„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Karitas: „Það var rosalega sárt. Ég missti af því að geta kvatt ömmu mína út af fjandans leik.“

Karitas: „Það var rosalega sárt. Ég missti af því að geta kvatt ömmu mína út af fjandans leik.“

„Ég var að vinna í eld­húsi á með­göng­unni þannig að við lifðum á mat­ar­af­göngum. Við misstum húsið okkar þegar ég var ólétt þannig að við fluttum í bíl­skúr­inn hjá frænku minni. Ég var að drep­ast í bak­inu, sof­andi á dýnu í glugga­lausum bíl­skúr. Þetta gerðum við svo við gætum spilað.“

Þetta segir Karitas Vals­dóttir í afar áhrifa­ríkri sögu á síð­unni Lokum.is. Að baki síð­unni standa Samtök áhuga­fólks um spilafíkn og telja þau spila­kassa tíma­skekkju og að þeir eyði­leggi líf fólks. Fjöl­margar átak­an­legar reynslu­sögur er að finna á síð­unni Lokum.is. Þar er einnig haft eftir Karitas að fíknin sé fljót að vinda uppá sig. Hún er rúm­lega þrí­tug og hefur verið spila­laus í tæp fjögur ár. Hún missti allt vegna fíkn­innar, hjón­bandið, for­ræði yfir börnum og að lokum reyndi hún að fremja sjálfs­morð.

„Spila­kassar voru ákveð­inn flótti. Ég hef gengið í gegnum við­bjóðs­lega hluti. Ég var mis­notuð, mér var nauðgað, þannig að ég var mjög reið sem ung­menni. Spila­kassar voru staður þar sem ég gat kom­ist burt frá öllu. Þar sem ég þurfti ekki að hugsa um neitt, star­andi á mask­ínu. Þetta gaf mér frið frá öllu öðru,“ segir Karitas við Lokum.is og undir það síð­asta var engin skemmtun fólgin í að stunda spila­kassa, þetta var aðeins flótti og síðan felu­leikur og kvíði yfir að útvbega pen­inga fyrir næsta spila­skammti.

Karitas og barns­faðir hennar voru bæði spilafíklar. Hún hafði orðið ólétt 17 ára og sór þess eið að hætta að spila þegar barnið kæmi í heim­inn. Karitas sem kveðst aldrei geta fyr­ir­gefið sér að hafa ekki heim­sótt dauð­vona ömmu sína á spít­ala á meðan hún var virkur spilafík­ill. Hún hafði ákveð­inn tímara­mma til að kveðja ömmu sína en fíknin hélt henni í helj­ar­g­reipum og hún gleymdi sér í köss­unum.

„Það var rosa­lega sárt. Ég missti af því að geta kvatt ömmu mína út af fjand­ans leik.“

Karitas upp­lýsir Lokum.is að hún hafi náð níu góðum árum þar sem hún hafði tök á fíkn­inni. Hún gekk í hjóna­band og eign­að­ist tvö börn en varð kæru­laus og hætti að mæta á fundi fyrir spilafíkla.

„Ég féll í fjóra til fimm mán­uði og eyði­lagði hjóna­bandið og hætti að eyða tíma með börn­unum mínum. Ég reyndi að fara eins oft út í spila­kassa og ég gat. Ég vissi að ég myndi tapa öllu, samt gat ég ekki hætt,“ segir Karitas sem að lokum tap­aði öllu sem henni var kær­ast. Í dag hefur Karitas náð tökum á fíkn­inni og vonar að þeim verði lokað til fram­búðar.

Ítarlegt við­tal við Karitas má finna á Lokum.is ásamt fleiri reynslu­sögum um skelfi­leg áhrif spila­kassa sem og annan fróð­leik. Lokum.is má finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins