„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Falin neysla á Íslandi – Kókaín í stað kampavíns – ,,Konan mín er frekar hrædd við þetta“

Falin neysla á Íslandi – Kókaín í stað kampavíns – ,,Konan mín er frekar hrædd við þetta“

Þegar orðið fíkni­efna­neysla kemur upp í hug­ann hugsa flestir til utan­garðs­fólks og dóp­grena. En neyslan er mun víð­tæk­ari en það. Stór hópur tekju­hærri ein­stak­linga tekur reglu­lega kókaín. Þetta er fólkið sem hefur efni á því og notar það ekki dag­lega heldur við einu sinni til þrisvar í viku. Oft er um að ræða neyslu í mat­ar­boðum, á fundum með erlendum aðilum og fjár­festum og vinum.

Mannlíf ræddi við karl­mann á fimm­tugs­aldri sem hefur komið sér afar vel fyrir í líf­inu. Hann á konu, fjögur börn, tvo bíla og gengur afar vel í við­skiptum. Hann býr í ein­býl­is­húsi í betri hluta bæj­ar­ins og á afar virkt félags­líf. Hann við­ur­kennir að hafa látið Covid sam­skipta­bannið hafa lítil áhrif á líf sitt.

,,Jú jú, maður passar betur hverjum maður býður heim en ég er í þeim bransa að geta ekki látið við­skipta­sam­bönd mín deyja út af Covid.” Hann segir að líf í slíkum heimi sé kókaín ein­fald­lega jafn eðli­legt og kampa­vín.

Eins og góður eftirréttur

,,Við bjóðum heim eða erum boðin til byrgja eða við­skipta­vina. Yfir­leitt í heima­hús en einnig stundum í sum­ar­hús. Það er for­drykkur, svo smá í nefið, svo matur og aftur í nefið og þannig getur þetta gengið fram á morgun. Það finnst það engum stór­mál eða hneyksl­ast, þetta er bara partur af félags­líf­inu. Erlendis er þetta jafn­vel enn eðli­legra, eins og að fá sér góðan eft­ir­rétt. Þetta er allt spurn­ing um að kunna sér hóf og hafa reynslu af hvaða efni er gott og hvað er rusl.”

Aðspurður hvaðan þau fái efnið vill hann fátt segja. ,,Maður þekkri mann sem þekkir mann og smám saman mynd­ast traust. Þegar það er komið á ákveðið stig og selj­and­inn veit að maður er borg­un­ar­maður fyrir efn­inu og getur jafn­vel bætt í kúnna­hóp­inn bæt­ist við heim­send­inga­þjón­usta”.

Hann bætir við að með árunum hafi hann lært hver selji ,,gott” efni og hverjir ekki. ,,Það hefur verið reynt að svindla á manni en það er fljótt að spyrj­ast út og þá ertu búinn að missa þennan kúnna­hóp.”

Það hefur heyrst að erf­ið­ara sé að ná sér í efni eftir að flug var tak­markað, hvað hefur hann að segja um það? ,,Nei, ég hef ekki fundið fyrir því. Það hefur alla­vega ekki verið erf­ið­ara fyrir mig að ná í efni.

Hann vill taka fram að hann sé ekki virkur fíkni­efna­neyt­andi enda myndum fáum detta það í huga við að hitta þennan huggu­lega mann.

„Ég held að fólk hafi í sér þetta fíknigen eða ekki. Sjálfur er ég viss um að hafa það ekki og á ekki í neinum vand­ræðum að fara í gegnum daga og vikur án þess að taka í nös.” Sjálfur seg­ist hann ekki mæla með þessu, þetta sé dýr ávani og ekki fyrir alla. ,,Konan mín er frekar hrædd við þetta og ég skil það vel enda mikil fíkn í hennar fjöl­skyldu. En ég held að almenn­ingi yrði brugðið ef það vissi umfangið, því get ég lofað.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins