„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Selfyssingar rífast um stígana vegna Covid: „Verst þykir mér hjólafólk“

Selfyssingar rífast um stígana vegna Covid: „Verst þykir mér hjólafólk“

Sel­fyss­ingar virð­ast ekki vera nógu góðir í að taka til­lit til hvers ann­ars á úti­vist­ar­stígum bæj­ar­ins. Vegna Covid-19 hafa íbúar áhyggjur af smitum á stíg­unum. Verstir þykja hjólareiða­menn í bænum.

Sigurður nokkur hefur umræðu þessa efnis í íbúa­grúbbu Sel­fyss­inga á Facebook. Þar birtir hann líka mynd til leið­bein­ingar fyrir íbúa hvenig ætti að umgang­ast stíg­ana. „Nú í kovid tíma­bil­inu höfum við verið hvött til að hreifa okkur í opin­beru rými enda nóg af góðum göngu­stígum t.d. hér á Selfossi. Hægt að halda góðu milli­bili við fólk sem maður mætir. Þetta hef ég gert eftir bestu sam­visku á ýmsum tímum dags­ins. En ekki eru allir klárir á því hvoru megin þeir eiga að halda sig á gang­stígnum né hafa hugsun á því að halda bili á milli þegar fólk mæt­ist. Við göngum tvö saman og höfum þá reglu að þegar við mætum fólki gengur annað okkar fyrir aftan til að skapa pláss,“ segir Sigurður og heldur áfram:

„Oft höfum við mætt fólki sem virð­ist ekk­ert hugsa út í þetta né vita hvoru megin það á að vera á göngu­stíg. Börnin hugsa um þetta þau fara í röð eða fara útfyrir gang­braut til að mynda pláss á milli en margir eldri eiga í vand­ræðum með þetta. Um dag­inn mætti ég göngu­hóp, við vikum en þær voru fimm í breið­fylk­ingu og nýttu sitt frelsi til fulls, er ekki alveg óhætt að taka til­lit til þess­ara tíma og skapa pláss. Þetta er ekki illa meint af minni hendi heldur vil ég vekja athygli á því að við vitum ekki hver smitar hvern úti á gang­stíg eða hvort.“

Ásdís er þessu hjart­an­lega sam­mála og segir það ekki aðeins vera göngu­fólk sem þurfi að athuga sinn gang. „Það eru margir sem mega taka þetta til sín en verst þykir mér þegar hjóla­fólk fer skyndi­lega fram úr mér svo til hljóð­laust það fyllir mig óör­yggi og hefur gert það að verkum að ég labba minna en ég þyrfti að gera. HRINGJA BJÖLLU,“ segir Ásdís.

Hildur er á sama máli. „sam­mála þér með hjól­reiða­fólk ekki allt..manni bregður æði oft..lennti akkurat í þessu í morg­unn þegar ég var að labba…,“ segir Hildur.

Guðrún nokkur er á því að við getum öll sýnt meira til­lit. „Hægri umferð gildir jafnt á göngu­stígum sem götum en ég tek undir það sem þú segir, oft séð þetta og eins það sem Ásdís segir hér fyrir ofan. Tökum til­lit, það kostar ekk­ert,“ segir Guðrún.

Jóna biður Sigurð og aðra um að hafa engar áhyggjur. „Þetta er nú bara sjálf­sagðar reglur, sem hafa gilt lengi…. en það er flott að ítreka þær, langar samt að benda á að það er mjög ólik­legt að maður smit­ist af covid af ein­hverjum sem maður mætir á göngu­stíg, nema að þið rek­ist hrein­lega á hvort annað og/eða tak­ist í hendur…,“ segir Jóna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins