„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gratíneraðar crépes-pönnukökur með sætum kartöflum, brokkólí og furuhnetum

Gratíneraðar crépes-pönnukökur með sætum kartöflum, brokkólí og furuhnetum
02. tbl. 2019, amer­ískarpönnu­kökur, flottar pönnu­kökur, GE1901168419, pönnu­kökur, pönnu­kökur frá ýmsum löndum, stílisti_Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir, umsjón_Bergþóra Jóns­dóttir Mynd: Hakon Bjornsson

Ekkert jafn­ast á við upprúll­aðar íslenskar pönnu­kökur með sykri þótt sumum finn­ist kannski betra að hafa þær með rjóma og sultu. En það er líka gaman að kynn­ast nýjum aðferðum og baka úr öðrum mjöl­teg­undum. Hérna sjáum við pönnu­kökur í svo­lítið nýjum bún­ing. Þetta er mjög góður ofn­réttur sem hentar vel fyrir alla fjöl­skyld­una með góðu sal­ati og t.d. hrís­grjónum.

Gratíneraðar crépes-pönnukökur með sætum kartöflum, brokkólí og furuhnetum

fyrir 5-6

CRÊPES-DEIG

130 g hveiti
½ tsk. salt
240 ml mjólk
1 msk. smjör, bráðið
2 egg
olía til að smyrja pönn­una með

Blandið hveiti og salti saman og bætið svo mjólk, smjöri og eggjum saman við og hrærið vel í mjúka soppu. Deigið á að vera vel þunnt. Látið deigið standa í ½ tíma. Bætið smá­vegis vatni saman við áður en byrjað er að steika ef deigið hefur þykknað við að standa. Setjið smá­vegis olíu á venju­lega pönnu­kökupönnu eða crêpes-pönnu og steikið þunnar pönnu­kökur.

FYLLING

1 með­al­stór sæt kartafla
1 msk. ólífu­olía
salt og pipar
1 rauð­laukur, saxaður
2 hvít­laukrif
1 með­al­stórt brokk­ólíhöfuð
1 lítil dós kota­sæla
1 msk. tómat­mauk
2 tsk. kórí­and­er­duft
½ tsk. chili-flögur
70 g parmesa­nostur, rif­inn
50 g furu­hnetur, ristaðar
1 dl rjómi

Hitið ofn­inn í 220°C. Skerið sætu kart­öfl­una í ten­inga, bragð­bætið með salti og pipar og blandið ólífu­ol­í­unni saman við. Bakið í 20-25 mín. eða þar til ten­ing­arnir eru eld­aðir í gegn.
Setjið til hliðar. Steikið lauk­inn upp úr olíu þar til hann fer aðeins að brúnast eða í 4-5 mín., setjið hvít­l­auk­inn saman við síð­ustu 2 mín., takið af hit­anum. Blandið öllu sem á að fara í fyll­ing­una en skiljið helm­ing­inn eftir af parmesa­nost­inum og bætið lauknum saman við ásamt sætu kart­ö­flu­ten­ing­unum. Setjið fyll­ing­una í pönnu­kök­urnar og rúllið upp, setjið í eld­fast mót og hellið sós­unni yfir. Setjið afgang­inn af parmesa­nost­inum yfir allt saman, einnig má nota annan rif­inn ost ef vill.

BECHAMEL-SÓSA

50 g smjör
2 msk. hveiti
400 ml mjólk eða eftir þörfum
1 tsk. múskat
½ tsk. pipar
1 tsk. salt

Bræðið smjörið í potti, hrærið hveit­inu saman við og bætið mjólk­inni í skömmtum út í. Setjið múskat, pipar og salt saman við. Látið sós­una sjóða í nokkrar mín­útur við vægan hita. Takið af hit­anum.

Umsjón / Bergþóra Jóns­dóttir
Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Gest­gjaf­inn er vandað fag­tíma­rit um mat, vín og ferða­lög. Allar upp­skriftir í mat­ar­þáttum blaðs­ins eru þró­aðar, eld­aðar og próf­aðar í til­rauna­eld­húsi Gest­gjafans. Blaðið fæst í öllum helstu mat­vöru­versl­unum og bóka­búðum en einnig er hægt að ger­ast áskrif­andi í vef­verslun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

uppskrift

Blómkálshrísgrjón – Ljúffengt lágkolvetnameðlæti
Mannlífið

Blóm­káls­hrís­grjón – Ljúf­fengt lág­kol­vetna­með­læti

Þegar skipt er yfir í lág­kol­vetna­matar­æði getur reynst höf­uð­verkur að finna heitt með­læti sem arf­taka. Blóm­káls­hrís­grjón eru sað­söm, lág í kol­vetnum og frá­bær leið til að auka við græn­met­is­inn­tök­una. Kart­öflur, rót­ar­græn­meti og hrís­grjón eru rík í kol­vetnum og hafa tals­verð áhrif á blóð­sykur lík­am­ans. Blóm­káls­hrís­grjón eru ein­fald­ari í eldun en venju­leg hrís­grjón. Fljót­leg­asta leiðin er að steikja þau á pönnu,...
Frábært lágkolvetna meðlæti: Bakaðar graskerskartöflur
Mannlífið

Frábært lág­kol­vetna með­læti: Bakaðar graskerskart­öflur

Grasker eru sað­söm eins og kart­öflur, en lág í kol­vetnum miðað við rót­ar­græn­meti. Þau eru því til­valin sem með­læti þegar farið er á lág­kol­vetna­matar­æði. Á Íslandi er algeng­asta graskerið „butt­ernut squash“ og er það fáan­legt í nær öllum mat­vöru­versl­unum. Grasker er stór­gott á bragðið og lík­ist helst sætum kart­öflum í áferð og bragði. Hráefni: 1 stk. butt­ernut squash Ólífu­olía til...
Ljúffeng og saðsöm graskerssúpa
Mannlífið

Ljúffeng og sað­söm graskers­súpa

Á köldum vetr­ar­dögum er fátt jafn­við­eig­andi eins og að seðja hungrið með sað­samri súpu. Hér er upp­skrift af góðri og mein­hollri graskers­súpu. Hráefni: 2 msk. ólífu­olía 2 laukar, smátt saxaðir 1 kg nið­ur­skorið grasker eða butt­ernut squash 700 ml græn­met­is­kraftur eða kjúklinga­kraftur 150 ml rjómi Aðferð: Hitið 2 msk. ólífu­olíu í stórum potti, eldið síðan 2 fín­saxaða lauka á vægum...
Sveppasúpa með rósmarín og hvítlauk
Mannlífið

Sveppa­súpa með rós­marín og hvít­lauk

Sveppa­súpa með rós­marín og hvítlak Þessi ljúf­fenga og auð­velda upp­skrift er ,,Keto fri­endly‘‘ og bæði full­komin fyrir mat­ar­boð eða í kvöld­mat­inn á þriðju­degi. Berið fram með stökku brauði. Hráefni: 4 mat­skeiðar ólífu­olía, smjör eða vegan smjör einn stór laukur, skor­inn í bita (eða tveir stórir skalott­laukar) 4 hvít­lauks­geirar, gróf­saxaðir (2–4 í við­bót til þess að skreyta, skornir í sneiðar) 500...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður