„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Skelfilegt að vera fangi í faraldrinum: „Sakna þess að geta ekki faðmað fólkið mitt“

Skelfilegt að vera fangi í faraldrinum: „Sakna þess að geta ekki faðmað fólkið mitt“

„Covid far­ald­ur­inn hefur lent illa á mörgum en við fang­arnir erum senni­lega í hópnum sem hefur farið með þeim verst úr honum. Ein­angr­unin sem við búum við, fjar­lægðin við ást­vini okkar og aðgerð­ar­leysið og dep­urðin við að sitja í fang­elsi er nógu slæmt en svo kom Covid og allt snar­versn­aði meira en okkur hefði nokkurn tíma dottið í hug“.

Þetta segir fangi í við­tali við Mannlíf en hann hefur nýlega afplánað dóm sinn en vill ekki koma fram undir nafni.

Fólk er jú á eigin heimili

Á vef­svæði Afstöðu, hags­muna­fé­lags fanga er bent á að  að skjól­stæð­ingar Fang­els­is­mála­stofn­unar hafi ekki ást­vini sína sér við hlið. Þeir hafi raunar ekki fengið að sjá fjöl­skyldu eða vini eftir að neyð­ar­stigi var lýst yfir þótt að ástandið sé smám saman að breyt­ast til hins betra. Einnig ber bent á að ein­angr­unin og inni­lok­unin sem heims­far­ald­ur­inn hefur haft í för með sér í fang­elsum hafi gert það að verkum að að afplán­un­ar­fangar hafi verið meira og minna inni í klefum sínum, van­virkir vegna lamaðrar starf­semi í fang­elsum.

Fanginn fyrr­ver­andi sem Mannlíf ræddi við tekur fram að hann sé hjart­an­lega sam­mála afstöðu Afstöðu. „Þetta var bara ömur­legur tími. Ég fékk ekki að hitta fjöl­skyld­una mína og hef aldrei verið meira ein­mana en í far­aldr­inum“.

Sóttkví og fangelsisvist tvennt afar ólíkt

Fang­arnir benda á á síðu Afstöðu að alltof margir hafi litið svo á að um sam­bæri­lega hluti sé að ræða, sótt­kví og fang­els­is­vist, og sé um kunn­ug­legt stef sé að ræða bæði í fjöl­miðlum og sam­fé­lags­miðlum. Aftur á móti sé það ein­fald­lega út í hött að bera þetta saman.

Meðal kunn­ug­legra athuga­semda segj­ast fang­arnir oft sjá eft­ir­far­andi og þeir finni illa fyrir þeirri aðstöðu sem þeir eru eru í.

  • „Sakna þess að geta ekki faðmað fólkið mitt“
  • „Þetta er hund­leið­in­legt til lengdar“
  • „Hvernig á að brjóta upp eins­leitn­ina“
  • „Öllum ljóst að ein­angr­unin sem sótt­kvíin felur í sér er hrika­lega streitu­vald­andi“

Hér er um að ræða aðeins fjögur nýleg dæmi úr fjöl­miðlum, fyrri tvö úr við­tölum og seinni úr umfjöllun um sótt­kví þótt um mun fleiri sér að ræða og dæmin nær ótelj­andi.

Einsleitt og streituvaldandi ástand

„Fólki líður eðli­lega illa í sótt­kví og við skiljum það. Það er eins­leitt, streitu­vald­andi og hefur oft veru­lega nei­kvæð áhrif á and­lega heilsu. Samt hafa flestir í sótt­kví allt til alls, eru á eigin heim­ili, oftar en ekki með fjöl­skyldu sína með sér og enda­laust úrval af afþrey­ing­arey­ing­ar­efni sem við höfum ekki aðgang að,“ segja tals­menn Afstöðu.

Hið svokallaða „lúxuslíf“

Umræðan um það hversu gott þeir hafi það sem afpláni dóma í íslenskum fang­elsum dúkkar upp reglu­lega og orð­ræðan um fimm stjörnu hótel með öllum helstu þæg­indum fylgir í kjöl­farið.

Hneyksl­ast er yfir því að dæmdir menn fái að horfa á sjón­varpið, fara í sturtu á hverjum degi og hafi aðgang að síma.

„Við sem lifum í þessum raun­veru­leika vitum auð­vitað betur en mögu­lega örlar á skiln­ingi hjá fleirum þessi dægrin” segja með­limir Afstöðu, hags­muna­fé­lags um mál­efni fanga og betrun.

Guð­mundur Ingi Thorodds­son, for­maður Afstöðu

Mannskemmandi ástand

„Við erum ekki bara að tala um leið­indi heldur er þetta mann­skemm­andi og far­ald­ur­inn gerði allt verra”.

„Þegar ástandið er „eðli­legt“ er það að sama skapi baga­legt og margt má betur fara. Sál­fræði­þjón­usta er lítil sem engin, vinna af skornum skammti og hvatn­ing til betr­unar fjar­lægur draumur. Fang­elsin eru geymsla og eng­inn sem lokið hefur afplánun telur sig hafa haft það gott,“ segir á síð­unni.

Fanginn fyrr­ver­andi sem Mannlíf tal­aði við bað því að yrði komið á á fram­færi að aðstand­endur og vinir muni að staða fanga er erfið, sýni þeim skiln­ing og hafi sam­band. Þetta sé erf­iður tími, eng­inn tími sé góður í fang­elsi, en inni­lok­unin vegna far­alds­ins hafi reynst honum og sam­föngum hans sér­stak­lega erfið.

Afstaða vill einnig hvetja aðstand­endur og vini til þess að gefa þeim gaum sem sitja inni, hafa sam­band og reyna að létta lund þeirra. Þetta sé erf­iður tími fyrir alla en ekki síst þá sem eru í fang­elsum lands­ins. Það er ekki eft­ir­sókn­ar­vert að vera í fang­elsi venju­lega en um þessar mundir, á meðan Covid-19 far­ald­ur­inn gengur yfir sé það hreint út sagt skelfi­legt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hressasta núna“
InnlentCovid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hress­asta núna“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er komin með Covid-19. Covid-19 far­ald­ur­inn er orð­inn hluti af líf­inu líkt og spáð hafði verið en smitum hefur fjölgað gríð­ar­lega á Íslandi að und­an­förnu. Lang­flestir sem smit­ast veikj­ast ekki alvar­lega og ná sér að fullu en það á þó ekki um alla, sér í lagi eldra fólk og við­kvæma. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúia Sós­í­alista sagði frá...
Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“
InnlentCovid-19

Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfs­á­byrgðin er harður hús­bóndi“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir vin sinn, Kára Stef­áns­son, sem nýverið við­ur­kenndi að mögu­lega hefði verið nóg að gefa eldra fólki og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, bólu­efni gegn Covid-19 veirunni. Steinunn Ólína. Játning Kára Stef­áns­sonar, sem var áber­andi þegar heims­far­ald­ur­inn gekk yfir Ísland, hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum og eru margir afar reiðir vís­inda­mann­inum, fyrir að mæla...
Læknirinn Guðmundur Karl um Covid-faraldurinn: ,,Blekkingarleikurinn er ekki búinn”
Innlent

Lækn­ir­inn Guð­mundur Karl um Covid-far­ald­ur­inn: ,,Blekk­ing­ar­leik­ur­inn er ekki búinn”

Guð­mundur Karl Snæ­björns­son, sér­fræð­ingur í hem­il­is­lækn­ingum segir hættu­legt að afsala ákvarð­ana­töku í lýð­heilsu til mið­stýrðra afla úti í heimi. Guð­mundur Karl, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar segir að við verðum að gera upp Covid-far­ald­ur­inn heild­stætt til þess að ákveðnir hlutir end­ur­taki sig ekki: „Covid er ekki búið að því marki að blekk­ing­ar­leik­ur­inn er ekki búinn. Við getum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins