„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ragnar birtir sláandi upplýsingar: Mannseðlið, með sinni hömlulausu græðgi, ekkert breyst frá 2007

Ragnar birtir sláandi upplýsingar: Mannseðlið, með sinni hömlulausu græðgi, ekkert breyst frá 2007

Veitu­stofn­anir, raf­magn, kalt og heitt vatn, sími og fleira eiga að vera í eigu rík­is­sjóðs, sveit­ar­fé­laga eða líf­eyr­is­sjóða. Í höndum einka­að­ila geta þeir hest­húsað mik­inn gróða með smá­vægi­legum verð­breyt­ingum. Nú þegar kaupa Íslend­ingar orku og neyslu­vatn af fjár­festum í einka­sölu­að­stöðu. Ef illa fer, þarf ríkið alltaf að hlaupa undir bagga og nýta til þess skatt­pen­inga. Þetta er ein ástæða þess að ríkið mun alltaf þurfa að vera bak­hjarl banka, beint ef illa fer og óbeint með lög­gjöf og eft­ir­liti til að stuðla að því að svo fari ekki.

Þetta segir Ragnar Önund­ar­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri, sem þekkir vel til í íslensku fjár­mála­kerfi. Ragnar setur þetta í sam­hengi við fyr­ir­hug­aða og umdeilda sölu Íslands­banka. Ragnar biður fólk um að vera ekki auð­trúa né hlusta á fag­ur­gala um frjálsa sam­keppni.

„,,Fjár­festar” vilja ekk­ert fremur en fá að hafa ,,ann­arra manna fé” umleikis. Verum ekki auð­trúa og hrekk­laus, efumst þegar við heyrum fag­ur­gal­ann um ,,frjálsa sam­keppni og mark­aði, frjálst fram­tak og samn­ings­frelsi” o.s.frv. Mann­seðlið, með sinni hömlu­lausu græðgi, hefur ekk­ert breyst síðan 2007,“ segir Ragnar og bætir við:

„Á Íslandi eru þrír bankar alls­ráð­andi, Kvika er svo lít­ill banki að hann nær ekki að veita umtals­verða sam­keppni og starfar þannig í skjóli fákeppn­innar. Risarnir þrír mynda því fákeppn­is­mark­að­inn. Arion er í eigu erlendra vog­un­ar­sjóða, sem eru þró­að­asta form græðginnar í ver­öld­inni.“

Fjár­festar vilja alltaf fákeppni og helst kom­ast í ein­ok­un­ar­stöðu, það sé þeirra para­dís, að mati Ragnars.

„Ef Íslands­banki verður seldur munu vextir og gjald­skrá Arion banka verða við­miðun hans í fákeppn­inni,“ segir Ragnar og bætir við:

„Eftir að Íslands­banki hefur verið færður einka­að­ilum ,,á silf­ur­fati” munu inn­lendir ,,fjár­festar” slást í lið með erlendu vog­un­ar­sjóð­unum og fleyta rjómann ofan af. Silf­ur­skeiðar fara vel við silf­ur­föt, óneit­an­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins