„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þrír fyrrverandi borgarstjórar minnast gleðigjafans í eldhúsinu: Fallegur í öllum samskiptum

Þrír fyrrverandi borgarstjórar minnast gleðigjafans í eldhúsinu: Fallegur í öllum samskiptum

Snorri Stein­þórs­son mat­reiðslu­maður fædd­ist í Reykja­vík þann 27. maí 1951. Hann lést þann 2. febr­úar 2021. Snorri starf­aði sem kokkur um ára­bil í Ráðhúsi Reykja­víkur. Snorri kvænt­ist árið 1973 Jónu Helgu Jóns­dóttur og eign­uð­ust þau dótt­ur­ina Dröfn Rozas en hún starfar við kvik­mynda­gerð í Los Angeles og á Íslandi.

Snorri er lýst sem manni sem alltaf var með bros á vör og blik í auga. Þá tjá þrír fyrr­ver­andi borg­ar­stjórar sig um glað­væra kokk­inn í borg­inni sem lagði sig fal­lega fram í öllum störfum og sam­skiptum.

Snorri hóf nám í mat­reiðslu árið 1968 og kom víða við á far­sælum ferli. Árið 1985 var Snorri ráð­inn for­stöðu­maður mötu­neytis borg­ar­skrif­stof­anna. Vann Snorri þar til starfs­loka 2016. Þá gegndi hann ýmsum marg­hátt­uðum trún­að­ar­störfum fyrir Oddfellow stúk­una og þar með talið sem yfir­meist­ari hennar.

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri á árunum 1994 til 2003 fyrir Sam­fylk­ing­una birti fal­leg skrif á Facebook, þar sem hún minn­ist Snorra, bæði sem starfs­manns en fyrst og fremst vinar sem sá til þess að fólk fengi einnig and­lega nær­ingu líka. Ingi­björg segir:

„Snorri kom til starfa í Aust­ur­stræt­inu fljót­lega eftir að ég var kosin í borg­ar­stjórn og tók­ust þá strax með okkur góð kynni. Samstarf okkur varð svo enn meira þegar ég var borg­ar­stjóri á árunum 1994-2003. Hann var glað­beittur og upp­örvandi og góður félagi í hópi starfs­manna Ráð­húss­ins.“

Ingi­björg lýsir Snorra sem glað­lyndum kokki sem hafi verið ein­stak­lega geð­góður.

„Í lífi Snorra voru tvær konur sem hann mat öllum öðrum meira og það voru þær Helga kona hans og svo Dröfn dóttir hans sem var að snigl­ast í kringum hann í eld­hús­inu frá unga aldri. Þær hafa misst mikið en eiga góðan sjóð minn­inga til að ganga í. Ég sendi þeim mínar inni­leg­ustu sam­úð­ar­kveðjur,“ segir Ingi­björg.

Steinunn Valdís Ósk­ars­dóttir var borg­ar­stjóri árin 2004 til 2006. Hún segir um Snorra:

„Snorri var ein­stakt gæða­blóð. Síðast þegar við hitt­umst í útför Gunnu Ö minnti hann mig á að hann skírði sam­loku í höf­uðið á mér „Steinunn Valdís“ – sér­stak­lega gerð fyrir þig, sagði hann og brosti blítt.“

„Augljóst hvað skipti mestu í hans lífi, ham­ingju og gleði“

Hanna Birna Krist­jándóttir var borg­ar­full­trúi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn frá 2002 til 2013. Þá gegndi hún emb­ætti borg­ar­stjóra í tvö ár, frá 2008 til 2010. Hanna Birna segir Snorra hafa verið ein­stakan, ljúfan og glað­lyndan. Hann hafi verið vand­aður maður sem lagði sig fal­lega fram í öllum störfum og sam­skiptum. Hann Birna segir:

„Það var alltaf upp­örvandi og ánægju­legt að hitta hann í Ráð­hús­inu og iðu­lega barst þá talið að fjöl­skyldu hans, konu og dóttur, sem hann ræddi um af svo miklum kær­leika og hlýju að það var aug­ljóst hvað skipti mestu í hans lífi, ham­ingju og gleði. Inni­legar sam­úð­ar­kveðjur til allra sem þekktu og sakna þessa góða manns“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins