„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Linda Pé opnar sig um ástina og aldursmuninn: „Búin að æfa mig í að dæma minna og elska meira“

Linda Pé opnar sig um ástina og aldursmuninn: „Búin að æfa mig í að dæma minna og elska meira“
Linda Pé og kærast­inn. Mynd: Instagram-skjáskot

Feg­urð­ar­drottn­ingin og lífstíls­þjálfinn Linda Pét­urs­dóttir opnar sig um sam­band sitt við kærast­ann, hinn spænska Jamie og ald­urs­mun­inn á þeim, í nýjum hlað­varps­þætti.

„Mig langar að koma aðeins inn á það hvernig ég hef til dæmis unnið með mitt ást­ar­sam­band og sam­bandið við kærast­ann minn,“ segir Linda í byrjun nýjasta hlað­varps­þáttar síns, Podcast með Lindu Pé en þátt­ur­inn ber heitið Ástin og ald­urs­munur. Og hún heldur áfram: „Hann er úr öðrum menn­ing­ar­heimi, hann er suð­rænn Spán­verji og svo er hann tölu­vert yngri en ég. Við erum ólík, mjög ólíkar týpur en það hefur bara verið, hvað á ég að segja? Blossinn hjá okkur, til að láta ást­ina okkar að blómstra, við leyfum hvort öðru bara að vera nákvæm­lega eins og við erum og svo komum við bara saman. Við hugsum um þetta, hann sem ein­stak­ling, mig sem ein­stak­ling og svo sam­bandið okkar í raun­inni sem annan ein­stak­ling og reynum að næra það þannig.“

Linda seg­ist hafa ákveðið það frá upp­hafi að hún myndi vinna með huga sinn, enda sé það einmitt það sem hún kenni. Ákvað hún að þegar hún myndi horfða á hann, að hugsa fal­legar hugs­anir um hann. „Mér fannst það sér­stak­lega mik­il­vægt, því við erum svo ólík og það er ald­urs­munur á okkur, að vera með­vituð um þetta. Að fara inn í sam­bandið með opinn huga, for­dóma­laus eins og ég mögu­lega get. Ég er búin að æfa mig í því og æfa mig í að dæma minna og elska meira.“

Segir Linda að það fylgi ýmsar áskor­anir að vera í sam­bandi með ein­hverjum sem er svona ólíkur manni en líka gjafir. „En við höfum gefið hvort öðru rými til að vera nákvæm­lega eins og við erum“.

Síðar í þætt­inum ræðir Linda um ald­urs­for­dóma sem hún segir vera í sam­fé­lag­inu. „Ég hef til dæmis alveg upp­lifað það núna að það hefur komið í fjöl­miðlum fyr­ir­sagnir eins og „Linda og ungir kærast­inn“, eins og það sé sér­stak­lega áhuga­vert að ég eigi yngri kærasta en mér finnst svo gott að koma inn á þetta því í gegnum tíð­ina hef ég yfir­leitt verið með mönnum sem eru eldri en ég og jafn­vel þó nokkuð eldri en ég. Þetta er svona í fyrsta skipti sem ég á yngri kærasta og ég svo sann­ar­lega féll ekki fyrir honum út af aldr­inum hans, við urðum bara ein­fald­lega ást­fangin og ald­ur­inn er ekki eitt­hvað sem ég læt stoppa mig í að lifa mínu drauma lífi. Ég get til dæmis tekið dæmi, bara með barns­föður minn. Ég get alveg sagt það hér að barns­faðir minn er til dæmis 14 árum eldri en ég en það hefur aldrei verið skrifað „Linda og gamli barns­faðir hennar“ eða Linda og gamli kærast­inn“. Segir hún nýja kærast­ann vera 14 árum yngri og að þessi dæmi sem hún hafi gefið, sýni for­dóma, sér­stak­lega gagn­vart konum sem eiga yngri menn.

Hægt er að hlusta á þátt­inn í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ástin

Tásumyndir Siggu Daggar setja internetið á hliðina – Nýtur lífsins með eiginmanninum á Ítalíu
Menning

Tásu­myndir Siggu Daggar setja inter­netið á hlið­ina – Nýtur lífs­ins með eig­in­mann­inum á Ítalíu

Sigríður Dögg Arn­ar­dóttir kyn­fræð­ingur og eig­in­maður hennar Sævar Eyj­ólfs­son njóta nú lífs­ins í Ítal­íu­sól­inni en hægt er að fylgj­ast með ferða­lagi þeirra á Instagram. Sigga Dögg er skemmti­lega opinn ein­stak­lingur og deilir ævin­týrum sínum með fylgj­endum sínum á Instagram en nýj­ustu ljós­myndir hennar hafa nán­ast sett inter­netið á hlið­ina. Um er að ræða „skyldu tásu­myndir“ eins og hún orðar það...
„Eitt ár síðan þú pikkaðir mig upp og bauðst mér í smá bíltúr“
Menning

„Eitt ár síðan þú pikk­aðir mig upp og bauðst mér í smá bíltúr“

Óhætt er að full­yrða að allir elska ást en Hafdís Björg Krist­jáns­dóttir og Kristján Einar Sig­ur­björns­son, Kleini, fagna árs sam­bands­af­mæli. Í hjart­næmri færslu á Facebook deilir Hafdís ást­ar­játn­inu með vinum sínum og fylgj­endum. „Ég átt­aði mig á því mjög fljótt hversu mikið þú varst allt sem ég hef þráð svo lengi,“ segir Hafdís í færsl­unni og segir Kleina rífa upp...
Freyja Haralds er komin með kærasta: „Fal­legi og góði bónd­inn“
Menning

Freyja Haralds er komin með kærasta: „Fal­legi og góði bónd­inn“

Freyja Har­alds­dóttir er komin í sam­band en sá heppni er David Agyenim Boateng og er frá Gana. Smartland segir frá því að dokt­or­snem­inn, bar­áttu­konan fyrir rétt­indum fatl­aðra og fóst­ur­mamman Freyja Har­alds­dóttir, hafi fundið ást­ina og sé komin í sam­band en hún skráði sam­bandið nýlega á Facebook. Kærast­inn heitir Dav­id Agyenim Boa­teng og er frá Gana en hann er nemi við...
Páll Óskar er trúlofaður: „Út með hatrið – Inn með ástina“
Innlentástin

Páll Óskar er trú­lof­aður: „Út með hat­rið – Inn með ást­ina“

Tón­list­ar­mað­ur­inn Páll Óskar Hjálmtýs­son er trú­lof­aður en söngv­ar­inn síkáti greindi áhorf­endum á tón­leikum frá þessu um helg­ina sam­kvæmt mbl.is. Heit­maður Páls er frá Venes­ú­ela og sagði Páll á tón­leik­unum að þetta yrðu fyrstu jólin sem þeir væru saman og hann væri fullur til­hlökk­unar. Páll hefur lengi verið einn af þekk­ustu og fær­ustu tón­list­ar­mönnum Íslands og hefur kennt sig við ást­ina...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza