„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lára Hanna gáttuð: „Þetta er fullkomlega galið“

Lára Hanna gáttuð: „Þetta er fullkomlega galið“

Þær fregnir að Ísa­fjarð­ar­bær ætli að selja 22 af 26 þjón­ustu­í­búðum sem ætl­aðar eru öldruðum hefur hleypt illu blóði í marga. Í frétt RÚV segir að Ísa­fjarð­ar­bær ætli sér að bæta skulda­stöðu sína en um leið á að nýta það fjár­magn sem fæst fyrir íbúð­irnar til að byggja nýtt knatt­spyrnu­hús í bænum. Umræddar íbúðir á Hlíf eru þjón­ustu­í­búðir.

Í bréfi sem barst íbúum nýverið kemur fram að leit­ast verði við að sölu­ferlið hafi sem minnst áhrif á íbú­ana. Bæj­ar­stjóri Ísa­fjarðar, Birgir Gunn­ars­son, heldur fram að í sölu­ferl­inu verði reynt að semja við einn kaup­anda sem væri til­bú­inn til þess að kaupa íbúð­irnar en hafa um leið hags­muni gamla fólks­ins í huga.

Birgir segir að ákveðið hafi verið að selja íbúð­irnar sökum þess að fjár­hags­staða bæj­ar­ins hafi versnað á tímum COVID. Þá á að nýta það fjár­magn sem fæst með söl­unni til að byggja knatt­spyrnu­hús. Þá var Birgir spurður hvort honum þætti það ekki skjóta skökku við að selja íbúðir eldri borg­ara, kvarta undan skulda­stöðu en byggja engu að síður íþrótta­hús fyrir and­virðið.

„Nei, ég sé þetta alls ekki skjóta skökku við,“ svar­aði Birgir.

Bæj­ar­stjórn Ísa­fjarðar er harð­lega gagn­rýnd víða á sam­fé­lags­miðlum. Ein þeirra sem rís upp, heldra fólki til varnar, er þjóð­fé­lags­rýn­ir­inn Lára Hanna Ein­ars­dóttir. Er hún gáttuð á að stefnt sé að selja þjón­ustu­í­búð­irnar vegna slæmrar skulda­stöðu en eyða um leið hálfum millj­arði í íþrótta­hús.

„Allir vita, eða ættu að vita, að svona einka­væð­ing hefur aldrei neitt gott í för með sér. Þjónusta versnar, kostn­aður eykst,“ segir Lára Hanna og heldur áfram:

„Mig grunar að eldri borg­ar­arnir í þjón­ustu­í­búð­unum hafi marg­vís­legar sögur að segja um fram­lag sitt til sam­fé­lags­ins í gegnum tíð­ina. Leyfum þeim að lifa í friði og öryggi síð­ustu ævi­árin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins