„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Neyð rekur íslenskar konur í vændi. Gífurleg eftirspurn í Covid-faraldri

Neyð rekur íslenskar konur í vændi. Gífurleg eftirspurn í Covid-faraldri

Stígamót hafi fundið fyrir auknu vændi íslenskra kvenna í Covid far­aldr­inum. ,,Okkar konur segja að áreitið sé tals­vert meira frá kaup­endum vændis í kjöl­far Covid. Margar fá lág­marks­fram­færslu í gegnum örorku, félags­þjón­ustu eða atvinnu­leys­is­bætur. Sú upp­hæð nægir ekki til þess að fram­fleyta þeim og þá verður vændi neyð­ar­úr­ræði” segir Anna Bentína Herman­sen  ráð­gjafi hjá Stíga­mótum, ,, Atvinnu­leysi hafi aldrei mælst hærra og mörg hinna glöt­uðu starfa eru hefð­bundin kvenna­störf.

Endalaus eftirspurn

,,Erlendu konur í vændi sem koma iðu­lega tíma­bundið til  lands­ins hafa eðli­lega ekki verið að koma og vænd­is­eft­ir­spurnin hefur færst  til íslenskra kvenna. Eft­ir­spurnin virð­ist vera gríð­ar­leg. Við höfum talað við konur sem hafa komið sér út úr vændi en verða fyrir stöð­ugu áreiti fyrrum vændis­kaup­enda.”

Forsaga kynferð­is­of­beldis algeng

Anna Bentína segir þær konur sem leiti til Stíga­móta vegna vændis eiga margt sam­eig­in­legt. ,,Margar þessar konur sem grípa til þess ráðs að fara út í vændi hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi sem hefur gríð­ar­leg áhrif á sjálfs­mat þeirra og sjálfs­á­lit og þær fara í þetta af neyð.´´

Anna Bentína Herman­sen

,,Þegar þær verða fyrir kyn­ferð­is­of­beldi missa þær eigna­réttin yfir eigin lík­ama, mörkin þeirra eru brotin og virð­ing þeirra fyrir eigin lík­ama er oft löskuð” segir Anna Bentína. ,,Annar stór þáttur er fátækt og félags­leg staða. Yfir­leitt eru það ekki vel stæðar, mennt­aðar konur sem dettur skyndi­lega í hug að stunda vændi af því að þær hafa svo gaman af kyn­lífi. Konurnar í vændi eru þær jað­ar­settu, sem sjá fáa aðra mögu­leika að sjá fyrir sér nema með þess­ari leið.”

Margar lifa ekki af

,,Afleið­ingar þeirra kvenna sem hafa verið í vændi eru gríð­ar­legar, oft marg­faldar sam­an­borið við aðrar teg­undir kyn­ferð­is­of­beldis. Áfallastreita er algeng og hjá konum sem hafa verið  í vændi hafa yfir 70% upp­lifað sjálfs­vígs­hugs­anir. Margar þeirra lifa þetta ekki af.´´

,,Þessar konur eru laskaðar bæði á sál og lík­ama þegar þær koma til okkar. Bæði er mikið lík­am­legt álag að stunda vændi og sumir karl­menn sem kaupi aðgang að lík­ama kvenna telji það ,,rétt” sinn full­nægja eigin fantasíum á þeim. Þeir ganga oft lengra en samið var um og fara oft veru­lega illa  með þær.”

Anna Bentína segir að sé aldrei, undir nokkrum kring­um­stæðum, rétt að kaupa aðgengi að lík­ama kvenna. ,,Því miður hefur þeirri skoðun um að vændi sé ,,val” og ekk­ert öðru­vísi en önnur við­skipta­sam­bönd, vaxið ásmegin. Sumir nota orðið ,,kyn­lífs­vinna” en vændi alltaf kyn­ferð­is­of­beldi, sama hvað reynt er að rétt­læta það.”

Vændi er ekki val

Önnu Bentínu finnst því miður finnst ganga of hægt að koma þessum skila­boðum á fram­færi. ,,Þarna erum við á sama stað gangvart brota­þolum vændis og við vorum gagn­vart brota­þolum nauð­ganna fyrir ekki svo löngu síðan. Við gerðum brota­þol­ann ábyrgan. Nú gerum við það með því að segja að þær velji þetta og geti sjálfum sér um kennt. Þetta róm­aða ,,val” skil­yrð­ist af for­tíð þeirra, stöðu og fátækt. Það er mik­il­vægt að við verndum þá sem eru í við­kvæm­ustu stöð­unni í sam­fé­lagi okkar í stað þess að níð­ast á þeim með því að rétt­læta kaup á lík­ömum þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vændi

Brynja stundaði vændi á Íslandi: „Algjör skyndihugdetta“
InnlentVændi

Brynja stund­aði vændi á Íslandi: „Algjör skyndi­hug­detta“

„Þar sem ég hafði enga virð­ingu fyrir sjálfri mér og lík­ama mínum datt mér í hug að fyrst ég væri að sofa hjá mönnum á djamm­inu gæti ég alveg eins fengið greitt fyrir það. Þetta var ekki eitt­hvað sem ég lagði mikla hugsun í. Þetta var algjör skyndi­hug­detta,“ segir fyrr­ver­andi vænd­is­kona í Helg­ar­við­tali Mannlífs. Konan, sem við köllum Brynju, lýsir...
Hvað kostar góð rassskelling? Ég á góða spaða og svipur
InnlentVændi

Hvað kostar góð rass­skell­ing? Ég á góða spaða og svipur

Mannlífi lék hugur á að gera óform­lega könn­una á eft­ir­spurn eftir vændi íslenskra kvenna eftir við­tal við Önnu Bentínu Herman­sen hjá Stíga­mótum sem sagði vændi íslenskra kvenna í atvinnu­leysi og Covid hafa stór­auk­ist. Tæplega 40 svör á sól­ar­hring Sett var aug­lýs­ing inn á íslenskan vef­mið­miðil sem margir tengja meðal ann­ars við vænd­is­sölu en ekki ein­vörð­ungu. Aug­lýs­ingin var sett inn fyrir...
Ágengir Tinder-notendur bjóða greiðslur fyrir kynlíf
Innlent

Ágengir Tinder-not­endur bjóða greiðslur fyrir kyn­líf

Kven­kynsnot­endur á Tinder lenda ítrekað í því að þeim sé boðin greiðsla fyrir kyn­líf þrátt fyrir að hafa frá­beðið sér frek­ari sam­skipti. Teym­is­stjóri Bjark­ar­hlíðar segir hættu á að svona til­boð auki hætt­una á því að við­kvæmir hópar leið­ist út í vændi. Tinder er vin­sælasta stefnu­móta­for­rit heims og er notkun þess útbreidd hér á landi. Ekki er of djúpt tekið í...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins