„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tröllafoss í klakaböndum: Sjáðu dýrðina í miðju eldstöðvarinnar

Tröllafoss í klakaböndum: Sjáðu dýrðina í miðju eldstöðvarinnar
Félagar í Ferða­fé­lagi Íslands við Trölla­foss.

Trölla­foss er vel falið leynd­ar­mál sunnan við Móskarða­hnúka. Fossinn er í miðju fornar eld­stöðvar og þykir ægi­fagur, hvort sem er að sumri eða vetri. Allir sem leggja leið sína að foss­inum verða snortnir af yfir­þyrm­andi feg­urð­inni.

Trölla­foss er í Leir­vogsá sem á upp­tök sín að mestu leyti úr Leir­vogs­vatni á Mos­fells­heiði. Áin skilur að sveit­ar­fé­lögin Reykja­vík­ur­borg og Mos­fellsbæ. Frá þessu segir á vef Nátt­úru­fræði­stofn­unar Íslands.

Leir­vogsá rennur um Stardal, sem eins og nafnið gefur til kynna, er nokkuð vot­lendur. Í Stardal eru leifar fornrar meg­in­eld­stöðvar sem kennd er við dal­inn. Star­dal­seld­stöðin var virk fyrir um 1,8 millj­ónum ára og er hún mikið rofin. Star­dals­hnjúkar eru grunn­stætt berginn­skot eða bergsylla, lík­lega efsti hluti kviku­þróar eld­stöðv­ar­innar.

Trölla­foss er í miðri öskju hinnar fornu eld­stöðvar. Hann fellur milli hamra ofan í gljúfur sem áin hefur grafið í gegnum Trölla­lágar í mynni Stardals. Fyrir neðan foss­inn breiðir áin úr sér sem slæða yfir bergið. Gljúfrið er um 500 metra langt og 50 til 80 metra breitt og kall­ast Tröllagljúfur.

Tilvalið er fyrir fólk að fá sér göngu­ferð og upp­lifa eina þá feg­urstu perlu sem er að finna í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Að vetri er þó ráð­legt að huga að fóta­bún­aði og fara var­lega þar sem hæst er niður í gljúfrið. Nauð­syn­legt er fyrir fólk að kynna sér vel leið­ina og ani ekki út í vit­leysu. Ferðin er við allra hæfi.

Gangan að foss­inum hefst við bæinn Hrafn­hóla, norðan við Leir­vogsá. Gengið er eftir troðn­ingi með­fram ánni. Þegar nálg­ast foss­inn fer göngu­fólk upp úr gljúfr­inu og fer með brúnum þar til foss­inn blasir við.

Ef fólk er í göngu­st­uði er til­valið að ganga sem leið liggur upp í Hauka­fjöll og fara svo fjallið til baka. Göngu­ferðin er í heild sinni um  5-7  kíló­metrar og hækkun 250 metrar.

Birgir Sig­dórs­son tók mynd­skeiðið með dróna í ferð Ferða­fé­lags Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins