„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jóni Baldvin greitt þungt högg: Varð fyrir miklu áfalli í gær

Jóni Baldvin greitt þungt högg: Varð fyrir miklu áfalli í gær
Jón Baldvin Hanni­bals­son

Jón Baldvin Hanni­bals­son, fyrr­ver­andi ráð­herra, sem lagt hefur upp í hvern leið­ang­ur­inn á fætur öðrum til að reyna verj­ast konum sem hafa ásakað hann um alvar­legt kyn­ferð­is­legt ofbeldi, varð fyrir áfalli er Lands­réttur úrskurð­aði að Hér­aðs­dómur Reykja­víkur skuli taka fyrir að nýju frá­vís­un­ar­kröfu Jóns Baldvins. Jón Baldvin hafði von­ast til spænsk lög­gjöf myndi bjarga honum frá ákæru en Carmen Jóhanns­dóttir hafði ásakað Jón Baldvin um kyn­ferð­is­brot og sagði hann hafa káfað á sér í vitna við­ur­vist á heim­ili Jóns og Bryn­dísar á Spáni. Carmen er æsku­vin­kona Aldísar, dóttur Jóns.

Við þing­fest­ingu máls­ins í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur á sínum tíma krafð­ist sendi­herr­ann fyrr­ver­andi að ákærunni yrði vísað frá. Frá­vís­un­ar­krafan byggði á svo­kall­aðri þegn­reglu sem varðar lög­sögu ríkja. Meg­in­inn­tak hennar er að ríkið getur almennt tekið lög­sögu yfir íslenskum rík­is­borg­urum, eða þeim sem búsettir eru á Íslandi, vegna brota sem framin eru erlendis, ef brotið er jafn­framt refsi­vert þar.

Hér­aðs­dómur féllst fyrst á kröfu Jóns Baldvins um að vísa kærunni frá dómi á þeim for­sendum að dóm­stólar hér­lendis hafi ekki lög­sögu í mál­inu.

Þessu fagn­aði Jón Baldin og Bryndís með skrifum á sam­fé­lags­miðlum og víðar. Nú hefur enn eitt áfallið riðið yfir Jón Baldvin á skömmum tíma. Fyrir tæpri viku stigu þrjár nafn­greindar konur, Ragna Björg Björns­dóttir, Sig­ur­björg Jóns­dóttir og Elísabet Sif Helga­dóttir fram í Frétta­blað­inu og lýstu kyn­ferð­is­legri áreitni sem þær sögð­ust hafa orðið vitni að eða verið þolendur hans. Konurnar eiga það sam­eig­in­legt að vera óum­deildar.

Í liðnum Orðrómur hér á síðu Mannlífs segir um umfjöllun Frétta­blaðs­ins:

„Sig­ur­björg var 15 ára nem­andi í Haga­skóla þegar hún segir að Jón Baldvin, kenn­ari hennar, hafi áreitt sig gróf­lega og farið ítrekað á fjörur við sig. Tugir kvenna hafa sömu sögu að segja. Jón Baldvin segir þær ljúga allar. Meðal þeirra sem segj­ast vera fórn­ar­lamb Jóns Baldvins er Aldís Schram, dóttir hans, sem hann er nú í meið­yrða­máli við. Fram­burður kvenn­anna þriggja í Frétta­blað­inu í dag er áfall fyrir Jón Baldvin.“

Nú tæpri vikur síðar fékk Jón Baldvin þær fréttir að Lands­réttur hafi úrskurðað í gær að Hér­aðs­dómur Reykja­víkur skuli taka mál Carmen aftur fyrir. Í úrskurði Lands­réttar segir að þar sem hafi liðið meira en fjórar vikur frá því að munn­legur mál­flutn­ingur um frá­vís­un­ar­kröf­una lauk og þar til úrskurður lá fyrir skulu mál Carmen gegn Jóni Baldvin vera tekið fyrir að nýju. Lands­rétt­ar­dóm­ar­arnir Jón Hösk­ulds­son, Krist­björg Steph­en­sen og Ragn­heiður Harð­ar­dóttir Kváðu upp eft­ir­far­andi úrskurð:

„Lengri tími en fjórar vikur liðu frá munn­legum mál­flutn­ingi um frá­vís­un­ar­kröfu X þar til úrskurður var kveð­inn upp. Þar sem málið var ekki flutt að nýju og ekki mátti ráða að aðilum hefði verið gef­inn kostur á því né að þeir hefðu lýst því yfir að þess gerð­ist ekki þörf og að dóm­ari væri því sam­mála, var hinn kærði úrskurður ómerktur og mál­inu vísað heim í hérað til munn­legs mál­flutn­ings og upp­kvaðn­ingar úrskurðar að nýju.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins