„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Auður föst á Spáni eftir að hafa slasast illa: „Ég fæ til skiptis hláturskast og grátkast“

Auður föst á Spáni eftir að hafa slasast illa: „Ég fæ til skiptis hláturskast og grátkast“
Auður Huld

Auður Huld Gunn­ars­dóttir er 23 ára gam­all dans­ari. Hún hefur að und­an­förnu verið búsett í Madríd á Spáni, en er að flytja heim. Vanda­málið er að hún fær ekki brott­fara­leyfi og situr því föst.

Auður útskrif­að­ist frá Institude of the Arts í Bar­selóna síð­ast­liðið vor með áherslu á dans. Í kjöl­farið flutti hún til Madríd til að vinna með dans­flokknum EBB Junior Dance Company.

Í nóv­em­ber varð Auður fyrir óhappi á æfingu þar sem hún hlaut heila­hrist­ing og var hún flutt á brott með sjúkra­bíl. Eftir slysið fór hún að missa mátt­inn í lík­am­anum í tíma og ótíma og þurfti því óhjá­kvæmi­lega að draga sig til hlés í dans­inum og hvíl­ast til að ná bata.

Auður Huld

Þrátt fyrir að vitni hafi orðið að slys­inu vill dans­stjóri flokks­ins af ein­hverjum ástæðum ekki við­ur­kenna að það hafi átt sér stað. Hann sýndi því engan skiln­ing að hún þyrfti tíma til að ná heilsu á ný heldur þvert á móti: „Hann hringdi í mömmu og sagði að hún þyrfti að koma út því ég væri orðin eitt­hvað ímynd­un­ar­veik,“ segir Auður.

Eftir áfram­hald­andi árekstra og sam­skipta­örð­ug­leika við dans­stjóra flokks­ins tók Auður þá ákvörðun að flytja heim, en kemst nú hvorki lönd né strönd. „Þetta er mjög erfitt, ég fæ til skiptis hlát­ur­skast og grát­kast yfir þessum aðstæðum sem ég er í,“ segir Auður.

Auður fékk COVID-19 fyrir um fjórum vikum síðan, en hefur náð fullum bata og mælist með mótefni í blóð­inu, sem þýðir að hún er ekki smit­andi.

Hún þarf að fljúga í gegnum Holland til að kom­ast til Íslands, en þangað fær hún ekki að fara sökum þess að PCR- próf, sem mælir hvort fólk sé með veiruna, reyn­ist enn vera jákvætt hjá henni. Ef við­kom­andi getur sýnt fram á að hafa fengið kór­ónu­veiru sjúk­dóm­inn og er með mótefni í blóð­inu fá þeir leyfi til að ferð­ast til Íslands, en ekki virð­ist vera tekið mark á þeim gögnum í Hollandi.

Auður hefur verið í sam­bandi við Utan­rík­is­ráðu­neytið á Íslandi og ræð­is­mann Íslands á Spáni, sem hún segir hafa verið mjög hjálp­söm. Þó er ekki komin lausn á máli hennar, en von­ast Auður til þess að kom­ast heim sem fyrst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins