„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Pabbi ég sakna þín: Pabbi ég elska þig – Hvíldu í friði

Pabbi ég sakna þín: Pabbi ég elska þig – Hvíldu í friði

Eftir / Snærúnu Ösp Guð­munds­dóttur

Þann 15 mars 1981, dó pabbi minn. Að­eins 31 árs gam­all. Hann dó frá eigin­konu og 3 litlum börnum, 8 ára, 7 ára og 1 árs.

Þennan dag tók hann sitt eigið líf. Ég var bara rúm­lega eins árs þegar hann dó og þekkti hann því ekki en hef heyrt af honum sögur.

Hann var senni­lega ein­fari að mörgu leyti, leið ekki vel í kringum mikið af fólki nema þá kannski ef hann var undir á­hrifum á­fengis.

Honum gekk vel í skóla og fékk glimr­andi ein­kunnir. Lærði bú­fræði við Há­skól­ann á Hólum og var bóndi allt sitt líf. Hann átti stórt bú með kúm, kindum, hænum og hestum. Honum var margt til lista lagt, var t.d góður smiður. Pabbi var mik­ill hesta­maður, rækt­aði hesta og átti sjálfur um 40 hesta og seldi þá einnig til Þýska­lands. Hann kenndi okkur syst­kin­unum að sitja hest áður en við vorum farin að ganga.

Senni­lega var það skemmti­leg­asta sem hann gerði var að fara í nokkra daga hesta­ferðir með góðum fé­lögum. En á­fengið var hans böl og átti eftir að taka yfir hans líf. Einnig átti hann senni­lega við þung­lyndi að stríða. Hann var góður og blíður maður, með hjarta úr gulli. Hann var góður við fjöl­skyld­una og svo stoltur af börn­unum sínum en þegar hann var undir á­hrifum þá breytt­ist hann. Hann var aldrei vondur við börnin sín en þegar hann reidd­ist lét hann það senni­lega bitna mest á mömmu.

Einn dag­inn datt pabbi í það og drakk fram á næsta morgun. Um morg­un­inn rifust for­eldrar mínir og end­aði það rifr­ildi með því að pabbi fór fram í for­stofu og skaut sig í haus­inn. Við skot­hljóðið vökn­uðu bræður mínir. Á bænum bjó gam­all maður sem vann hjá okkur, hann fór að at­huga með pabba á meðan mamma fór til bræðra minna til að huga að þeim.

Mikil skömm og engin hjálp

Á þessum tíma, árið 1981 var það mjög mikil skömm ef ein­hver tók líf sitt. Það mátti aldrei tala um þetta. Það var engin á­falla­hjálp. Mamma fékk eina svefn­töflu svo hún gæti nú sofið nótt­ina á eftir en fékk enga frek­ari hjálp og enga eftir­fylgni. Svona hlutir voru bara þagg­aðir niður.

Bræður mínir hafa þurft að glíma við marg­vís­leg vanda­mál eftir þetta gríðar­lega á­fall. Þetta var svo mikil skömm, það mátti aldrei tala um þetta. Mér var sagt að pabbi hafi dáið í slysi og var ég orðin sirka sjö ára þegar ég kemst að því hvernig hann dó. Ég hef alltaf átt erfitt með að tjá mig um það, örugg­lega ein­hver skömm þarna.

Margir sem þekkja mig vita örugg­lega ekki hvernig pabbi dó. En ég hef síð­ast­liðið ár rætt þetta opin­skátt við fólk ef það spyr mig, en mér finnst alltaf erf­ið­ast að fá við­brögð þeirra sem spyrja mig hvernig pabbi dó. Fólki finnst ó­þægi­legt að heyra þetta og ég skil það bara mjög vel. Ræturnar í tengsl við for­eldra liggja djúpt og þrátt fyrir að ég hafi aldrei þekkt hann þá sakna ég hans á hverjum degi. Ég hefði viljað kynn­ast honum og að börnin mín hefðu fengið að kynn­ast honum.

En sem betur fer eru breyttir tímar, það má tala um svona og það á að tala um svona. Það má ekki þagga svona niður. Þessi pist­ill á alls ekki bara að fjalla um pabba og allan harm­leik­inn í kringum dauða hans, það væri efni í heila bók. Heldur langar mig að fara yfir fræði­legar og tölu­legar stað­reyndir um sjálfs­víg. Hvíldu í friði. Ég elska þig.

Um sjálfs­víg:

Sjálfs­víg á sér oft undan­fara í löngu og flóknu ferli, sem endar með því að ein­stak­lingur tekur þá af­drifa­ríku á­kvörðun að enda líf sitt. Inn í allt þetta ferli spila fé­lags­legar að­stæður sem geta verið skyndi­leg á­föll, missir eða lang­var­andi streita. Per­sónu­legir þættir skipta þarna líka miklu máli sem kunna að ein­kenn­ast af reiði og hvat­vísi, ó­hóf­leg á­fengis-og vímu­efna­neysla og síð­ast en ekki síst geð­sjúk­dómar, t.d. þung­lyndi og kvíði. Það hefur viljað brenna við að sjálfs­víg sé sveipað dul­úð en ekki verður þó horft fram hjá því sjálfs­víg er alltaf harm­leikur sem hefur gríðar­leg á­hrif á um­hverfi þess sem sviptir sig lífi, fjöl­skyldu, vini og aðra.

Það mætti á­ætla að tugir ein­stak­linga sem tengdir eru ein­stak­ling sem sviptir sig lífi muni finna fyrir veru­legri röskun á geð­heilsu. Í flestum til­fellum mun um tíma­bundna röskun að ræða, en nokkur hluti þessa hóps mun þurfa fag­lega ráð­gjöf eða sér­fræði­með­ferð til að ná sér aftur á strik. Þeir sem eftir lifa sitja eftir upp­fullir af sárum til­finn­ingum, undrun, dofa, af­neitun, ákafri sorg, reiði, sjálfs­á­sök­unum eða á­sök­unum á aðra. Sjálfs­mynd að­stand­enda brotnar og þeir sitja eftir með á­leitnar spurn­ingar, t.d. kenna sér um hvernig fór og hafa oft til­hneig­ingu til að ein­angra sig. Erfitt getur verið að vinna úr sárs­auk­anum og sumir losna aldrei undan honum.

Mynd / Skjáskot RÚV

Tölu­legar upp­lýsingar

Þrír til fjórir ein­stak­lingar munu svipta sig lífi í hverjum mán­uði á Ís­landi. Karlar eru mun lík­legri en konur sem gera fleiri sjálfs­vígs­til­raunir sem enda ekki með dauða. Það veldur á­hyggjum hve sjálfs­vígs­tíðni karla undir 25 ára hefur auk­ist undan­farna ára­tugi, ekki bara á Ís­landi heldur víða um heim. Or­sakir eru ó­kunnar og ef­laust marg­þættar en ekki er ó­lík­legt að örar fé­lags­legar breyt­ingar, jafn­vel breyt­ingar á sam­fé­lags­legri stöðu karl­manna kunni að hafa þarna ein­hver á­hrif. Þeir sem taldir eru í sér­stakri hættu á að taka líf sitt eru fólk með al­var­legar geð­rask­anir, sér­stak­lega þung­lyndi og geð­rofs­sjúk­dóma. Þeir sem einu sinni hafa gert til­raun til sjálfs­vígs eru mun lík­legri en aðrir til að reyna að fyrir­fara sér. Ungir karl­menn, sér­stak­lega hafi þeir ekki náð að marka sér stefnu í sam­fé­lag­inu, verða utan­veltu. Hvat­vísir karl­menn. Ungir karl­menn og konur með al­var­lega fíkni­sjúk­dóma. Karl­menn utan sam­búðar. Fangar, einkum í upp­hafi fanga­vistar. Konur sem eru komnar yfir miðjan aldur eru í meiri hættu en yngri konur. Há­aldr­aðir ein­stak­lingar, þ.e. 85 ára og eldri. Ein­stak­lingar sem verða fyrir á­föllum

Þegar metin er sjálfs­víg­hætta:

– Fyrri til­raunir

– Von­leysi

– Stera­notkun, auka x7 á­hættu á sjálfs­vígi

– Kyn (karlar gera hættu­legri til­raunir)

– Lang­var­andi svefn­leysi

– Geð­rofs­ein­kenni

– Neysla

– Lang­var­andi veik­indi

– Býr einn

– Krísa

– Reiði/að­sóknar­kennd

– Hvat­vísi

– Vopn á þér eða á heim­il­inu

– Nú­ver­andi plön (undir­bún­ingur)

– Nú­ver­andi sjálfs­skaði

– Kveðju­bréf

Snærún Ösp Guðmundsdóttir

Síður sem hægt er að leita sér upp­lýsinga vegna sjálfs­víga og sjálfs­vígs­hættu – Smelltu á hlekkinn til að fræðast meira.

Píeta

Hugarafl

Þú skiptir máli!

Sjálfs­víg.is

Snærún Ösp Guð­munds­dóttir. Höfundur er hjúkr­un­ar­fræð­ingur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

raddir

Aðgangur fanga að tölvum er lykill að menntun og betri framtíð
Skoðun

Aðsend grein

Aðgangur fanga að tölvum er lyk­ill að menntun og betri fram­tíð

Ég tek heils­hugar undir með for­manni Afstöðu og vil leggja áherslu á mik­il­vægi þess að fangar hafi greiðan aðgang að net­inu, þegar horft er til mennt­unar í þessu sam­hengi, þá er sér­stak­lega brýnt að huga að þeim áskor­unum sem fangar standa frammi fyrir þegar kemur að námi og tryggja þeim sömu tæki­færi til mennt­unar eins og öðrum í sam­fé­lag­inu. Það...
Eru skólaíþróttir tímaskekkja?
Skoðun

Aðsend grein

Eru skóla­í­þróttir tíma­skekkja?

Davíð Már Sig­urðs­son skrifar Ég er af þeirri kyn­slóð sem fór í gegnum grunn­skóla á meðan það sem núna kall­ast skóla­í­þróttir, bar nafnið leik­fimi. Ég man líka hvað mér fannst þessi nafna­breyt­ing ein­stak­lega fárán­leg þegar hún gekk í gegn. Örugg­lega bara mínir for­dómar en þegar ég heyrði orðið hljóm­aði það illa. Íþróttir og skóla­í­þróttir. Eins og þetta sé ein­hver lélegri...
Hærri laun – Orsök eða afleiðing?
Skoðun

Aðsend grein

Hærri laun – Orsök eða afleið­ing?

Davíð Már Sig­urðs­son skrifar Nú snýst kjara­bar­átta yfir­leitt um hærri laun, og þar eru kenn­arar engin und­an­tekn­ing, enda í kjara­bar­áttu. Það heyr­ist víða að þetta enda­lausa höfr­unga­hlaup á hækkun launa hafi kveðið upp verð­bólgu­draug­inn sem hefur herjað á Íslend­inga síð­ast­liðin miss­eri. En er það rétt? Er krafa launa­fólks um hærri laun eini söku­dólg­ur­inn? Hver er grunn­á­stæða þess að launa­fólk krefst...
Yfirlýsing frá Jóni Rúnari
Skoðun

Aðsend grein

Yfir­lýs­ing frá Jóni Rúnari

Í des­em­ber síð­ast­liðnum hófu fjöl­miðlar um­fjöll­un um bygg­ing­ar­kostnað Skess­unn­ar sem byggði öll á skýrslu Deloitte ehf. sem unn­in var fyr­ir Hafn­ar­fjarð­arbæ vegna fyr­ir­hug­aðra kaupa bæj­ar­ins á mann­virk­inu. Inn í þá um­fjöll­un dróg­ust nafn mitt og fyr­ir­tæki mitt Best-hús ehf. og hamrað á því að fyr­ir­tækið hefði fengið greidd­ar 350 millj­ón­ir króna frá FH, og látið að því liggja að ekki...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins