„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Heimilunum enn og aftur fórnað á blóðugu altari verðtryggingarinnar!

Heimilunum enn og aftur fórnað á blóðugu altari verðtryggingarinnar!

Eftir // Vilhjálm Birgisson

Nú liggur fyrir að aðgerða­pakkar vegna COVID til stuðn­ings fyr­ir­tækjum hefur til þessa kostað skatt­greið­endur 80 millj­arða. Ekki gagn­rýni ég stuðn­ing stjórn­valda til að hjálpa fyr­ir­tækjum m.a. við að halda ráðn­ing­ar­sam­bandi við starfs­fólk.

En ég vil rifja upp að í upp­hafi á CVOID far­aldr­inum í fyrra barð­ist ég sem fyrr­ver­andi fyrsti vara­for­seti ASÍ fyrir því að sett yrði þak á neyslu­vísi­töl­una tíma­bundið til að verja heim­ilin fyrir hugs­an­legu verð­bólgu­skoti vegna snar­minnk­andi gjald­eyr­is­inn­streymi vegna ferða­manna sem myndi hafa áhrif á gengi íslensku krón­unnar.

Óþolandi að ætíð séu heim­ilin látin reka á reið­anum

Krafan byggð­ist á að setja þak á neyslu­vísi­töl­una við neðri vik­mörk á verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans sem er 2,5%. Þetta fékk ekki hljóm­grunn hjá stjórn­völdum að verja verð­tryggðar skuldir heim­il­anna. Núna tæpu ári eftir að ég lagði þessa hug­mynd fram hefur verð­bólgan farið úr 2,8% í 4,3% sem er hækkun um 1,5%.

Ef stjórn­völd hefðu nú tekið þátt í að verja heim­ilin fyrir þessu verð­bólgu­skoti þá væru verð­tryggðar skuldir heim­il­anna 32 millj­örðum minni en þær urðu vegna aðgerða­leysis stjórn­valda við að verja heim­ilin.

Það er óþol­andi að ætíð séu heim­ilin látin reka á reið­anum þegar kemur að því að fá stuðn­ing frá rík­is­vald­inu en þegar kemur að því að verja fjár­magnsauð­valdið og fyr­ir­tækin þá stendur ekki á neyð­ar­fundum stjórn­valda, skítt með heim­ilin þeim má fórna enn og aftur á blóð­ugu alt­ari verð­trygg­ing­ar­innar!

Vilhjálmur Birgisson

Höfundur er for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akranes.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins