„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Alvarlegur leki á ritstjórn Fréttablaðsins: Upptaka í umferð og afsökun Jóns ritstjóra „asnaleg“

Alvarlegur leki á ritstjórn Fréttablaðsins: Upptaka í umferð og afsökun Jóns ritstjóra „asnaleg“

Viðar Skjóldal er ein vin­sælasta sam­fé­lags­miðla­stjarna lands­ins. Hann skemmtir fylgj­endum sínum undir nafn­inu Enski og með sinni sér­stöku röddu talar hann um fátt annað en knatt­spyrnu­liðið Liverpool. Í sam­tali við Frosta og Mána í Harma­geddon opnar Víðir sig um árið 2020 og segir að frétt á Hring­braut hafi nán­ast lagt hann að velli and­lega. Í kjöl­farið lak af rit­stjórn Frétta­blaðs­ins, upp­taka af Viðari að ræða við blaða­mann blaðs­ins. Þykir mjög alvar­legt að slíkt hafi gerst. Rit­stjóri Frétta­blaðs­ins hafði sam­band við Viðar sem gefur lítið fyrir útskýr­ingar Jóns Þór­is­sonar og segir sím­talið furðu­legt.

Í frétt Hring­brautar var full­yrt að Viðar hefði end­ur­tekið ónáðað verslun á Bílds­höfða og verið vísað út í fjórtán skipti á einni klukku­stund vegna þess að starfs­menn hafi neitað að ger­ast bak­hjarlar sam­fé­lags­miðla­stjörn­unnar. Viðari hafi að lokum verið skolað burt með háþrýstislöngu og upp­taka og frá­sögn starfs­manna birst á vef Hring­brautar, þar var einnig vitnað í skrif Viðars á sam­fé­lags­miðlum þar sem hann sak­aði starfs­menn bíla­þvotta­stöðv­ar­innar um ýkjur og lygar. Viðari segir að honum hafi brugðið illa er hann sá umfjöllun á vef­síðu Hring­brautar en ábyrgð­ar­maður og rit­stjóri er Jón Þórisson sem jafn­framt stýrir Frétta­blað­inu.

Viðar hringdi í áfalli í Frétta­blaðið en Frétta­blaðið og Hring­braut eru skipuð blaða­mönnum á sömu rit­stjórn og heyra undir rit­stjór­ann Jón Þórisson. Viðar var í ójafn­vægi í sam­tal­inu og tók blaða­maður á rit­stjórn upp sam­talið. Blaða­mað­ur­inn deildi upp­tök­unni með öðrum á rit­stjórn.

Rétt er að geta þess, fyrir þá sem ekki þekkja til að ein allra mik­il­væg­asta regla fjöl­miðla er að halda í heiðri trúnað við við­mæl­endur og eins þá sem hafa sam­band á rit­stjórn. Sá trún­aður var þver­brot­inn í þetta skiptið og lak upp­takan út af rit­stjórn Frétta­blaðs­ins. Hefur hún nú gengið manna á milli á sam­fé­lags­miðlum til að gera að honum gys og er Viðar afar ósáttur við það.

Rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, Jón Þórisson, hafði loks sam­band við Viðar í fyrra­dag. Þá hafði ein­hver utan­að­kom­andi sent upp­tök­una á Frétta­blaðið til að vekja athygli á að upp­takan hefði verið send úr húsi. Þá segir Viðar

„Svo í fyrra­dag hringir í mig rit­stjóri Frétta­blaðs­ins og segir við mig að þeir líta þetta grafal­var­legum augum. Ég spyr bara af hverju ert þú að hringja í mig? Hvað á ég að gera? Þetta sím­tal lak út frá þeim, vænt­an­lega frá ein­hverjum starfs­manni og hann vissi ekki hvort að þetta hefði farið á eitt­hvað flakk. Auðvitað held ég að hann hafi pott­þétt vitað það. Ég hugs­aði það nú strax, það er klárt.“

Máni Pét­urs­son, annar stjórn­andi Harma­geddon tók undir það. Það verður að telj­ast lík­legt að rit­stjóra hafi verið kunn­ugt um lek­ann þar sem upp­takan hefur nú verið á ferð­inni á sam­fé­lags­miðlum í nokkra daga.

„Þetta segir sig sjálft, að hann hefði ekki verið að hringja í mig einu sinni, sein­asta mann­inn sem hefði viljað vita það, ef hann hefði vitað það sjálfur,“ sagði Viðar og Frosti spurði hvort rit­stjór­inn hafi verið skömmustu­legur. Viðar svar­aði þá:

„Já, hann var eig­in­lega alveg eins og asni.“

Viðar kveðst hafa leitað á spít­ala til að meta hvort hann þyrfti á inn­lögn að halda eftir alla þessa reynslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins