„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Flýja út á land vegna morðsins við Rauðagerði: Hver er íslenski karlmaðurinn sem leitað er að?

Flýja út á land vegna morðsins við Rauðagerði: Hver er íslenski karlmaðurinn sem leitað er að?

Lög­reglan leitar að Íslend­ingi vegna morðs­ins við Rauða­gerði. Rétt fyrir mið­nætti á laug­ar­dag var fer­tugur maður tek­inn af lífi á hrotta­legan og kald­rifj­aðan hátt. Maðurinn var faðir, unnusti og áttu þau von á sínu öðru barni. Maðurinn var nýbú­inn að leggja öku­tæki inni í bíl­skúr og var að ganga að úti­dyr­unum þegar hann var myrtur. Talið er að morð­ing­inn hafi verið far­þegi í bíl er ekið var fram­hjá hús­inu og skotið unga fjöl­skyldu­föð­ur­inn með skamm­byssu, svo hann lést af sárum sínum. Maðurinn var úrskurð­aður lát­inn við kom­una á Land­spít­al­ann.

Karl­maður frá Litháen situr nú í gæslu­varð­haldi en hann var hand­tek­inn í Garðabæ. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hefur lög­reglan íslenskan karl­mann undir smá­sjánni og vill ná af honum tali. Sá er búsettur hér á landi. Þetta kom einnig fram í kvöld­fréttum Stöðvar 2. Hver sá maður er hefur lög­regla ekki viljað gefa upp.

Íslensk þjóð er í áfalli og þá hafa fregnir af hinu kald­rifj­aða morði slegið marga í und­ir­heimunum. Mannlíf hefur heim­ildir fyrir því að nokkur dæmi séu um að fólk tengt hinum hörðu íslensku und­ir­heimum hafi ákveðið að yfir­gefa höf­uð­borg­ina. Menn sem kalla ekki allt ömmu sína í und­ir­heimunum hafa margir aldrei séð nokkuð í lík­ingu við aftök­una við Rauða­gerði. Þó þeir teng­ist mál­inu ekk­ert telja þeir hag sínum betur borgið í sum­ar­bú­stað úti á landi á meðan stærstu skjálft­arnir í und­ir­heimunum ganga yfir og varpað er ljósi á málið. Í hinum ýmsu sauma­klúppum und­ir­heimanna eru flökku­sög­urnar og kjafta­sög­urnar vinn­ing­inn og fáir sem vita í raun og veru hver ástæðan var sem lá að baki. Á meðan telja sumir tengdir und­ir­heimunum að betra sé að halda sig í vari í sveit­inni.

Karl Steinar Valsson, yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, sagði í kvöld­fréttum RÚV að mögu­legt væri að árásin tengd­ist upp­gjöri í und­ir­heimunum. Hann gæti þó alls ekki full­yrt neitt um slíkt. Karl Steinar sagði:

„Sé það hins vegar staðan, að við séum að tala um eitt­hvað slíkt, þá eru það mjög alvar­leg skila­boð og þá verðum við að horfa aðeins til Norð­ur­land­anna þar sem slíkt hefur verið til staðar. Þannig að ég held að við verðum að skoða það mjög vand­lega ef að það verður það sem kemur á dag­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins