„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Erla segir sorglegt að horfa á viðtalið við Harry prins: „Einn aðili í þessu sambandi sem stjórnar“

Erla segir sorglegt að horfa á viðtalið við Harry prins: „Einn aðili í þessu sambandi sem stjórnar“
Harry prins og Meghan Markle

„Mér finnst sorg­legt að horfa upp á við­talið því að Harry virð­ist vera gera sömu mis­tök og mamma sín, að treysta fjöl­miðlum,“ segir Erla Rafns­dóttir við­mæl­andi Heimis og Gulla í Bítinu í morgun. Erla hefur búið í Bret­landi til fjölda ára og ræddi hún við þá félaga um hið umtal­aða við­tal Opruh við Harry Breta­prins og eig­in­konu hans Meghan Markle.

Erla fór ekki leynt með skoð­anir sínar og sagði Meghan vera hættu­lega kon­ungs­fjöl­skyld­unni og í raun hvaða fjöl­skyldu sem er.

„Ég er þeirrar skoð­unar að það sé bara einn aðili í þessu sam­bandi sem stjórnar,“ segir Erla og á þá við að Meghan sitji í bíl­stjóra­sæt­inu og ráði ríkjum í hjóna­bandi þeirra Harry.

Erla seg­ist ekki vera neinn sér­fræð­ingur, en hún er að læra og lesa sér til um sál­fræði. „Það er skóla­bók­ar­dæmi þegar tveir aðilar koma saman og annar þeirra tekur völd og hel­tekur sam­bandið.“ Hún segir að í slíkum sam­böndum noti sá aðili ýmsar aðferðir til að kúga hinn ein­stak­ling­inn: „Það byrjar þannig að það er verið að flýta allri skuld­bind­ingu, gift­ast og eign­ast börn fljótt.“ En það var einmitt til­fellið hjá Harry og Meghan, tvö ár liðu frá því að þau kynnt­ust og þar til að þau giftu sig. Ári eftir brúð­kaupið eign­uð­ust þau svo lít­inn dreng.
Erla segir að sé þetta borið saman við sam­band William prins og Kate Midd­leton sjá­ist að þar sé allt aðra sögu að segja. En þau giftu sig eftir sjö ára sam­búð.

„Sér­stak­lega að fara inn í svona fjöl­skyldu þá hefði maður haldið að þú myndir taka þinn tíma og sjá hvort þetta myndi ganga. En það var flýtt öllu, allri skuld­bind­ingu flýtt, segir Erla.“

„Þessir aðilar þurfa að fá alla athygl­ina, leika fórn­ar­lambið í sam­band­inu, allir séu á móti sér, mikil afbrýð­is­semi gagn­vart öðrum. Slíta aðil­ann frá fjöl­skyldu og vinum það er skóla­bók­ar­dæmi og gera hinn aðil­ann alveg háðan sér. Og á end­anum tekur kúg­ar­inn allar ákvarð­anir og spilar á til­finn­ingar,“ segir Erla.

Viðtalið við hjónin Harry prins og Meghan Markle hefur vakið mikla athygli og umtal, sem hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum. Í Bret­landi virð­ist fólk skip­ast í tvær fylk­ingar að sögn Erlu, 50 ára og eldri styðja kon­ungs­fjöl­skyld­una, en yngra fólkið sýnir Harry og Meghan sam­hug.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins