„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kraftaverkasaga Maríu: Frá Kleppi yfir í fremstu röð – Vill skora heimsmeistara á hólm

Kraftaverkasaga Maríu: Frá Kleppi yfir í fremstu röð – Vill skora heimsmeistara á hólm
María skjá­skot af mynd­skeiði RÚV

María Lúð­víks­dóttir var greind með geð­klofa og árið 2017 var hún inni á Kleppi í lang­tíma­vistun. Hún ákvað að finna sér áhuga­mál sem tengd­ist hreyf­ingu og kraft­lyft­ingar heill­uðu hana. María setti sig í sam­band við þjálf­ar­ann Jens Andra Fylk­is­son og síðan þá hafa ótrú­lega ævin­týri átt sér stað. Fjallað var um sögu Maríu á íþrótta­deild RÚV.

Fyrsta æfingin var erfið og mikið af fólki var í salnum. María segir:

„Ég var að glíma við félags­fælni og fannst fólkið vera svo yfir­þyrm­andi. En svo bara ein­hvern veg­inn kemst maður í gegnum það. Þetta fer frá því að vera ókostur í yfir í það að hjálpa manni. Það er gott að finna stuðn­ing­inn frá fólk­inu. […] Síðan hef ég unnið bug á félags­fælni. Mér líður bara alltaf vel þegar ég kem í Sport­húsið, þá er bara eins og ég sé að koma heim.“

Jens sá fljótt að töggur var í Maríu og kom í ljós að hún var ofboðs­lega sterk. Jens segir:

„Lyft­ing­ar­ár­ang­ur­inn er eitt, en and­legi árang­ur­inn er marg­falt meiri. Þetta er ekk­ert sama konan og gekk hérna inn. Hún er allt öðru vísi í dag. Félags­fælni er ekki til. Hún er bara hérna á pall­inum klukkan fimm með 200 kíló á bak­inu og gargar og gólar og allir að horfa, en henni er bara slétt sama. Hún er bara lang sterk­ust hérna og fólkið horfir á hana og hvetur hana áfram og hún kippir sér ekk­ert upp við það.“

María segir að hún nýti sér kraft­inn úr sjúk­dómnum.

„Þetta er ekki nei­kvætt heldur jákvætt. Þetta er ekki löstur, heldur kostur. Það er kostur að geta notað kraft­inn úr geð­veik­inni  og tekið á því á stöng­inni.“

María tók þátt í Íslands­mót­inu í sept­em­ber síð­ast­liðnum og þá gerð­ist það í fyrsta sinn að tvær konur fóru yfir 500 kíló sam­an­lagt en þá var keppt í hné­beygju, bekk­pressu og rétt­stöðu­lyftu. Þá setti María Íslands­met í bekk­pressu á Reykja­vík­ur­leik­unum. María er hvergi nærri hætt, nú stefnir hún á að keppa við heims­meist­ar­ann sjálfan, Bonicu Brown.

„María á alveg séns í hana. Bara gefa henni smá tíma,“ sagði Jens Andri Fylk­is­son en hér má horfa á mynd­bands­við­tal við Maríu og Jens.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins