„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hjálp hjálp! Mannslíf í húfi

Hjálp hjálp! Mannslíf í húfi

Sæll Þór, for­maður Lands­bjargar, hjálp hjálp! Mannslíf í húfi

Já, hjálp hjálp, sagði ég! Ég veit um stóran hóp af fólki sem þú og þitt fólk verðið að bjarga. Ræsum alla út! Við megum engan tíma missa!

Ágúst Már, heldur þú ekki að hann hafi skroppið út til að kaupa í mat­inn en svo keypti hann engan mat. Hann eyddi tveimur mán­að­ar­launum í söfn­un­ar­kassa. Heyrðu, svo reyndi hann að drepa sig á eftir.

Saga Bjarna birt­ist á lokum.is í kvöld

Hún Karitas, úff, hún var ólétt og seldi allt og átti bara dýnu. Svo rústaði hún víst hjóna­band­inu. Hún sagði að hana hefði langað að deyja. Heldur þú að það sé nú? Svo auð­vitað reyndi hún það, að drepa sig, bara út af fíkn­inni í kasss­ana þína, Þór.

Óskar Steinn, hann missti fjöl­skyld­una og heim­ili sitt. En þetta er fal­legt nafn, Óskar Steinn eins og Óska­steinn sem óskar þess að þú lokir þessum spila­köss­unum.

Jæja, hann Víðir Snær var með stelpuna sína en kass­arnir þínir fengu jóla­gjaf­irnar og ára­móta­mat­inn. Í stað­inn fengu börnin hans Víðis, pabba í sjálfs­morðs­hug­leið­ingum og ömur­legu minn­ingu, ævi­langt.

Svo er það Bjarni. Bjarni missti mömmu sína. Löngu löngu áður en hún dó, var hún ekki lengur til! Hún dó vegna spila­kassa Lands­bjargar.

Á meðan græddir þú!

Kæri Þór, for­maður Lands­bjargar, þú sagðir við RÚV um dag­inn að erfitt væri að mæta til­finn­inga­her­ferð með rökum. Fólkið á mynd­inni hér fyrir ofan, þau misstu pabba, misstu maka, misstu börn og á meðan græddir þú!

Þór, auð­vitað veistu það aveg sjálfur, þú veist það innst inni, veist að allar almenni­legar mann­eskjur, allir for­menn björg­un­ar­sveita, allir almenni­legir for­menn, þeir myndu skrúfa fyrir rennsli blóð­pen­ing­anna ef þeir vissu afleið­ing­arnar.

Hér er eitt ókeypis ráð handa þér.

Ef þú fréttir af því að fólk missi börn, missi for­eldra, missi aleigu, engin jól, grát­andi fólk, mamma dáin, engin jól, engin afmæl­is­gjöf, pabbi far­inn, fólk reyni að deyja, fólk deyi …

Þór, ef þú fréttir að fólk sé týnt og ætt­ingjar áhyggju­fullir, hvað gera okkar vösku og harð­snúnu björg­un­ar­sveit­ar­menn þá? Það er hópur fólks í lífs­hættu!

Jú, þú ræstir út Lands­björgu, allan her­inn, allir í bát­anna. Við ætlum að bjarga þessu fólki, segir þú en veist innst inni að þið bjargið bara sumu fólki.

Þú sagðir líka á RÚV að það myndi ekki lækna spilafíkn að loka spila­kössum. Þú sagðir að það væri vont fyrir rekast­ur­inn að loka spila­kössum. Það skiptir bara engu máli, Þór. Ef Bjarni, Óskar, Karitas og öll hin, láta þig vita, að björg­un­ar­sveitin þín taki við blóð­pen­ingum, sjálf Lands­björg, þá skrúfar þú fyrir það rennsli strax!

Ef þú gerir það ekki, þá ert þú týndur og ég er hér til að bjarga þér.

Það er nefni­lega fárán­lega kald­hæðn­is­legt, að for­maður Lands­bjargar, hreyki sér að því að bjarga fólki á fjöllum en reki spila­kassa sem taka líf og fólk týn­ist og sumir koma aldrei aftur heim.

Það er bara eitt orð yfir það, Þór for­maður Lands­bjargar, jú:

HRÆSNI.

Sorrí. Það er bara þannig. En ég hef trú á þér og alveg eins og ég hafði trú á Lands­björgu í dag og vissi að þið væruð til staðar. Þess vegna er þetta sorg­legt. Ég veit að þið eruð góðir. Við getum ekki án ykkar verið. Þið eruð hetjur og helj­ar­menni.

En þið verðið að vera góðir við alla.

Jæja, nú býð ég góða nótt. Núna er það loka­út­kall Þór, for­maður allra björg­un­ar­sveita, allir í bát­ana, björgum þessu fólki. Það er ekki of seint!

Hér má lesa lokum.is

Eftir Kristjón Kormák Guðjónsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins