„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landslið íslenskra malbikara heldur til Úganda: „Frábært að fá svona yfir harðasta veturinn“

Landslið íslenskra malbikara heldur til Úganda: „Frábært að fá svona yfir harðasta veturinn“
Landslið Íslenskra mal­bik­ara, Krist­ó­fer Valdi Snorra­son, Valdimar Björns­son, Stefán Már Guð­munds­son, Halldór Þór Hall­dórs­son, Ingvar Torfason og Kristján Þór Björns­son héldu af landi brott í gær áleiðis til Úganda. Mynd: Guðmundur Sigurðsson

„Þetta verður spenn­andi verk­efni, við erum sex sem erum að fara héðan frá Íslandi til að aðstoða menn í Úganda við að mal­bika alþjóða­flug­völl í vest­an­verðu land­inu,“ segir Stefán Már Guð­munds­son yfir­verk­stjóri hjá Colas á Íslandi sem er eitt helsta mal­bik­un­ar­fyr­ir­tæki á lands­ins. Íslend­ing­arnir munu sinna ráð­gjafa­störfum auk þess að hafa eft­ir­lit með fram­kvæmd­inni. Kabaale international air­port er nýr flug­völlur nærri landa­mærum Úganda við Kongó. Fundist hefur olía á svæð­inu og því verið að gera stóran flug­völl fyrir fólk og frakt.

Stefán Már Guð­munds­son yfir­verk­stjóri hjá Colas á Íslandi sem nú heldur svell­kaldur á vit hita­belt­is­ins.

Víkingaflokkurinn fenginn í verkið

„Colas í Bret­landi er með verkið en vant­aði menn sem væru til í þetta ævin­týri, hefðu þekk­ingu, getu og væru til í allt. Lars Jensen frá Colas í Danmörku starf­aði með okkur hérna á Íslandi um tíma, meðal ann­ars þegar við mal­bik­uðum alþjóða­flug­völl­inn í Keflavík. Hann lagði til að vík­inga­flokk­ur­inn frá Íslandi yrði feng­inn í þetta, áður hafði hann fengið okkur til að hlaupa undir bagga með sér í Danmörku þannig að hann veit vel hvað við getum gert. Svo má ekki gleyma að við mal­bik­uðum flug­völl­inn í Paamiut í Græn­landi. Þannig að við erum ýmsu vanir við alls­konar aðstæður. Það er líka frá­bært fyrir okkur að fá svona verk­efni yfir harð­asta vet­ur­inn á meðan við höfum nær ekk­ert að gera hérna heima enda mal­bikun bara sum­ar­vinna, nema auð­vitað við mið­baug­inn. Þetta er fyrst og fremst útflutn­ingur á þekk­ingu,“ segir Stefán Már fullur til­hlökk­unar að takast á við mið­baugsmal­bikun í Afríku.

Ys og þys við flug­vallamal­bikun í Keflavík

Munum njóta miðbaugssólarinnar

Áætlað er að Íslenski ráð­gjafa­flokk­ur­inn frá Colas verði mánuð í Úganda en Stefán segir það geta brugðið til beggja vona eins og oft er með fram­kvæmdir. „Við klárum okkar verk­efni vel á fjórum vikum en það er háð því að flug­völl­ur­inn verði kom­inn og til­bú­inn fyrir mal­bik,“ segir þessi bjarti og skemmti­legi mal­bik­ari sem hlakkar til mið­baugs­sól­ar­innar laus við að skafa rúður á frostköldum morgnum heima á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins