„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Svona er veðrið núna hjá John Snorra á K2 – Myndir af vettvangi leitar sem engu hefur skilað

Svona er veðrið núna hjá John Snorra á K2 – Myndir af vettvangi leitar sem engu hefur skilað
Johns Snorri og félagar hans sem lét­ust á K 2.

Ekkert hefur enn sést eða heyrst til John Snorra Sig­ur­jóns­sonar fjalla­kappa og tveggja félaga hans sem týndir eru á hinum mann­skæða fjalli K 2 í Pakistan. Víðtæk leit hers­ins hefur staðið yfir í allan dag en því miður hefur leit til þessa engan árangur borið. Þegar þetta er skrifað er farið að dimma sem draga mun úr leit­ar­mögu­leik­unum.

Gíf­ur­legur kuldi er í fjall­inu sem gerir leit­ina afar erf­iða. Hann mælst nú allt að -75 gráður og hér að neðan má sjá mynd­band sem sýnir erf­iðar veð­ur­að­stæður á K 2 klukkan ríf­lega tíu í morgun.

Græni hring­ur­inn er utan um svæðið sem kall­ast flösku­háls­inn þar sem John Snorri og félagar sáust síð­ast.

Pakist­anski her­inn hefur stýrt umfangs­mik­illi leit á svæð­inu í gær og í dag. Þyrlur hafa verið nýttar við leit­ina ásamt gervi­hnatta­myndum.

Ekkert hefur nú heyrst frá Johns Snorra í rúma tvo sól­ar­hringa. Stað­setn­ing­ar­tæki hans hefur ekki sent frá sér boð síðan fyrir tveimur dögum þegar hann var staddur í ríf­lega 8.000 metra hæð. Leit stendur enn yfir að John Snorra og félögum hans tveimur, þeim Juan Pablo Mohr og Ali Sadpara.

Gríð­ar­lega erf­iðar aðstæður eru á fjall­inu, sem er eitt það mann­skæð­asta í heimi. Allt að 75 stiga frost er á toppnum og vind­kæl­ing. Vonast er til að félag­arnir þrír kom­ist af í þessum hrika­legu aðstæðum. Þeir eru allir þaul­reyndir fjall­göngu­menn og í góð formi. John Snorri er einn allra fremsti fjall­göngu­maður Íslend­inga og hefur sigrað flesta af hæstu tindum heims.

Fjöl­margir víða um heim sitja nú á bæn og með kross­lagða fingur í þeirri von að John Snorri Sig­ur­jóns­son fjalla­garpur og göngu­fé­lagar bjargist ofan af hinu mann­skæða fjalli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins