Hetjurnar í framlínunni tókust á við fjölmörg verkefni síðasta sólarhringinn á meðan flestir höfuðborgarbúar nutu þess að vera í fríi. Sjúkraflutningamenn voru boðaðir í sjötíu og tvo sjúkraflutninga og voru 24 þeirra forgangsverkefni. Þá þurfti að flytja tvo í snatri á spítala vegna COVID-19.
Dælubílar slökkviliðsins fóru eina ferð og glöddust þegar í ljós kom að aðeins var um bilaðan reykskynjara að ræða. Enginn eldur var á svæðinu, en íbúar aðeins pirraðir og sumir skelkaðir á hávaðanum sem tækið gaf frá sér.
Þá björguðu sjúkraliðar barni á hetjulegan hátt í morgun og brunuðu á sjúkrabíl til að koma móður og barni til bjargar. Sjúkrabílinn náði ekki á áfangastað með móður og föður því Barninu lá mikið á að komast í heiminn. Í fréttatilkynningu segir:
„Allt gekk vel og faðirinn klippti á naflastrenginn. Farið gætilega .“




















Athugasemdir