„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hættulegasta eldfjall Íslands rumskar: Ný skýrsla komin út – Þetta gæti gerst ef risinn vaknar!

Hættulegasta eldfjall Íslands rumskar: Ný skýrsla komin út – Þetta gæti gerst ef risinn vaknar!

Risinn undir Öræfajökli rumskaði fyrir nokkrum árum og nú eru blikur á lofti. Undir jökli hvílir næst­stærsta eld­stöð Evrópu. Hún á Íslands­met og heims­met í að spúa eit­ur­gufum sem kæfa eða breyta fólki í stein eins og í Pompeji árið 79. Rumski ris­inn, verði gos, geri gust­hlaup æða þau niður hlíð­arnar á yfir 150 kíló­metra hraða. Þau draga í sig allt súr­efni í and­rúms­loft­inu. Nú skiptir litlu hvað þú hleypur hratt. Kona eða karl, börn eða gam­al­menni, kind eða hundur, frár á fæti, ekk­ert slíkt skiptir máli. Gust­hlaupið kæfir og brennir og sú skepna sem fyrir verður, bíður bráður bani.“

Ný skýrsla varar við

Skýrslan Eldgos í Öræfajökli árið 1362, grein­ing á röð atburða kom nýlega út. Hún var unnin fyrir GOSVÁ, sem er heildar áhættu­mat vegna eld­gosa á Íslandi, Veð­ur­stofu Íslands og Ofan­flóða­sjóð. Mbl.is vekur athygli á þessum mik­il­vægu upp­lýs­ingum sem feng­ust með rann­sókn á gjósku­lag­inu sem eld­gosið mynd­aði.

Skýrslan stað­festir það sem flesta grun­uðu og ótt­uð­ust líka, en eitt metið er okkar Íslend­inga, Sprengigosið mikla sem varð í Öræfajökli 1362 var ekki aðeins öfl­ug­asta eld­gos Íslands­sög­unnar, það var líka stærsta sprengigos sem orðið hefur á jörð­inni und­an­farin árþús­und. Það er ólíkt flestum eld­gosum á sögu­legum tíma á. Það þarf helst að líkja eld­gosimu mikla í Vesúvíusi svo nútíma­maður átti sig á umfangi þess, er bær­inn Pompeji grófst í jörðu.

Risinn er að gera sig kláran í gos

Einn höf­und­anna er Ármann Hösk­ulds­son einn okkar fremsti eld­fjalla­sér­fræð­ingur. Hann hefur síð­ustu ár sagt að Öræfa­jök­ull sé að gera sig kláran í gos, og munum, þetta er næst stærsta eld­stöð Evrópu! Þar hefur orðið hrika­leg eld­gos. Ármann sagði í við­tali við Speg­il­inn á RÚV:

„Við vitum það að hann er far­inn af stað. Hann er að gera sig kláran í gos. Það er alveg klárt. Svo kemur bara í ljós hve lengi hann er að vakna. Þetta er stórt og mikið eld­fjall. Stendur nokkuð langt frá heita reitnum. Það er kalt en ekki heitt eld­fjall. Þannig að fyrir kvik­una að kom­ast upp er átak,“ sagði Ármann og hélt áfram:

„Það þýðir að skjálfta­virkni þarf að aukast tölu­vert. Hins vegar er mjög erfitt að segja til um hversu langan tíma það tekur. Eyja­fjalla­jökul, 16 til 18 ár. Það má vel vera að það taki Öræfa­jökul ekki nema nokkra mán­uði að skila sér í gos en það verður bara að koma í ljós.“

Skýrslu­höf­undar vara við og segja brýnt að laga áhættu­grein­ingu og rým­ing­ar­á­ætl­anir í sam­ræmi við það. Þá er minnst á gjósku­flóð og gust­hlaup séu það sem ber að ótt­ast.

Gjósku­hlaupin, það hleypur þau eng­inn af sér en þau geta ferð­ast á yfir 150 km/klst. hraða. Í skýrsl­unni segir:

„Þessar tvær teg­undir af gjósku­flóðum eru hættu­leg­ustu fyr­ir­brigði sam­fara eld­gosum sökum þess hve heit þau geta orðið, hversu hratt þau streyma niður hlíðar eld­fjall­anna og vegna þess að ekki er unnt að spá fyrir um leið gust hlaupa eftir lands­lagi.“

Vís­inda­menn gerðu til­raun til með því að snið­mæla vik­ur­inn frá 1362 á Sand­fells­heiði sum­arið 2018 en einnig reynt að finna gosmenjar frá eld­gos­inu 1727. Loks tókst að stað­setja þær gos­s­töðvar í fyrsta sinn, með óhyggj­andi hætti. Nær gíga­röðin frá Sand­fells­heiði og upp til öskju Öræfajökli.

Risinn rumskar

„Gosið í Öræfajökli 1362 er eitt mesta sprengigos sem orðið hefur á jörð­inni und­an­farið árþús­und. Það sem lík­lega kemst næst því af íslenskum gosum á sögu­legum tíma er Heklu­gosið 1104 og þar næst Öskju­gosið 1875 sem þó var minna. Gosið í Pinatubo á Fil­ipps­eyjum 1991, er olli víð­tækum veð­ur­fars­á­hrifum, kemst lík­lega næst því að vera svip­aðrar stærðar og risa gosið sem átti sér stað undir þykkum ís, sjálft Öræfa­jök­uls­gosið 1362. Síðustu tvo til þrjú ár hefur ris­inn undir jökl­inum verið að rumska. Sjá nánar hér, á Stjörnu­fræði­vefnum.

Og verði gos, og geri gust­hlaup, ógn­vekj­andi orð það en afleið­ingar skelfi­legri. Gust­hlaup eru gríð­ar­lega heit og þau hamstra allt súr­efni í and­rúms­loft­inu, háma það í sig. Kona eða karl, börn eða gam­al­menni, kind eða hundur, frár á fæti, ekk­ert slíkt skiptir máli. Gust­hlaupið kæfir og brennir og sú skepna sem fyrir verður, bíður bráður bani.“

Þá segir í merki­legri umfjöllun Gísla Sig­urðs­sonar í Lesbók Morg­un­blaðs­ins árið 1970:

„Á örfáum klukku­tímum breytt­ist sú blóm­lega byggð, sem ýmist var nefnd Hérað, Litla Hérað, eða Hérað milli sanda í ömur­lega eyði­mörk rjúk­andi vik­urs. Ösku­strók­ur­inn úr gíg Knappa­fells­jök­uls var með því­líkum ódæmum, að askan dreifð­ist um þriðj­ung lands­ins.

En ógrynni vik­urs og ösku hefur þó lent á haf út, enda segir í sam­tíma heim­ildum að vik­ur­inn sást reka hrönnum fyrir Vest­fjörðum, svo naum­ast komust þar skip áfram.“

Óvissustig

Almanna­varnir hafa lýst yfir óvissu­stigi í Öræfajökli vegna auk­innar virkni þar. Öræfa­jök­ull er meg­in­eld­stöð en ekki hefur gosið þar síðan árið 1727. Aukin skjálfta­virkni hefur verið í jökl­inum und­an­farið og brenni­steins­lykt hefur fund­ist. Undir Öræfajökli er önnur stærsta eld­stöð Evrópu. Þá hafa Almanna­varnir fundað stíft og er unnið að við­bragðs­á­ætlun ef það gjósi en þá er tölu­verð­hætta á flóði.

Gosið mikla í Vesúvíusi

Telja jarð­fræð­ingar, að gos af því tagi geti orðið með miklum ódæmum, og eru þær hlið­stæður nefndar við þetta gos, er Hekla kaf­færði byggð Þjórs­ár­dals með vikri árið 1104, og gosið mikla í Vesúvíusi árið 79, sem gróf bæinn Pompeji í jörðu.

En hvernig gosi gætum við átt von á? Hvernig hafa gos verið áður í þess­ari miklu eld­stöð? Á Stjörnu­fræði­vefnum er að finna ítar­lega umfjöllun um eld­gos í Öræfajökli. Í inn­gangi umfjöll­unar segir að í kviku­hólfum geti orðið breyt­ingar á kviku á milli gosa. Líði langur tími getur magn gas­teg­unda í kviku­hólfi auk­ist og endað með kröft­ugu og súru sprengigosi.

Það gerð­ist árið 1362 þegar Öræfa­jök­ull vakn­aði eftir að hafa legið í dvala í rúm átta hund­ruð ár. Gosið hófst í júní og er talið að fyrstu daga hafi mökk­ur­inn náð í um 30 kíló­metra hæð. Var gosið það mesta síðan að Hekla gaus um 800 árum fyrir Krist. Á Stjörnu­fræði­vefnum er ekki vitað nákvæm­lega hvar gaus en talið að það hafi verið í öskj­unni sjálfri. Þar segir:

„Eldsum­brot­unum fylgdu jök­ul­hlaup undan Falljökli, Virk­isjökli, Kotár­jökli, Rót­ar­fjallsjökli og Svína­fellsjökli niður Skeið­ar­ár­sand en Kvíár­jök­ull hljóp á sjó út. Ekki er vitað hversu stór jök­ul­hlaupin voru en leiða má líkum að því að þau hafi ekki verið stór­kost­leg og til þess benda raunar vegs­um­merki í fjall­inu. Jök­ull­inn var minni þá en nú vegna hlý­inda­tíma­bils sem á undan var gengið.

Hlaupið hefur þó án efa verið skelfi­legt og kröft­ugt vegna mik­illar fall­hæðar niður fjalls­hlíð­arnar. Úr orku þess dróg um leið og hlaup­vatnið var komin niður á flat­lendið þar sem það dreifð­ist um sandana. Mikill aur­burður fylgdi hlaup­inu svo þetta var eðju­flóð (lahar). Stór ísbjörg flæddu um sandana og hurfu á löngum tíma.“

Litla hérað hverfur

Blómleg byggð var í nágrenni Öræfa­jök­uls sem þá hét Litla-hérað. Þar var stunduð akur­yrkja og talið að um 30 bæir hafi verið á því svæði. Gosið eyddi allri byggð.

Tveir eld­fjalla­fræð­ingar, þeir Ármann Hösk­ulds­son og Þor­valdur Þórð­ar­son hafa uppi kenn­ingar um að gjósku­flóð hafi eytt byggð í Litla-hér­aði. Á Stjörnu­fræði­vefnum segir:

„Gust­hlaup eru gríð­ar­lega heit og draga allt súr­efni úr and­rúms­loft­inu í sig. Hverjum manni og hverri skepnu sem fyrir verður bíður bráður bani.“

Dæmi um skelfi­leg gust­hlaup er urðu í eynni Martinique árið 1902 og þá varð gust­hlaup í Pompeii á Ítalíu árið 79. Þar dóu allir borg­ar­búar.

Skál­holtsann­áli frá ofan­verðri 14. öld segir:

„Eldur uppi á þremur stöðum fyrir sunnan og hélst það frá far­dögum til hausts með svo miklum býsnum að eyddi allt Litla hérað og mikið af Horna­firði og Lóns­hverfi svo að eyddi fimm þing­manna­leiðir. Hér með hljóp Knappa­fells­jök­ull fram í sjó þar sem áður var þrí­tugt djúp, með grjót­falli, aur og saur og urðu þar síðan sléttir sandar. Tók og af tvær kirkju­sóknir með öllu, að Hofi og Rauðalæk. Sand­ur­inn tók í miðjan legg á sléttu en rak saman í kafla svo varla sá í húsin. Öskufall bar norður um land svo að spor­rækt var. Það fylgdi að vik­ur­inn sást reka í hrönnum fyrir Vest­fjörðum að varla máttu skip ganga fyrir.“

Í Gott­skálk­san­nál segir:

„Í Aust­fjörðum sprakk í sundur Knappa­fells­jök­ull og hljóp ofan á Lómagnúpssand, svo að af tók vegi alla. Á sú í Aust­fjörðum, er Úlfarsá heitir, hljóp á stað þann er heitir að Rauðalæk, og braut niður allan stað­inn, svo að ekki hús stóð eftir nema kirkjan.“

Í Odd­verja­ann­áll, sem rit­aður var árið 1580, stendur:

Eldur upp­kom­inn í Litla hér­aði og eyddi öllu hér­að­inu: höfðu þar áður verið 70 bæir: lifði engin kvik kind eftir utan ein öldruð kona og kap­all.

Á Stjörnu­fræði­vefnum er einnig að finna ítar­lega umfjöllun um öllu minna gos í Öræfajökli en það varð árið 1727 og má lesa hér.

Hér fyrir neðan má svo finna merki­lega umfjöllun Gísla Sig­urðs­sonar sem birt var í Lesbók Morg­un­blaðs­ins árið 1970 er nefnd­ist Ferða­þættir úr Öræfa­sveit

Á örfáum klukku­tímum breytt­ist sú blóm­lega byggð, sem ýmist var nefnd Hérað, Litla Hérað, eða Hérað milli sanda í ömur­lega eyði­mörk rjúk­andi vik­urs.

Undir þeim jökli, sem hæst gnæfir á Íslandi öllu, kúra bæirnir í ein­faldri röð; þeir eru átta tals­ins. Þó eru austan frá Kvískerjum og vestur að Skafta­felli hvorki meira né minna en 50 km. Hvergi ann­ars staðar á land­inu er um aðrar eins vega­lengdir að fara inn­an­sveitar.

Gjóska úr Öræfa­jök­uls­gos­inu 1362 á bökkum Gljúf­ursár. Hér má sjá að gjósku­flóð og jök­ul­hlaup koma fram strax í byrjun goss.

Ekki er þó svo að skilja að átta bændur skipti þessu flæmi á milli sín. Á flestum bæj­unum er marg­býlt og bæirnir standa þétt saman á gróð­ur­svæðum, sem ham­farir nátt­úr­unnar náðu ekki að eyða. Alls staðar er jök­ull­inn að baki eða snar­brattar og lítt grónar und­ir­hlíðar hans. Fram undan:

Flat­lendi og sandar, þar sem ár flæm­ast um, óstöðugar í far­vegum sínum, en fjær: brim­garð­ur­inn við strönd­ina. Og síðan hafið. En austan við sveit­ina og vestan eru þær lands­frægu tor­færur, sem fyrrum voru nefndar Lómagnúps­sandur og Breið­árs­sandur ásamt þeim jök­ul­fljótum, sem þar verða.

Gosið mikla í Vesúvíusi – Allir létust

En hvers vegna þessi kald­rana­lega nafn­gift: Öræfi. Táknar það ekki venju­lega óbyggð og auðn? Að vísu, en Öræfa­sveit hefur heldur ekki frá upp­hafi íslands­byggðar borið þetta nafn. Það mun fyrst koma fyrir árið 1412, eða réttum fimm­tíu árum eftir að þar urðu slíkar nátt­úru­ham­farir að eyddi byggð­ina. Það var árið 1362.

Þá stóð fólki í þessum hluta lands­ins sizt af öllu ógn af Öræfajökli, sem í þá daga nefnd­ist Knappa­fells­jök­ull. Þar höfðu ekki sézt eldar uppi, enda höfðu eld­stöðvar Knappa­fells­jök­uls legið í dvala öldum saman, þegar þær vökn­uðu skyndi­lega til lífs­ins vorið 1362.

Telja jarð­fræð­ingar, að gos af því tagi geti orðið með miklum ódæmum, og eru þær hlið­stæður nefndar við þetta gos, er Hekla kaf­færði byggð Þjórs­ár­dals með vikri árið 1104, og gosið mikla í Vesúvíusi árið 79, sem gróf bæinn Pompeji svo í ösku, að öldum saman vissu menn ekki hvar hann hafði staðið.

En víkjum ögn að jarð­eldum Knappa­fells­jök­uls vorið 1362.

Frá Öræfasveit Úr Lesbók Morgunblaðsins

Heim­ildir um hin válegu eldsum­brot og eyð­ingu hér­aðs­ins eru að vísu hvorki margar né fjöl­skrúð­ugar, en gefa þó í vissum atriðum glöggar hug­myndir. Skál­holtsann­áll segir að sand­ur­inn hafi tekið í miðjan legg á sléttu, en rekið saman í skafla, svo að varla sá húsin. Þar er einnig sagt, að auk Litla Héraðs, hafi eyðst mikið af Horna­firði og Lóns­hverfi. Í Gott­skálk­san­nál segir svo:

„í Austurfjörðum sprakk í sundur Knappafellsjökull og hljóp ofan á Lómagnúpssand, svo að af tók vegu alla. Á sú í Austurfjörðum, er tJlfarsá heitir, hljóp á stað þann er heitir að Rauðalæk, og braut niður allan staðinn, svo að ekki hús stóð eftir nema kirkjan.“

Í Odda­verja­an­nál, sem að vísu er tek­inn saman mun síðar, stendur þetta um eyð­ingu Héraðs.

„Lifði engin kvik kind eftir utan ein öldruð kona og kap­all.“

Munnmæli síð­ari alda hermdu, að gíf­ur­leg vatns­flóð af völdum goss­ins hefðu lagt byggð­ina í eyði. Í seinni tíð hefur þeirri kenn­ingu verið hafnað; vik­ur­regnið hefur tví­mæla­laust átt drý­gri þátt í eyð­ingu byggð­ar­innar. Þó mun gíf­ur­legt, jök­ul­hlaup hafa beljað fram, sín hvorum megin við kirkju­stað­inn Sandfell, og af völdum þess hafa eyðzt all­margir bæir, sem stóðu frammi á slétt­lend­inu. Auk þeirra átta bæja, sem enn eru í byggð, kunna menn nöfn á 19 eyði­jörðum. Frægust þeirra og mest var kirkju­stað­ur­inn Rauðilækur, ekki all­langt frá Svína­felli. f mál­daga frá ofan­verðri 12. öld, er kveðið á um eignir og hlunn­indi kirkj­unnar á Rauðalæk, og sézt að þar hefur verið auðug kirkja. Ef hægt er að dæma eftir kirkjum og bæna­húsum, hefur guðsótti og góðir siðir verið kenni­mark í Héraði milli sanda. Auk kirkj­unnar á Rauðalæk hafa verið þrjár alkirkjur, með prest­skyldu, tvær hálf­kirkjur og ell­efu bæna­hús. Er það hald manna, að bæir í Litla Hénaði hafi verið þrjá­tíu, eða jafn­vel fjöru­tíu tals­ins.

Öræfa­jök­ull Saklaus og tign­ar­legur að sjá en undir er önnur stærsta eld­stöð Evrópu

Menn hafa löngum velt fyrir sér þeirri spurn­ingu, hver hafi orðið örlög fólks­ins, þess er byggði hér­aðið undir hlíðum Öræfa­jök­uls. Ef að líkum lætur hefur jarð­skjálfti fylgt hinni fyrstu elds­upp­komu og trú­lega hafa hús hrunið.

En sam­kvæmt feng­inni reynslu má ætla, að það hafi ekki orðið mörgum að fjör­tjóni.

En vel má ímynda sér þetta nauð­stadda fólk á flótta austur með fjöll­unum. Það veður ösk­una í mjóa­legg. í myrkr­inu heyrir það ofstopa­fullan hávaða af jökl­inum.

Trúlega eru aðeins brýn­ustu nauð­synjar með í för inni en öskurykið svo þétt að sumum liggur við köfnun, og auk þess regn vik­ur­hnull­unga.

Af þessum flótta fer litlum sögum og kannski er ómengað sann­leiks­korn í hinni sam­þjöpp­uðu setn­ingu Odda­verja­ann­áls:

„Lifði engin kvik kind eftir utan ein öldruð kona og kap­all.“

Ari Trausti um Öræfajökul

Óró­leik­inn í Öræfajökli minnir okkur á að stundum stela ólík­legu eld­fjöllin sen­unni frá þeim sem oft­ast minna á sig – t.d. Heklu, Kötlu eða Grím­svötnum. Enginn sér fram­hald atburða fyrir í Ö. en vöktun hefur verið aukin, sam­ráðs­hópur vís­inda­manna og Almanna­varna unnið það sem að því fólki snýr og við­brögð skipu­lögð í sam­vinnu við heima­menn fyrir austan.“

Ari Trausti Guð­munds­son

Þannig hefst pist­ill eftir Ara Trausta Guð­munds­son sem hann birti í Facebook-hópnum Jarð­sögu­vinir árið 2018:

Um það bil í miðri jök­ul­fylltri öskj­unni sést nú 1000 m breiður og ca. 20 m djúpur sig­ketil, sbr. fjöl­miðla. Ísinn er allt að 500-600 m þykkur í öskj­unni. Undir katl­inum er bull­andi jarð­hiti sem tengja má auk­inni skjálfta­virkni og mögu­legri inn­komu kviku djúpt inn í rætur Öræfa­jök­uls ef marka má suma dýpstu skjálft­ana – og þeirri stað­reynd að skjálfta­virkni (var lengi afar lítil) jókst veru­lega síðla árs 2016. Það er erfitt að tengja hana aðal­lega þynn­ingu jök­uls­ins og land­risi þess vegna; rýrnun hefur staðið all­lengi yfir. Aukin raf­leiðni í Kvíá, nokkuð aukið rennsli og „hvera­lykt“ úr henni eru sígild ummerki virkni háhita­svæðis.

Vissu­lega getur núver­andi atburða­rás stöðvast án mik­illa tíð­inda en hún getur allt eins verið upp­hafs­fasi í ferli sem leiðir til eld­goss og jök­ul­hlaups. Minni jök­ul­hlaup en vegna eld­goss geta komið fram við ein­bera jarð­hita­virkn­ina; þ.e. auk­ist hún mikið eða þessi leki í Kvíá nægir ekki til að koma í veg fyrir að hvelf­ing bráðni upp í jök­ul­ís­inn uns hleypur úr henni. Þó ég líki ekki Öræfajökli við Eyja­fjalla­jökul þá tók það a.m.k. 16 ár frá því mæld voru þar fyrstu óró­leika­merki þangað til gos hófst 2010.

Ekkert af stóru eld­fjöll­unum okkar hagar sér eins og eitt­hvert hinna. Öll munum við senni­lega að gosið í Ö. 1362 var mjög öfl­ugt, allt að 10 rúm­kíló­metrar af ferskri gjósku náðu yfir um 36.000 ferkm lands en yfir miklum mun stærra haf­svæði til suð­urs. Seinna gosið 1727-8 (vestan til í jökl­inum) var miklu smærra í sniðum en hlaup í báðum til­vikum ill­víg. Ég skrifa þetta hér til að hnykkja á hve alvar­legum augum litið er á þetta gamla og stóra eld­fjall sem getur verið ýmist lamb eða ljón.

Höfundar skýrsl­unnar eru þau Ármann Hösk­ulds­son, Þor­valdur Þórð­ar­son, Ingi­björg Jóns­dóttir, Muhammad Auf­aristama, Alma Gytha Hunt­ington Williams, Helga Kristín Torfa­dóttir, Þóra Björg Andr­és­ar­dóttir, Daníel Þór­halls­son, Alan Woodland, Maria Janebo og Catherine R. Gallag­her. Útgef­andi er Jarð­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins