„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dísella og Bragi eignast barn: „2020 bara alls ekkert svo slæmt ár“

Dísella og Bragi eignast barn: „2020 bara alls ekkert svo slæmt ár“
Dísella Lár­us­dóttir.

Óperu­söng­konan Dísella Lár­us­dóttir og Bragi Jónsson rekstr­ar­stjóri Leigu­mark­aðar BYKO eign­uð­ust dóttur annan í jólum, en fyrir eiga þau tvo syni.

Að sögn Dísellu kom dóttirin í heim­inn klukkan sex þann 26. des­em­ber. „Hún ákvað að vera snögg á leið­inni til okkar, ekki liðu meira en fjórar klukku­stundir þar til hún var mætt á stofu­gólfið hjá okkur, 52 senti­metrar og 3.880 grömm af full­kominni feg­urð.

Okkur skilst að þessi heima­fæð­ing hafi hlotið þann merka heiður að vera sú þrjú hund­ruð­asta á Íslandi og þökkum við ljós­mæðr­unum Krist­björgu og Gígju  fyrir að vera okkur til halds og trausts í gegnum ferlið.“

Fyrir eiga Dísella og eig­in­maður hennar Bragi Jónsson tvo syni, Jökul Orra, fimm ára og Bjart Lárus, tíu ára. Þegar Séð og heyrt ræddi við Dísellu í byrjun ágúst á þessu ári sagði hún að yngri son­ur­inn biði í ofvæni eftir því að eign­ast systk­ini.
„Hann er svaka­lega kátur með að verða stóri bróðir og er búinn að tala um systur sína síðan síð­asta haust, kom meðal ann­ars heim með mál­aða fjöl­skyldu­mynd um jólin þar sem hann hafði bætt henni við inn á mynd­ina,“ sagði hún af til­efni og hló.

Dísella sagði þá enn­fremur að þau fjöl­skyldan hefðu ekki hug­mynd um hvort þessi lang­þráða ósk hans um að eign­ast systur yrði að veru­leika eða ekki, þar sem þau vissu ekki hvort þetta væri stelpa eða strákur. En nú er hins vegar orðið ljóst að þeim stutta hefur orðið að ósk sinni.

Á Facebook segir Dísella að for­eldr­unum og sonum þeirra hlakki til að kynna dótt­ur­ina fyrir fjöl­skyldu og vinum eftir því sem aðstæður leyfa á þessum skrýtnu tímum. „Við ætlum að leyfa okkur að finn­ast árið 2020 bara alls ekk­ert svo slæmt ár.“

Sjá einnig: Dísella og Bragi eiga von á barni: „Algjört krafta­verk“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza