„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Edda Björgvins brjáluð: „Hvað í andsk […] Það vill svo til að ég VEIT um öll bréfin“

Edda Björgvins brjáluð: „Hvað í andsk […] Það vill svo til að ég VEIT um öll bréfin“

„Hvað í andsk…. á það að þýða að koma svona fram við okkar elsta og við­kvæm­asta fólk!!!!??’???“

Þannig hefst mik­ill reiði­lestur stór­leikkon­unnar, Eddu Björg­vins­dóttir á sam­fé­lags­miðlum. Edda réð sig til starfa á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Lundur á Hellu á síð­asta ári til að láta gott af sér leiða í far­aldr­inum og eins til að geta verið nær föður sínum. Lundur er ein­stakt kær­leiks­heim­ili að mati leikkon­unnar.En nú er hætta á ferðum og stefnir í að loka verði heim­il­inu vegna Sjúkra­trygg­inga Íslands. Margrét Ýrr Sig­ur­geirs­dóttir sem stýrir heim­il­inu á Hellu segir heim­ilið aldrei hafa verið jafn illa sett fjár­hags­lega og bætti við:

„Ég er sjálf búin á því.“

Margrét hefur neyðst til að segja upp fólki þar sem Sjúkra­trygg­ingar draga lapp­irnar. Gæti farið svo að hún þyrfti að skila lyklunum og loka. Það sýður á Eddu sem er afar ósátt við að ekki sé hugsað betur til heldra fólks á Íslandi. Þá sakar hún for­stjóra sjúkra­trygg­inga um að fara með fleipur. Þá sé það kjaftæði að gögn vanti en stofn­unin velji að hundsa tölvu­pósta og önnur erindi svo heim­ilið er í hættu.

„Hvernig voga æðstu valda­menn og konur hjá Sjúkra­trygg­ingum Íslands að hundsa öll erindi frá þessum hjúkr­un­ar­heim­ilum? Það vill svo til að ég VEIT um öll bréfin og fyr­ir­spurn­irnar frá þessu til­tekna hjúkr­un­ar­heim­ili á Hellu – fyr­ir­spurnir um stöðu á leið­rétt­ingu svika Sjúkra­trygg­inga Íslands, alveg frá því í jan­úar í fyrra. Erindum sem er enn ósvarað. Í rúmt ár!“

Þá segir hún Sjúkra­trygg­ingar ekki svara fyr­ir­spurnum. Þögnin sé algjör. Edda segir:

„Og svo þótta­full vörn þegar fjöl­miðlar loks­ins upp­lýsa um rudda­skap þess­arar opin­beru stofn­unar:

„Við höfum ekki fengið öll gögn … bla­blabla.“

Hvaða gögn vantar? Frá hverjum? Er ofverk stjórn­enda Sjúkra­trygg­inga Íslands að svara þeim sem eru í for­svari fyrir hjúkr­un­ar­heim­ilin? Er það til of mikil mælst?“

Edda spyr einnig hvað stjórn­endur sjúkra­trygg­inga ætli að pína hjúkr­un­ar­heim­ilin lengi.

„Hvað á að neyða stjórn­endur þess­ara heim­ila til að segja upp mörgum starfs­mönnum?

Hvenær er gamla fólkið okkar hrein­lega í hættu vegna þess að það er ekki hægt að greiða hjúkr­un­ar­fólki laun?“ spyr Edda og lýkur sínum reiði­lestri svona:

„Ég er brjáluð!“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins