„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hænur um borg og bý

Hænur um borg og bý

Í Vest­ur­bæj­ar­g­rúpp­unni (eins og öðrum hverf­is­hópum á Facebook)  hefur frá upp­hafi verið mikið af aug­lýs­ingum um fundna og týnda ketti (und­ir­rituð er Vest­ur­bæ­ingur og fylgist vel með hópnum) og hafa sumir grín­ast með það að það sé ein­fald­lega ólög­legt að eiga ekki kött í Vesur­bænum. Hundar læð­ast jú líka inn í hóp­inn.

En nú er farið að bera meira á þriðja dýr­inu: Hænum. Margt bendir til að hænsna­hald hafi stór­auk­ist innan borg­ar­markanna frá því Reykja­vík­ur­borg gaf leyfi fyrir því árið 2014. Hanar eru aftur á móti bann­aðir af eðli­legum ástæðum: Hávaða.

Kettirnir girnast hænurnar

Þess má geta að týndu kett­irnir hafa MIKINN áhuga á týndu hæn­unum!

Anna Sigga býr í Vest­ur­bænum og er með 3 hænur, Skelli­bjöllu, Þrúði og Bínu fínu.

Anna Sigga seg­ist alltaf hafa verið hrifin af hænum og ákveðið að láta vaða á end­anum. „Fyrst kom Bína fína og svo bætt­ust Skelli­bjalla og Þrúður í hóp­inn. Skelli­bjalla fékk nafnið því hún er fjör­ug­ust, Bína fína því hún er svo drottn­ing­ar­leg og Þrúður er í höf­uðið á frænku minni sem fannst nafn­gjöfin rosa­lega fyndin.“

Vinna, en þess virði

Að sögn Önnu Siggu þurfti hún að hafa fyrir hænsna­hald­inu. „Ég byrj­aði á að ræða við fjöl­skyld­una en þau voru öll mjög jákvæð og spennt. Því næst las ég allt sem ég fann um umhirðu hæsna, aðbúnað, fæði og annað slíkt. Að því loknu þurfti ég að fá skrif­legt sam­þykki nágranna minna en þau voru öll svo elsku­leg að sam­þykkja. Að lokum bjuggum við til aðstöðu fyrir þær, byggðum kofa og lok­uðum af garð­inum. Ég sendi síðan sam­þykki nágrann­ana og mynd­irnar til Heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur og fékk sam­þykki. “

Aðspurð um flótta­til­raunir segir Anna Sigga elsk­urnar sínar ekk­ert reynt að flýja og þeim komi prýði­lega vel saman.

En hvað er best við hænsna­haldið? ,,Stórt er spurt! Þær eru eins og hver önnur gælu­dýr, jú, það þarf að hafa fyrir þeim en mér þykir afar vænt um þær. Þær hafa hvern sinn karakter og ekki er verra að fá fersk egg á hverjum morgni!” segir Anna Sigga og kímir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýrahald

MAST vill drepa hundinn hennar Ingibjargar: „Hann er náttúrulega hluti af fjölskyldunni“
Innlentdýrahald

MAST vill drepa hund­inn hennar Ingi­bjargar: „Hann er nátt­úru­lega hluti af fjöl­skyld­unni“

„ÉG VEIT EKKI hvar ég á að byrja,“ segir Ingi­björg Þor­steins­dóttir hunda­eig­andi í færslu á Facebook. Þar lýsir hún sárum sam­skiptum við MAST og þeirri erf­iði stöðu sem hún og fjöl­skyldan eru í þegar kemur að flutn­ingi heim­il­is­hunds­ins Gucci til Íslands. Eins og staðan er í dag er útlitið svart og nú þegar hefur MAST tví­vegis hafnað því að Ingi­björg...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins