„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Samherji gaf Akureyringum ónothæfa skíðalyftu

Samherji gaf Akureyringum ónothæfa skíðalyftu

Fyrir tæpum fjórum árum gaf útgerð­ar­fyr­ir­tækið Samherji Akur­eyr­ingum skíða­lyftu sem enn hefur ekki tek­ist að koma í notkun. Um er að ræða not­aða Dopp­elma­yer-stóla­lyftu sem stendur óhreyfð í brekkum Hlíð­ar­fjalls.

Frá árinu 2015 stóðu vonir til að reisa aðra stóla­lyftu á skíða­svæði Akur­eyr­inga og það var loks vorið 2017 sem und­ir­rit­aðir voru samn­ingar þess efnis, þökk sé Sam­herj­a­sjóðnum svo­kall­aða sem veitti styrk til kaupa á lyft­unni. Útgerð­ar­fyr­ir­tækið afhenti holl­vina­sam­tökum skíða­svæð­is­ins lyft­una að gjöf, félag­inu Vinir Hlíð­ar­fjalls, og stofnað var síðan sér­stakt félag um kaupin, Stóla­lyftan ehf. Samherji gaf ekki bara lyft­una heldur greiddi einnig fyrir flutn­ing hennar til lands­ins.

Upp­haf­lega stóð til að koma lyft­unni í notkun fyrir vet­ur­inn 2016 en deilur við verk­taka urðu til þess að því var frestað. Þá átti lyftan að vera til­búin í des­em­ber 2018 og oft hefur síðan verið sagt frá vænt­an­legri opnun hennar í fjöl­miðlum. Ef hún kemst ein­hvern tím­ann í gagnið verður lyftan sú hæsta á Íslandi en það tekur um átta mín­útur að fara með henni upp á Fjall­konu­hæð sem er rúm­lega þús­und metra yfir sjáv­ar­máli.

Sjá einnig: Halló, Akureyri, hvað er eig­in­lega í gangi!

For­svar­menn skíða­svæð­is­ins í Hlíð­ar­fjallli hafa stigið fram og lýst því yfir að með nýju stóla­lyft­unni komi aðstaðan í fjall­inu til með að ger­breyt­ast og afkasta­geta svæð­is­ins marg­fald­ast. En vand­inn er sá að lyftan hefur ítrekað bilað og margir steinar verið á veg­inum í átt að opnun.

Til stóð að Vinir Hlíð­ar­fjalls settu upp lyft­una og leigði svo lyft­una af Akur­eyr­arbæ til næstu 15 ára. Hins vegar hefur bær­inn nú samið um kaup á bil­uðu Sam­herj­a­lyft­unni og er áætl­aður kostn­aður 323 millj­ónir króna. Talmenn holl­vina­sam­tak­anna hafa full­yrt að lyftan nálgist það að verða afhend en Akur­eyr­ar­bær heldur etir hluta kaupa­verðs­ins þar til Stóla­lyfta ehf. hefur lokið verk­inu sem og ef eitt­hvað reyn­ist ófull­nægj­andi við frá­gang lyft­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins