„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þá brotnaði harði naglinn frá Akureyri og tárin flæddu: „Ég fór að gráta með foreldrunum“

Þá brotnaði harði naglinn frá Akureyri og tárin flæddu: „Ég fór að gráta með foreldrunum“

„Sjáðu hvað þetta er fal­legt, geislar sól­ar­innar tvístr­ast og end­ur­kast­ast af gólf­inu,“ sagði mynd­list­ar­kona við Jón Óðinn Waage júd­ó­þjálf­ara og pistla­höf­und. Þau voru bæði gestir á hót­eli og í mögn­uðum pistli lýsir harð­jaxl­inn Jón Óðinn hvernig eitt lítið augna­blik hafði gríð­ar­leg áhrif á líf hans.

En Jón Óðinn sá enga feg­urð og önugur benti hann mynd­list­ar­kon­unni á að þetta væri aðeins ómerki­leg sprungin rúða og gólfið væri bara óhreint.

„Já“, svar­aði konan. „Það er einmitt það sem býr til feg­urð­ina“.

Jón Óðinn gekk út og þegar hann sneri sér örstutt við kom hann auga á mynd­list­ar­kon­una sem enn horfði hug­fangin á „eitt­hvað sem Jón gat engan veg­inn komið auga á.“

Þá fyllt­ist hann sam­visku­biti fyrir að hafa verið nei­kvæður og hafa aðeins getað séð það ljóta á meðan konan sá ólýs­an­lega feg­urð.

„Þetta sat í mér lengi, mig lang­aði í þessa gleði sem mynd­list­ar­konan upp­lifði. En það var sama hvað ég reyndi, ég fann aldrei feg­urð­ina, bara það sem var að,“ segir Jón Óðinn og heldur áfram:

Jón Óðinn Waage

„Nokkru seinna var ég sem þjálf­ari á fót­bolta­móti 6 til 7 ára. Einn af mínum drengjum meiddi sig og fór að gráta. Ég var strangur þjálf­ari, harður nagli sem þoldi ekk­ert væl og kenndi börnum það að harka af sér. Hug­hreyst­ing mín fólst í að skipa drengnum að harka af sér,“ lýsir Jón Óðinn en það virk­aði ekki. Dreng­ur­inn vildi aðeins fá að fara til for­eldra sinna sem voru að fylgj­ast með leiknum. Eftir að hafa fylgt drengnum til þeirra hélt leik­ur­inn áfram. Við gefum Jóni orðið:

„Skömmu seinna var togað laust í stakk­inn minn, ég leit við og horfði framan í grát­bólgið and­lit drengs­ins. Hann sagði skjálf­andi röddu:

„Ég er til­bú­inn núna“,

Ég sendi hann inn á völl­inn. Þetta var prúður drengur, einn af þeim sem vildi alltaf leyfa hinum að hafa bolt­ann, vildi ekk­ert vera fyrir.

Nú brá svo við að hann hljóp út um allt og barð­ist um alla bolta. Eftir hvern sprett leit hann stoltur upp í brekk­una þar sem for­eldrar hans stóðu.

Ég leit á þau, þetta voru ungir for­eldrar, hann var þeirra eina barn. Þarna stóðu þau og héldu utan um hvort annað, tárin runnu niður kinnar þeirra og mættu þar ein­lægu ham­ingju­brosi.

Ég hafði mjög oft upp­lifað svipuð atvik áður, en atvikið með mynd­list­ar­kon­unni hafði kveikt í mér eitt­hvað.

Og nú sá ég loks feg­urð­ina.

Ég fór að gráta með for­eldr­unum. Engin sá það, ég var ennþá harður nagli, bara svo að það sé á hreinu.

Og mynd­list­ar­konan, hún heitir Arna Vals­dóttir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

frægir

Vilja gera klám-heilmynd af Bandarískri fótboltastjörnu
Heimurfrægir

Vilja gera klám-heil­mynd af Banda­rískri fót­bolta­stjörnu

Í síð­asta mán­uði var Tyreek Hill, sem leikur með Miami Dolphins í NFL deild banda­ríska fót­bolt­ans, að streyma á Twitch en þar lét hann hafa það eftir sér í sam­tali við annan leik­mann deild­ar­innar, Mike Evans, að eftir að íþrótta­ferli hans lyki ætl­aði hann lóð­beint í klámið. „Nei, þegar ég hætti langar mig virki­lega að verða klám­stjarna, bróðir. Mér er...
Dr. Quinn spókar sig á Íslandi: Jane Seymour mætti til landsins rétt áður en gosið hófst – MYNDIR
Menning

Dr. Quinn spókar sig á Íslandi: Jane Seymour mætti til lands­ins rétt áður en gosið hófst – MYNDIR

Mynd / Facebook Enska leik­konan og Bond stúlkan Jane Seymour er stödd á Íslandi. Hún prýddi lengi skjá lands­manna undir lok síð­ustu aldar þar sem hún lék lækn­inn Dr. Quinn í vestra­dramanu “Dr. Quinn, Medicine Woman”. Samkvæmt Facebook lenti hún hér á landi þann 11. júlí en í fyrstu færslu sinni áréttar hún það við fólk að vera alltaf við­búin...
Jordan segist ósáttur: Sonurinn á í ástarsambandi við fyrrverandi konu Pippen
Heimurfrægir

Jordan seg­ist ósáttur: Sonurinn á í ást­ar­sam­bandi við fyrr­ver­andi konu Pippen

Körfu­bolta­stjarnan Michael Jordan er ekki sáttur við sam­band sonar síns við fyrr­ver­andi eig­in­konu fyrrum liðs­fé­laga hans, Scottie Pippen. Jordan var spurður út í sam­bandið þegar hann var að yfir­gefa veit­inga­stað í París á sunnu­dag. Í fyrstu hristi hann bara höf­uðið og hló en sagði svo að lokum þvert nei. Þetta kemur fram á TMZ. Larsa Pippen og Marcus Jordan hafa...
Jaden Smith segir að mamma hans, Jada Pinkett Smith, hafi kynnt sig fyrir ofskynjunarlyfjum
Heimurfrægir

Jaden Smith segir að mamma hans, Jada Pinkett Smith, hafi kynnt sig fyrir ofskynj­un­ar­lyfjum

Í umfjöllun á E-News er haft eftir Jaden Smith að það hafi verið móðir hans, Jada Pinkett Smith, sem kynnti bæði hann og allri fjöl­skyld­unni fyrir ofskynj­un­ar­lyfjum. „Ég held að það hafi verið mamma, í raun­inni, sam var fyrst í fjöl­skyld­unni til að stíga skrefið. Þetta [ofsynj­un­ar­lyfin] var rosa mikið hún í virki­lega langan tíma og að lokum síað­ist þetta...
Twitter-aðgangi Jordan Peterson lokað: „Hann mun aldrei eyða færslunni“
Menning

Twitter-aðgangi Jordan Peterson lokað: „Hann mun aldrei eyða færsl­unni“

Samkvæmt New York Post hefur Twitter-aðgangi Jordan Peterson, sál­fræð­ings, verið lokað. Sam­fé­lags­mið­ill­inn Twitter lok­aði aðgangi Jordans vegna hat­ur­orð­ræðu og dauð­nefn­ingar (dea­dname). Skjáskot hefur birst af umræddri færslu sál­fræð­ings­ins en í henni stóð: „Remember when pride was a sin? And Ellen Page just had her bre­asts removed by a criminal physician.“ En þýð­ing af færslu Jordans væri: „Manstu þegar stoltið/pride var...
Travis Barker fluttur á sjúkrahús: „Vinsamlegast sendið bænir ykkar“
Menning

Travis Barker fluttur á sjúkra­hús: „Vin­sam­leg­ast sendið bænir ykkar“

Tón­list­ar­mað­ur­inn Travis Barker var fluttur á sjúkra­hús í gær. Eig­in­kona hans, Kourtney Kar­dashian, var honum við hlið og dóttir hans hefur beðið fólk um að biðja fyrir pabba sínum. Enn er ekki vitað hvað amar að Barker, en hann leit­aði lækn­is­að­stoðar í gær­morgun á sjúkra­húsi í Los Angeles. Ástand hans var ber­sýni­lega metið það alvar­legt að stuttu síðar var hann...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins