Illuga Jökulssyni rithöfundi brá í brún þegar hann leit upp til himins í dag. Þar sá hann nokkuð sem hann hefur ekki séð lengi. Slóð eftir farþegaþotu yfir Íslandi.
Rithöfundurinn birtir mynd af fyrirbærinu á Facebook þar sem umræður eru farnar af stað. „Ekki séð þetta lengi,“ segir Illugi undir myndinni.
Eftir að hafa séð mynd Illuga skilur Helga Thorberg ekkert í því hvað þarna er á ferðinni. „Hvað er þetta??????,“ spyr Helga.
Elísabet, systir Illuga, segist hafa einnig hafa séð þotufar á himni. Raunar ekki bara eitt heldur för eftir tvæ þotur sama daginn. „Hér komu tvær yfir Hveragerði sama daginn, rosa traffík,“ segir Elísabet.


























Athugasemdir