„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ragnhildur hittir naglann á höfuðið – MIKILVÆG SKILABOÐ: „Er ekki umræðuefni né aðhlátursefni“

Ragnhildur hittir naglann á höfuðið – MIKILVÆG SKILABOÐ: „Er ekki umræðuefni né aðhlátursefni“

Ragn­hildur Þórð­ar­dóttir heilsu­sér­fræð­ingur segir ekk­ert kommenta­kerfi í boði hér­lendis fyrir óum­beðið álit eða athuga­semdir um lögun og útlit. Hún er með mik­il­væg skila­boð til allra Íslend­inga: „Líkami þinn er ekki TripA­dvisor. Lík­ams­virð­ing á við um öll form lík­am­ans.“

Ragn­hildur, eða Ragga nagli eins og hún er oft­ast kölluð, gerir lík­ams­virð­ingu og net­ein­elti að umtals­efni í nýlegri færslu á Facebook. Þar segir hún:

„Mikið er rætt og ritað um ein­elti meðal barna og ung­linga í athuga­semdum og við full­orðna stellið ættum að leiða með góðu for­dæmi og stuðla að fal­legri orð­ræðu um náung­ann. Nei­kvæðar athuga­semdir um útlit og skrokk­legar umbúðir ann­arra eiga aldrei rétt á sér.

Hvort sem er í ræðu eða riti. Naglinn er með mjög breitt bak þegar kemur að athuga­semdum um vöðva enda skil­greinir Naglinn ekki virði sitt sem mann­eskju útfrá skrokk­legri holln­ingu. Samþykki og við­ur­kenn­ing ann­arra er ekki nauð­syn­legt til að Naglinn hvíli sátt í lík­ama sínum,“ segir Ragga og heldur áfram:

„Skoðun einnar mann­eskju á lík­ama þínum þarf ekki að verða að þínum sann­leik. Því það er bara skoðun, og yfir­leitt er við­kom­andi að berj­ast við óör­yggi og óánægju í eigin skinni sem þarf að fleyta út í kosmósið með nei­kvæðu álit á lík­ama þínum. Ef ákveðin lík­ams­bygg­ing passar ekki inn í skemað um hvað sé ásætt­an­leg sjón fyrir augu mann­kyns, er gott ráð að draga djúpt and­ann, standa upp frá tölv­unni og íhuga hvort það sem á að hamra á lykla­borðið séu orð sem væru látin falla and­spænis mann­eskj­unni.“

Ragn­hildur segir allt of margar teg­undir af lík­ams­smán­unum í umferð á sam­fé­lags­miðl­unum. Allar gerðir hennar séu bæði lít­il­lækk­andi og nið­ur­lægj­andi sem geti á end­anum reynst hættu­legt. „Lík­ams­smánun er ljóður á ráði hvers og eins. Lík­ams­smánun lækkar sjálfs­traustið, mölvar sjálfs­mynd­ina og getur leitt til a kvíða og dep­urðar. Ekki síst eru nei­kvæðar athuga­semdir um lík­am­legt útliti mjög stór orsaka­þáttur í óheil­brigðu sam­bandi við mat.Hræðsla við hverja kaloríu. Streita í kringum taln­ingar á kol­vetna­grömmum. Kvíði fyrir veislu­höldum. Óánægja í eigin skinni“, segir Ragn­hildur og bætir við:

„Líkamar eru ekki umræðu­efni né aðhlát­ursefni. Setjum öðru fólki mörk og látum vita með stað­festu að við kærum okkur ekki um að lík­ami okkar, sé umræðu­efni. Við höfum meira að bjóða heim­inum en rass og maga og and­lit. Við höfum of mikið að gera í líf­inu til að leyfa krepptum tám og krull­aðri efri­vör að stýra sjálfs­virð­ingu okkar.“

Dæmi um mik­il­væg skila­boð Ragn­hildar um lík­ams­smánun:

  • „Ekki fal­legt að vera svona mössuð“ er vöðva­smánun.
  • „Jeminn þú ert alltof grönn“ er mjón­usmánun.
  • „Helv…er kjell­inn að bæta á bumb­una“ er fitu­smánun.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins