„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ástin – geggjun eða hormónaójafnvægi?

Auðvitað viljum við trúa því að hjartað ráði för þegar við hittum ást­ina í lífi okkar en horm­ónar spila þar víst stórt hlut­verk. Samkvæmt líf­fræði­rann­sóknum er það að verða ást­fang­inn líf­eðl­is­fræði­lega mjög svipað því og að veikj­ast af geð­sjúk­dómi.

Sjúk­dómar eins og t.d. áráttu- og þrá­hyggjuröskun eru taldir orsakast af ójafn­vægi á ser­atónín­magni lík­am­ans og hafa rann­sak­endur fundið út að bæði þeir sem þjást af þrá­hyggju og ást­fangið fólk hafi lágt ser­atónín­magn eða um 40 pró­sent lægra en telst eðli­legt.

Skýringu þess að þessi mikli ást­ar­brími rennur af okkur með tím­anum gæti verið að finna í starf­semi heil­ans og hvernig hann bregst við dópamíni sem fylgir ástríð­unni og fyllir okkur vellíðan. Í réttum hlut­föllum eykur dópamín orku og vellíðan og hjálpar til við ein­beit­ingu. Það er ástæða þess að þegar þú ert nýorðin/n ást­fangin/n get­urðu vakað allar nætur, skokkað upp um fjöll og firn­indi og nýtt hæfi­leika þína til hins ýtrasta. Ástin gerir þig hug­rakk­ari og hress­ari og gerir það að verkum að þú tekur meiri áhættu.

Ef þetta horm­óna­ó­jafn­vægi ást­ar­innar sem lík­ist hvað helst geð­sjúk­dómi myndi halda áfram yrðum við án efa fyrir sál­rænum skaða. Svo ekki sé minnst á praktísku vanda­málin sem kæmu upp þegar þú drægist aftur úr í vinn­unni, svæfir ekki nóg og fylgd­ist ekki með klukk­unni. Að öllu gríni slepptu þá er þessu tíma­bili tryll­ings­legrar ástar ekki ætlað að end­ast.

En það er engin ástæða til að örvænta þótt þú og ástin þín verðið ekki alltaf svíf­andi um á bleiku skýi alsæl­unnar því svo virð­ist sem ham­ingju­sömum pörum í lang­tíma­sam­bandi hafi tek­ist að færa sig frá ofskammt­inum af dópamíni á fyrstu stigum sam­bands­ins yfir í djúpa teng­ingu sem ræðst fremur af oxýtósíni sem er sælu­örvandi hormón sem eykur á teng­ingu ykkar á milli og sam­kennd. Þetta hormón leys­ist úr læð­ingi við brjósta­gjöf, faðm­lög og kyn­ferð­is­lega full­næg­ingu. Út frá líf­fræði­legu sjón­ar­miði þá eru þau pör sem eru dug­leg að finna leiðir til að auka oxýtósín­magnið hvort hjá öðru lík­legri til að lifa ham­ingju­söm til ævi­loka.

Hvernig getið þið aukið oxýtósín­magnið?
1. Faðmist oftar.
2. Horfið í augu hvort ann­ars þegar þið talið saman eða eruð í ást­ar­at­lotum.
3. Gerið skemmti­lega hluti saman, heim­sækið nýja staði, farið í rækt­ina saman, farið í fall­hlíf­ar­stökk eða í rús­sí­bana.
4. Hlæið saman.
5. Nuddið hvort annað reglu­lega (hvaða lík­ams­hluta sem er).
6. Þegar spenna mynd­ast ykkar á milli, skuluð þið stöðva hana áður en hún stig­magn­ast. Tengist saman lík­am­lega, hald­ist í hendur, faðmist o.s.frv. Andið saman í nokkrar mín­útur og talið svo saman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ástin

Linda Pé opnar sig um ástina og aldursmuninn: „Búin að æfa mig í að dæma minna og elska meira“
Menning

Linda Pé opnar sig um ást­ina og ald­urs­mun­inn: „Búin að æfa mig í að dæma minna og elska meira“

Feg­urð­ar­drottn­ingin og lífstíls­þjálfinn Linda Pét­urs­dóttir opnar sig um sam­band sitt við kærast­ann, hinn spænska Jamie og ald­urs­mun­inn á þeim, í nýjum hlað­varps­þætti. „Mig langar að koma aðeins inn á það hvernig ég hef til dæmis unnið með mitt ást­ar­sam­band og sam­bandið við kærast­ann minn,“ segir Linda í byrjun nýjasta hlað­varps­þáttar síns, Podcast með Lindu Pé en þátt­ur­inn ber heitið Ástin...
Tásumyndir Siggu Daggar setja internetið á hliðina – Nýtur lífsins með eiginmanninum á Ítalíu
Menning

Tásu­myndir Siggu Daggar setja inter­netið á hlið­ina – Nýtur lífs­ins með eig­in­mann­inum á Ítalíu

Sigríður Dögg Arn­ar­dóttir kyn­fræð­ingur og eig­in­maður hennar Sævar Eyj­ólfs­son njóta nú lífs­ins í Ítal­íu­sól­inni en hægt er að fylgj­ast með ferða­lagi þeirra á Instagram. Sigga Dögg er skemmti­lega opinn ein­stak­lingur og deilir ævin­týrum sínum með fylgj­endum sínum á Instagram en nýj­ustu ljós­myndir hennar hafa nán­ast sett inter­netið á hlið­ina. Um er að ræða „skyldu tásu­myndir“ eins og hún orðar það...
„Eitt ár síðan þú pikkaðir mig upp og bauðst mér í smá bíltúr“
Menning

„Eitt ár síðan þú pikk­aðir mig upp og bauðst mér í smá bíltúr“

Óhætt er að full­yrða að allir elska ást en Hafdís Björg Krist­jáns­dóttir og Kristján Einar Sig­ur­björns­son, Kleini, fagna árs sam­bands­af­mæli. Í hjart­næmri færslu á Facebook deilir Hafdís ást­ar­játn­inu með vinum sínum og fylgj­endum. „Ég átt­aði mig á því mjög fljótt hversu mikið þú varst allt sem ég hef þráð svo lengi,“ segir Hafdís í færsl­unni og segir Kleina rífa upp...
Freyja Haralds er komin með kærasta: „Fal­legi og góði bónd­inn“
Menning

Freyja Haralds er komin með kærasta: „Fal­legi og góði bónd­inn“

Freyja Har­alds­dóttir er komin í sam­band en sá heppni er David Agyenim Boateng og er frá Gana. Smartland segir frá því að dokt­or­snem­inn, bar­áttu­konan fyrir rétt­indum fatl­aðra og fóst­ur­mamman Freyja Har­alds­dóttir, hafi fundið ást­ina og sé komin í sam­band en hún skráði sam­bandið nýlega á Facebook. Kærast­inn heitir Dav­id Agyenim Boa­teng og er frá Gana en hann er nemi við...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu