„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hjólakona sagði Sigrúnu að „fokka sér“ á göngustíg í Elliðaárdalnum: „Algjörlega ömurleg upplifun“

Hjólakona sagði Sigrúnu að „fokka sér“ á göngustíg í Elliðaárdalnum: „Algjörlega ömurleg upplifun“
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd / Skjáskot RÚV.

Sigrún nokkur, íbúi í Breið­holti, segir farir sínar ekki sléttar í sam­skiptum við hjól­reið­ar­konu í Elliða­ár­dalnum í gær. Hún von­ast til þess að við­kom­andi geti fundið aðrar leiðir til útrásasar en að hella sér yfir göngu­fólk með dóna­skap.

Sigrún lýsir reynslu sinni í inni í hópi Breið­hylt­inga á Facebook. „Jæja, það kom að því, nú get ég ekki orða bund­ist. Ég var að ganga með hund­inn minn á mal­bik­aða stígnum í Elliða­ár­dalnum áðan. Gekk lengst til vinstri á stígnum því hjóla­stíg­ur­inn er hægra megin þó að línan sjá­ist ekki all­staðar núna og að sjálf­sögðu er ég alltaf með hund­inn í bandi. Ég reyni að fylgj­ast vel með hjól­reiða­fólki og gái reglu­lega aftur fyrir mig, ég sé hjól­reið­ar­mann nálg­ast mig, ca. 10 metrum fyrir aftan mig og dreg alveg inn bandið á hund­inum og við erum alveg úti í vinstri kanti. Þegar hjól­reið­ar­konan kemur að okkur þá öskrar hún, „viltu passa hel­vítis hund­inn“ ég bað hana að róa sig og þá öskr­aði hún „fokk­aðu þér“ og gaf mér putt­ann,“ segir Sigrún og heldur áfram:

„Ég var aldrei fyrir henni og hún gaf aldrei hljóð­merki þegar hún nálg­að­ist, hún hefur mögu­lega hægt aðeins á sér við að hjóla fram úr okkur og kannski tapa 2 sek­úndum. Þetta var algjör­lega ömur­leg upp­lifun í ann­ars dæma­laust góðum göngutúr. Ég vona svo sann­ar­lega að þessi kona finni sér ein­hverja aðra leið til að fá útrás, hlýtur að eiga eitt­hvað erfitt.“

Fjöl­margir íbúar Breið­holts­ins tjá sig undir færslu Sigrúnar og flestir þeirra for­dæma hegðun hjól­reið­ar­kon­unnar. Lísa er ein þeirra. „Hjól­reiða­fólk er ógeðs­lega frekt. Finnst mér,“ segir Lísa.

Már skilur ekk­ert í þess­ari hegðun. „Magnað hvað fólk getur látið fara í taug­arnar á sér. Kanski var hún aldrei föðmuð sem barn,“ segir Már.

Aðal­heiður segir að hjól­reiða­menn hafi eyði­lagt úti­vist­ar­svæðið í Elliða­ár­dalnum. „Ég er hætt að fara þarna með hund­inn minn aðal­lega út af hjól­reiða­fólki. nýt þess að vera ann­ars­staðar í friði og ró,“ segir Aðal­heiður.

Ragn­hildur vill að tekið sé á mál­unum. „Það væri nú gott ef hjól­reiðar væru bann­aðar í dalnum okkar,“ segir Ragn­hildur.

Hjörtur segir svona fram­komu ekki í boði. „Upp til hópa erum við hjól­reiða­menn ágætis fólk sem er kurt­eist og orð­prútt. Það er því miður þetta 1% eins og hjá öðrum hópum sam­fé­lags­ins sem að þarf aðeins að bæta sam­skipta­hæfni sína og takast á við innri reiði,“ segir Hjörtur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins