„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gaui litli á sjúkrahúsi og sendir neyðarkall: Leitar á náðir Íslendinga – Mikið liggur við

Gaui litli á sjúkrahúsi og sendir neyðarkall: Leitar á náðir Íslendinga – Mikið liggur við

Guðjón Sig­munds­son, betur þekktur sem Gaui litli, liggur nú á sjúkra­húsi og verður frá vinnu næstu mán­uði. Hann slas­að­ist alvar­lega fyrir rúmri viku þegar hann datt illa með þeim afleið­ingum að hann lær­brotn­aði. Gaui litli hefur rekið Her­náms­setrið í Hval­firði með miklum mynd­ar­brag en verður frá vinnu næstu mán­uði. Hann sendi út neyð­ar­kall á Facebook-síðu sinni og óskar eftir aðstoð Íslend­inga, vina, fjöl­skyldu og vel­unn­ara til að koma Her­náms­setr­inu í stand fyrir vorið. Kræs­ingar, drykkir, matur og sæta­brauð og góður félags­skapur verður í boði fyrir sjálf­boða­liða.

„Ég er núna á sjúkra­húsi og á ágætis bata­vegi. Ég sé fram á að vera frá vegna þessa næstu mán­uði og mun ekki getað stundað neina lík­am­lega vinnu,“ segir Gaui litli og það er í mörg horn að líta og ýmis verk­efni sem bíða, stór og smá.

„Það þarf til dæmis að smíða, mála, teppa­leggja, dúk­leggja, park­et­leggja, föndra, stilla fram munum og hengja upp, sjá um að útbúa og fram­reiða hress­ingu, þrífa jafn­óðum og svo alls­herjar þrif í lokin,“ segir Gaui litli.

Áformað er að skipu­leggja vinnu­daga t.d. á laug­ar­dögum og þá ráð­ast í verk­efnin sem bíða.

Aðstoð við lítil sem stór verk­efni er tekið fagn­andi.

„Við munum hafa á boðstólum hress­ingu, mat, drykk og sæta­brauð, auk þess að hafa gaman saman,“ segir Gaui litli og kveðst þakk­látur fyrir góðar kveðjur og hug­ul­semi landa sinna.

Í sam­tali við Mannlíf kveðst Gaui litli vilja koma á fram­færi sér­stöku þakk­læti til heil­brigð­is­starfs­fólks á sjúkra­hús­inu á Akranesi. Þau hafi hjálpað honum mikið og stutt dyggi­lega við bakið á honum frá því að hann lagð­ist inn á sjúkra­húsið.

„Það er mjög vel hugsað um mig hér sem hraðar öllu bata­ferl­inu,“ bætir Gaui við um starfs­fólkið á sjúkra­hús­inu.

„Ég og vil endi­lega gefa öllum sem vilja kost á að taka þátt í þess­ari vinnu með okkur,“ bætir hann við en hægt er að hafa sam­band við Gaua litla á Facebook-síðu hans eða í gegnum spjallið á sam­fé­lags­miðl­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins