„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kjúklingabaka með sveppum og grænum baunum – Fullkomið í miðri viku

Við elskum bökur! Notið endi­lega afgangs kjúkling í rétt­inn og notið beinin í soð. Hægt er að gera eina stóra böku eða nokkrar litlar.

Ef afgangur verður af fyll­ing­unni má gjarnan nota hana í súpu, þá bætið þið bara við vatni, salti og pipar og meira af græn­meti. Mjög fínt dag­inn eftir.

Kjúklingabaka með sveppum og grænum baunum

fyrir 5 – 6

3 – 4 plötur frosið smjör­deig

½ grill­aður kjúklingur skor­inn í bita, ann­að­hvort keyptur grill­aður eða eld­aður heima
8 dl vatn
2 msk. bragð­lítil olía
10 sveppir, skornir í báta
1 blað­laukur, skor­inn smátt, notið græna hlut­ann í soðið
2 stilkar sell­erí, skorið smátt
1 lít­ill brokk­ólíhaus, smátt skor­inn
2 hvít­lauks­geirar, smátt saxaðir
2 tsk. timían
salt og pipar
3 msk. smjör
3 msk. hveiti
6 – 7 dl af kjúklinga­soð­inu
3 dl grænar baunir, frosnar
5 dl rjómi
2 msk. sítrónu­safi og börkur af einni sítrónu
1 msk. gróft salt
1 – 2 tsk. svartur pipar, nýmal­aður
1 egg til að pensla með
1 msk. timjan

Hitið ofn­inn á 180°C og takið út smjör­deigið. Hreinsið kjúklinga­kjötið af bein­unum, skerið í bita og geymið. Takið svo skinnið og öll beinin og setjið í pott ásamt vatn­inu og græna hlut­anum af blað­lauknum. Sjóðið í 30 – 40 mín­útur á miðl­ung­hita og sigtið svo soðið.

Hitið olíu á pönnu og steikið svepp­ina þar til þeir eru farnir að brúnast, bætið blað­lauk, sell­eríi, brokk­ólí og hvít­lauk á pönn­una og steikið á miðl­ungs­hita í um 10 mín. Bætið við 1 dl af kjúklinga­soð­inu til að bleyta aðeins upp í græn­met­inu. Setjið svo timían, salt og pipar saman við. Takið af hit­anum og geymið í skál.

Á sömu pönnu á miðl­ungs­hita, án þess að þvo hana á milli, bræðið smjör og setjið hveitið saman við. Hrærið vel í og bætið kjúklinga­soð­inu við í smáum skömmtum og hrærið vel í á milli, það er gert til þess að fá kekkja­lausa sósu. Þegar áferðin á sós­unni er orðin eins og þykk súr­mjólk, setjið þá steikta græn­metið, kjúkling­inn og grænu baun­irnar saman við. Látið krauma í dálitla stund og hellið rjóm­anum út í. Setjið að lokum sítrónusafann og börk­inn út í. Látið vera á pönn­unni þangað til kjúkling­ur­inn er aðeins byrj­aður að losna í sundur. Smakkið og bætið við salti og pipar ef ykkur finnst það vanta. Takið af hit­anum, setjið á fat og látið kólna.

Skiptið blönd­unni í nokkur lítil eld­föst mót eða eitt stórt. Fletjið út smjör­deigið þar til það er orðið helm­ingi stærra en það var og setjið ofan á mótið. Það er gott að pensla brún­irnar með egg­inu til að festa smjör­deigið, penslið svo yfir­borðið, skerið 2 raufar í það og stráið timí­ani yfir.

Bakið í um 25 mín­útur eða þar til deigið er orðið fal­lega gyllt á lit­inn.

Umsjón / Gunnar Helgi Guð­jóns­son
Stílisti / Ólöf Jakobína Ernu­dóttir
Ljós­mynd­ari / Hákon Davíð Björns­son

Gest­gjaf­inn er vandað fag­tíma­rit um mat, vín og ferða­lög. Allar upp­skriftir í mat­ar­þáttum blaðs­ins eru þró­aðar, eld­aðar og próf­aðar í til­rauna­eld­húsi Gest­gjafans. Blaðið fæst í öllum helstu mat­vöru­versl­unum og bóka­búðum en einnig er hægt að ger­ast áskrif­andi í vef­verslun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

uppskrift

Blómkálshrísgrjón – Ljúffengt lágkolvetnameðlæti
Mannlífið

Blóm­káls­hrís­grjón – Ljúf­fengt lág­kol­vetna­með­læti

Þegar skipt er yfir í lág­kol­vetna­matar­æði getur reynst höf­uð­verkur að finna heitt með­læti sem arf­taka. Blóm­káls­hrís­grjón eru sað­söm, lág í kol­vetnum og frá­bær leið til að auka við græn­met­is­inn­tök­una. Kart­öflur, rót­ar­græn­meti og hrís­grjón eru rík í kol­vetnum og hafa tals­verð áhrif á blóð­sykur lík­am­ans. Blóm­káls­hrís­grjón eru ein­fald­ari í eldun en venju­leg hrís­grjón. Fljót­leg­asta leiðin er að steikja þau á pönnu,...
Frábært lágkolvetna meðlæti: Bakaðar graskerskartöflur
Mannlífið

Frábært lág­kol­vetna með­læti: Bakaðar graskerskart­öflur

Grasker eru sað­söm eins og kart­öflur, en lág í kol­vetnum miðað við rót­ar­græn­meti. Þau eru því til­valin sem með­læti þegar farið er á lág­kol­vetna­matar­æði. Á Íslandi er algeng­asta graskerið „butt­ernut squash“ og er það fáan­legt í nær öllum mat­vöru­versl­unum. Grasker er stór­gott á bragðið og lík­ist helst sætum kart­öflum í áferð og bragði. Hráefni: 1 stk. butt­ernut squash Ólífu­olía til...
Ljúffeng og saðsöm graskerssúpa
Mannlífið

Ljúffeng og sað­söm graskers­súpa

Á köldum vetr­ar­dögum er fátt jafn­við­eig­andi eins og að seðja hungrið með sað­samri súpu. Hér er upp­skrift af góðri og mein­hollri graskers­súpu. Hráefni: 2 msk. ólífu­olía 2 laukar, smátt saxaðir 1 kg nið­ur­skorið grasker eða butt­ernut squash 700 ml græn­met­is­kraftur eða kjúklinga­kraftur 150 ml rjómi Aðferð: Hitið 2 msk. ólífu­olíu í stórum potti, eldið síðan 2 fín­saxaða lauka á vægum...
Sveppasúpa með rósmarín og hvítlauk
Mannlífið

Sveppa­súpa með rós­marín og hvít­lauk

Sveppa­súpa með rós­marín og hvítlak Þessi ljúf­fenga og auð­velda upp­skrift er ,,Keto fri­endly‘‘ og bæði full­komin fyrir mat­ar­boð eða í kvöld­mat­inn á þriðju­degi. Berið fram með stökku brauði. Hráefni: 4 mat­skeiðar ólífu­olía, smjör eða vegan smjör einn stór laukur, skor­inn í bita (eða tveir stórir skalott­laukar) 4 hvít­lauks­geirar, gróf­saxaðir (2–4 í við­bót til þess að skreyta, skornir í sneiðar) 500...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður