„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Geir prestur fokillur yfir hvernig farið er með gamla fólkið: „Ísland á heimsmet í skattheimtu“

Geir prestur fokillur yfir hvernig farið er með gamla fólkið: „Ísland á heimsmet í skattheimtu“
Séra Geir Waage segir að fátækir séu gerðir að féþúfu.

„Um er að ræða sví­virði­legt ránstól,“ segir séra Geir Waage og er bál­reiður í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu.

Séra Geir er harð­orður og reiðir hátt til höggs til varnar eldri borg­urum sem þurfi að þola kjör sín drag­ast sífellt meira saman, meðal ann­ars með frí­tekju­mark­inu. Frí­tekju­marki, sem sé fundið upp til að mis­muna fólki og hafa tekjur af þeim sem minna mega sín.

„Lífeyrir er enn skatt­lagður sem tekjur, þegar hann er greiddur út, en er að veru­legu leyti til kom­inn sem vextir af þeim höf­uð­stól sem laun­þegar eru lög­þving­aðir til að leggja til hliðar af launum sínum og varð­veita í líf­eyr­is­sjóðum. Nær væri að skatt­leggja þessar greiðslur sem vaxta­tekjur, sem þær í reynd eru að veru­legu leyti.“

„Laun­þegar eiga enga aðkomu að stjórn þess­ara sjóða og verða að reiða sig blind­andi á for­völtun pen­ing­anna sinna hjá öðrum. Yfir þeirri fjárvörzlu allri sitja launa­greið­endur og ávaxta fjeð eins og þeim þykir henta á hverjum tíma. Þar á ofan verða þeir að sæta því, að stjórn­mála­menn láti sem svo, að greiðslur úr líf­eyr­is­sjóðum jafn­gildi rík­is­fram­lagi, enda er elli­líf­eyrir sá, sem greiddur er úr rík­is­sjóði, tengdur líf­eyr­is­sjóðs­greiðslum og skertur niður í nán­ast ekk­ert hjá þeim, sem ein­hverjar tekjur hafa úr eigin líf­eyr­is­sjóði, af eigin sjálfsafla­fje,“ segir séra Geir.

Sér Geir segir sam­fé­lagið skulda þeim sem ólu okkur upp og það sé ekk­ert minna en sví­virða að banna frjálsum mönnum að vinna og gera upp­tækan í rík­is­sjóð afla þeirra af ölm­us­unni, sem búið sé að gera úr elli­laun­unum.

„Þetta er ofur­skattur. Þegar lög­bundnum líf­eyr­is­sjóðs­greiðslum er bætt ofan á aðra skatta á Ísland heims­met í skatt­heimtu. Í allri umfjöllun stjórn­mála­manna virð­ist enda út frá því gengið, að líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur sjeu í reynd skatt­greiðslur og láta þær yfir­taka skuld­bind­ingar rík­is­ins um elli­líf­eyr­is­greiðslur að hluta. Elli­líf­eyrir fólks­ins hefur verið gerður að ölm­usu.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattheimta

Kvíðir bandormi Bjarna: „Hvurn djöfulinn kemur skattinum það við hvar ég held til þessa dagana?“
Innlentskattheimta

Kvíðir band­ormi Bjarna: „Hvurn djöf­ul­inn kemur skatt­inum það við hvar ég held til þessa dag­ana?“

Anna Krist­jáns­dóttir hefur áhyggjur af afnámi per­sónu­af­sláttar þeirra Íslend­inga sem flúið hafa okrið í land­inu. Dag­bók­ar­færsla Önnu Krist­jáns­dóttur frá því um helg­ina hefur vakið athygli en þar talar hún um áhyggjur sínar af því að nú ætli íslenska ríkið að seil­ast í vasa þeirra Íslend­inga sem flúið hafa okrið á Íslandi og flutt til ann­arra landa, með því að hirða...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins