim­il­is­ins er lát­laus og klass­ískur og seg­ist Hildur hafa það sem áhuga­mál að kaupa notuð hús­gögn.

Ellefta tölublað ársins

Við Vest­ur­götu í Hafn­ar­firði búa hjónin Elías Guð­munds­son og Sólveig Eiríks­dóttir í glæsi­legu húsi sem var teiknað árið 2005 af Batt­er­í­inu.

Solla og Elías festu kaup á hús­inu á vor­dögum 2018 og segir Elli að húsið hafi algjör­lega upp­fyllt þær kröfur sem þau gerðu til hús­næðis og nefnir hann þætti eins og mikla loft­hæð,
fjölda svefn­her­bergja og stærð húss­ins í heild. Áður bjuggu þau í miðbæ Reykja­víkur þegar ferða­­manna­iðn­að­ur­inn var að ná hámarki í borg­inni með til­heyr­andi ys og þys.

Þau segj­ast bæði vera mjög sátt í Hafn­ar­firði og eru ánægð með menn­ing­ar­lífið sem þau eru dug­leg að sækja og segja jan­framt að það líði oft margir dagar án þess að þau þurfi að sækja sér þjón­ustu utan bæj­ar­ins því þar sé flest allt við hend­ina og þau
vinna bæði mikið heima við.

Úr stof­unni er gengið út á þaksvalir sem byggðar eru ofan á bíl­skúr­inn og myndar ein­stak­lega skemmti­legt úti­svæði sem hjónin segj­ast nota mjög mikið. Mynd / Hallur Karlsson

Tólfta tölublað ársins

Forsíða jóla­blaðs­ins okkar var dökk­blá og hátíð­leg. Við skoð­uðum hvernig er hægt að vinna með það sem til er í skreyt­ingar. Hér var not­ast við greinar, greni, ber, köngla, kerti og pappa­stjörnur.

Við gáfum les­endum ýmsar skreyt­inga­hug­myndir í þessu blaði og sýndum meðal ann­ars hvernig hægt er að skreyta kökur með ferskum blómum. Sum blóm eru æt og er til dæmis hægt að fá slík rósa­blöð í Jurta­apó­tek­inu.

Þrettánda tölublað ársins

Skreyt­ing sem Ingunn Embla Axels­dóttir stillti upp fyrir okkur heima hjá sér prýddi hátíð­ar­blað Húsa og híbýla. Dásam­lega fal­legir litir ein­kenna þessa for­síðu.

„Hug­myndin á bak við jóla­skreyt­ing­una mína var sú að nýta eitt­hvað sem venju­lega er ekki
nýtt sem jóla­skraut. Einnig fannst mér mik­il­vægt að þurfa ekki endi­lega að eyða pen­ing í árs­tíða­bundið jóla­skraut sem maður geymir svo í kassa uppi á háa­lofti 90% af árinu, frekar nýta það sem til er. Þar sem ég bý til mína eigin skart­gripi ákvað ég að nota þá sem skreyt­ingu á litla jóla­tréð mitt,“ segir Ingunn um skreyt­ing­una.

Fyrir áhuga­sama er hægt að skoða skartið hennar Ingunnar á Instagram-síð­unni, ing­unnemblaa.

Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

áramót

Borgin hættir við fækkun áramótabrenna: „Hér er um tilfinninga- og hitamál að ræða“
Innlent

Borgin hættir við fækkun ára­móta­brenna: „Hér er um til­finn­inga- og hita­mál að ræða“

Reykja­vík­ur­borg hefur ákveðið að hætta við að fækka brennum í borg­inni um næstu ára­mót. Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Pírata til­kynnti nú fyrir stundu á Facebook að borgin hefði ákveðið að hlusta á íbúa og íbúa­ráð um að hætta við að fækka ára­móta­brennum í ár. Dóra skrif­aði: „Ég hef alltaf ein­sett mér að vera auð­mjúk og næm á sjón­ar­mið íbúa út...
Mest lesnu fréttir ársins – Endurkoma Gylfa, harmleikir og nýjar ástir
Innlentáramót

Mest lesnu fréttir árs­ins – End­ur­koma Gylfa, harm­leikir og nýjar ástir

Árið 2023 var ár end­ur­komu, ofbeldis, harm­leika og ást­ar­innar ef marka má lestr­ar­tölur Mannlífs. Í heild­ina voru frétt­irnar lesnar yfir 18 milljón sinnum, sem þýðir að með­al­flett­ingar á dag var um 50.000. Verður það að telj­ast nokkuð gott hjá litlum miðli sem þessum. Nokkar fréttir stóðu upp úr en um leið og við rifjum upp tíu mest lesnu fréttir árs­ins...
Lögreglan minnir á rétta notkun flugelda: „Þar sé reglum framfylgt“
Innlent

Lög­reglan minnir á rétta notkun flug­elda: „Þar sé reglum fram­fylgt“

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur sent frá sér til­kynn­ingu varð­andi flug­elda­notkun. Þar eru íbúar minntir á að það sé bannað að breyta flug­eldum. Þá er einnig minnt á að mik­il­vægt sé að fara var­lega og nota örygg­is­gler­augu. „Hér eru íslenskar gæsalappir“ Hægt er að lesa alla til­kynn­ing­una hér fyrir neðan: „Reglu­lega skap­ast umræður um svo­kall­aðar skot­kökur og sam­teng­ingar á þeim. Gott...
Mest lesnu fréttir ársins – Vítalía, Svala Björgvins, stunguárásir og skandalar
Innlentáramót

Mest lesnu fréttir árs­ins – Vítalía, Svala Björg­vins, stungu­árásir og skandalar

Árið 2022 var ár skandala, ofbeldis og kyn­ferð­is­áreitis ef marka má lestr­ar­tölur Mannlífs. Í heild­ina voru frétt­irnar lesnar yfir 21 milljón sinnum, þær voru þó nokkrar sem stóðu upp úr. Á sama tíma og við lítum til baka á vin­sæl­ustu fréttir árs­ins 2022, þökkum við á rit­stjórn Mannlífs fyrir veittan stuðn­ing og óskum þjóð­inni allri gæfu­ríks árs. Deilt innan Félags...
Gæði, sérþekking og gott verð – Áramótavínið 2021 er frá Tíu Vín
Mannlífið

Gæði, sér­þekk­ing og gott verð – Ára­móta­vínið 2021 er frá Tíu Vín

Ára­móta­vínið völdu þeir vin­irnir og vín­sér­fræð­ing­arnir hjá TÍU VÍN en er það freyði­vínið Moutard Blanc de Blancs Brut 100% Chardonnay frá Bourgogne Vínið er full­komið í ára­móta­veisl­una hvort sem það er með for­rétt­inum eða til þess að skála í þegar klukkan slær tólf. Vínið vann til gull­verð­launa í French National Crémant Contest. Það hefur fengið frá­bæra dóma og er gott...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður