„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Forstjóri Samherja sigar lögreglu á uppljóstarann Jóhannes- Segist ekki hafa eitrað fyrir honum

Forstjóri Samherja sigar lögreglu á uppljóstarann Jóhannes- Segist ekki hafa eitrað fyrir honum

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hefur kært upp­ljóstr­ar­ann, Jóhannes Stef­áns­son, til lög­reglu fyrir að halda því fram að eitrað hafi verið fyrir hann. Telur Þor­steinn Már að túlka megi frá­sögn Jóhann­esar þannig að því sé haldið fram að hann og aðrir Sam­herj­a­menn eigi hlut að máli.

Eftir upp­ljóstr­anir Jóhann­esar er hafin rann­sókn á meintum mútum Þor­steins og und­ir­sáta hans í Namibíu. Nokkrir meintir mútu­þegar hafa verið fang­els­aðir. Rann­sóknn nær einnig til Íslands.

For­stjór­inn krefst þess nú að lög­reglu­rann­sókn verði haf­in og að tek­in verði skýrsla af Jó­hann­esi og gagna aflað frá lög­reglu í Suður-Afríku. Þá bendir for­stjóri Samherja lög­regl­unni á það eðli­legt sé að rann­saka í leið­inni hvort fjár­svik hafi verið fram­in í tengsl­um við fjár­söfn­un sem stendur til að kosta lækn­is­með­ferð Jóhann­esar vegna eitr­unar erlendis.

„Þótt full­yrð­ing­ar Jó­hann­es­ar Stef­áns­son­ar séu hreinn hug­ar­burður, sem mun að öll­um lík­ind­um rýra trú­verðug­leika hans enn frek­ar, er ljóst að þær fela í sér mjög al­var­leg­ar ásak­an­ir í garð for­stjóra Sam­herja. Með þeim geng­ur Jó­hann­es jafn­framt mun lengra en áður hef­ur sést,“ seg­ir á vef­síðu Samherja.

Þor­steinn Már seg­ist á vef­síð­unni ekki hafa brugð­ist sér­stak­lega við ásök­un­um Jó­hann­es­ar hingað til. Núna geti hann aft­ur á móti ekki orða bund­ist leng­ur „því nú vill Jó­hann­es meina að ég eða sam­starfs­menn mín­ir hafi gert til­raun til að ráða hon­um bana. Lengra verður ekki ekki gengið en að bera mönn­um á brýn að ætla að ráða menn af dög­um,“ seg­ir Þor­steinn Már og segir sér vera gróf­lega mis­boðið og óhjá­kvæmi­legt að spyrna við fótum.

Kæra Þor­steins Más bendir til þess að hann sé hams­laus af reiði. Jafnramt er áhuga­vert að hann skuli ekki hafa kært upp­ljóstr­ar­ann fyrir rangar sak­ar­giftur með því að hafa lýst því að Sam­herj­a­menn hafi borið mútur á stjórn­mála­menn og emb­ætt­is­menn í Namibíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins