„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Forðastu timburmennina

Timb­ur­menn. Ugh! Hver bauð þeim eig­in­lega? Þeir eru því miður oft óskemmti­legur félags­skapur eftir gott djamm kvöld­inu áður og ef til vill eru timb­ur­menn í heim­sókn víða um bæinn akkúrat núna eftir gær­kvöldið. Til að sleppa algjör­lega við þá er best og ein­fald­ast að sleppa áfeng­is­drykkju en ef áhugi á því er ekki fyrir hendi koma hér nokkur ráð til að forð­ast timb­ur­menn­ina næst þegar á að gera sér glaðan dag með vín um hönd.

Áður en stuðið hefst:

Þetta er rétti dag­ur­inn til að taka sér hlé frá megr­un­inni. Borðaðu fitu­ríka mál­tíð áður en þú ferð út á galeið­una. Fitan húðar mag­ann að innan og þá er minni hætta á að deg­inum eftir verði eytt í að horfa ofan í kló­sett­skál­ina. Ef þú vilt vera enn örugg­ari þá er frá­bært að drekka mjólk­ur­glas með matnum eða jafn­vel pína ofan í sig skeið af lýsi.

Vökvaðu lík­amann með óáfengum drykkjum áður en haldið er af stað. Eins og flestir vita orsakast stór þáttur óþæg­ind­anna af ofþornun Það er ólíkt þægi­legra að fyr­ir­byggja vand­ann heldur en að lækna hann.

Á meðan á djamm­inu stendur:

Það er fleira í drykkj­unum þínum en bara áfengið sem stuðlar að timb­ur­mönnum. Í áfengum drykkjum eru líka aukefni sem lík­am­inn erf­iðar við að brjóta niður. Þum­al­putta­reglan er að dökkir drykkir, eins og rauð­vín, púrtvín og kon­íak hafa fleiri aukefni en þeir ljósu, s.s. hvítvín, vodka eða gin. Einnig eru ódýr­ari vín oft­ast með fleiri aukefnum en þau sem dýr­ari eru.

Drekktu vatns­glas eða ávaxta­safa á milli áfengu drykkj­anna. Ástæðan fyrir haus­verknum hrylli­lega, sem þú færð ella dag­inn eftir, er að mestu leyti ofþornun. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því hvað öðrum finnst því raunin er sú að eftir nokkur glös eru flestir bara að fylgj­ast með sínum eigin drykk.

Þegar heim er komið:

Athugaðu hvort þú týndir debet­kort­inu eða tókst auka­fólk með þér heim af barnum. Ef þú verður vör við óheppi­lega áhan­gendur þá skaltu koma þeim út úr húsi sem fyrst. Það er ekk­ert jafn­kvala­fullt og timb­ur­menn með mórölsku ívafi. Mundu líka eftir sam­komu­tak­mörk­unum og heims­far­aldr­inum sem er í gangi!

Drekktu mikið vatn. Þú vilt forð­ast ofþornun sem hætta er á þegar áfengis er neytt.

Fáðu þér eitt­hvað að borða. Blóð­syk­ur­inn er í lág­marki og maginn vafa­laust við­kvæmur. Taktu stóran skammt af B- og C-vítamíni eða fjölvítamíni. Ef þetta eru of flóknar leið­bein­ingar fyrir mann­eskju í þínu ástandi þá hjálpar mikið að drekka glas af ferskum app­el­sínusafa. C-vítamínið í safanum hjálpar lifr­inni að brjóta niður áfengið og ávaxta­syk­ur­inn gefur þér orku sem lík­ami þinn þarf sár­lega á að halda til að fást við óæski­leg áhrif áfeng­is­drykkju.

Pissaðu áður en þú ferð í hátt­inn. Það dregur úr næt­ur­brölti og þú þarft á hvíld­inni að halda.

Morg­un­inn eftir djamm:

Ertu samt timbruð/timbraður? Alveg viss um að þú hafir hlýtt öllum fyr­ir­mæl­unum? Fáðu þér þá eitt­hvað að borða. Drekktu fullt af vatni eða ávaxta­safa og fáðu þér verkja­lyf eða Alka Selzer sem er auð­vitað sér­hannað fyrir fólk eins og þig í dag.

Farðu aftur í rúmið. Ef þér líður eins og þú sért veik/ur, þá ertu veik/ur. Farðu aftur að sofa og gefðu lík­am­anum færi á að vinna í þessum ósköpum. Ef þér finnst þú eiga það skilið að þjást fyrst þú varst svona óþekk/ur í gær­kvöldi þá máttu það alveg. En hver græðir á því?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

áfengi

„Golíat kærir Davíð. Þetta verður fjör“- ÁTVR kærir heimsendingar á guðaveigum og saka um skattsvik
Innlentáfengi

„Golíat kærir Davíð. Þetta verður fjör“- ÁTVR kærir heim­send­ingar á guða­veigum og saka um skatt­svik

ÁTVR hefur lagt fram kæru á hendur Arnari Sig­urðs­syni, frönsku net­versl­un­inni Santewines SAS og inn­flutn­ings­fyr­ir­tæk­inu Sante til lög­reglu og skatta­yf­ir­valda. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hafa kærur líka verið lagðar fram gegn Bjór­landi, Brugg­hús­inu Steðja sem og eig­endum þess­ara fyr­ir­tækja. Arnar Sig­urðs­son – eig­andi Santewines SAS og Sante – rekur net­verslun með áfengi sem er með lager hér á landi, og í...
Grunaður um vörslu fíkniefna, innbrot og fleira
Innlent

Grunaður um vörslu fíkni­efna, inn­brot og fleira

Rétt fyrir klukkan tvö í nótt hafði lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu afskipti af öku­manni í Foss­vog­inum en hann er grun­aður um akstur bif­reiðar undir áhrifum fíkni­efna, ítrek­aðan akstur sviptur öku­rétt­indum, nytja­stuld bif­reiðar, vörslu fíkni­efna, inn­brot og þjófnað, að því er fram kemur í dag­bók lög­reglu. Var maður hand­tek­inn og vistaður í fanga­geymslu fyrir rann­sókn máls­ins. Óhætt er að segja að síð­asti...
Innlent

„Málið er ekki nýtt og ekki til­komið vegna Covid-19 veirunnar“

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra sá sig knúna til að leið­rétta þann mis­skiln­ing að frum­varps henn­ar um áfeng­is­versl­un á net­inu sé nýtt og til­komið vegna útbreiðslu COVID-19. Áslaug birti langa færslu um málið á sam­fé­lags­miðlum. Áslaug Arna ssagði í síð­ustu viku að á tímum COVID-19 og sam­komu­banns væri sér­stak­lega þörf á lög­legri net­verslun með áfengi. „Ef ein­hvern­tíman væri þörf fyrir lög­lega...
Atli vonsvikinn á meðan peningarnir streyma í kassa ÁTVR
Innlent

Atli von­svik­inn á meðan pen­ing­arnir streyma í kassa ÁTVR

Góð vika – ÁTVR Íslend­ingar kaupa áfengi sem aldrei fyrr í sam­komu­bann­inu og síð­ast­lið­inn mánu­dag voru seldir 82 pró­sentum fleiri lítrar í Vínbúðum ÁTVR en á sama tíma í fyrra. Þrátt fyrir skort á ferða­mönnum og lokun bar­anna virð­ist ÁTVR standa með pálmann í hönd­unum hvað varðar sölu­tölur, en aukn­ingin í sölu áfengis fyrstu þrjár vik­urnar í mars var um...
Íslendingar halla sér að flöskunni
Innlent

Íslend­ingar halla sér að flösk­unni

Þó að hér séu engir ferða­menn og engar veislur fari fram hefur sala áfengis hjá ÁTVR auk­ist mikið í mars­mán­uði, miðað við í fyrra. Lýð­heilsu­fræð­ingur varar fólk við að nota áfengi til að deyfa sig ef fólk upp­lifir van­líðan á tímum sam­komu­banns. Íslend­ingar keyptu 82 pró­sent fleiri lítra af áfengi síð­ast­lið­inn mánu­dag, dag­inn áður en hert sam­komu­bann tók gildi, sam­an­borið...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu