„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Forðist eftirlíkingar og fáið fullnægingu án þess að leita langt yfir skammt!

Þessir for­dæma­lausu tímar hafa áhrif á ótrú­lega margt, þar á meðal kyn­lífið. Að minnsta kosti fyrir þá sem ekki eiga maka. En það má bjarga sér á ótal vegu án þess að önnur mann­eskja, og mögu­lega COVID-smit­beri komi þar nálægt.

Skyndikynni og vinir með ávinn­ingi (e. fri­ends with benefits) er eitt­hvað sem maður verður víst að láta eiga sig í miðjum heims­far­aldri COVID. Jú jú, fúlt er það en þó er óþarfi að láta bug­ast þótt kossar og knús með ókunn­ugum, eða svo gott sem, sé úr mynd­inni í augna­blik­inu. Sagði líka ekki ein­hver: „Sjálfs er höndin holl­ust?“ Stjórn­völd í New York og Washington DC hafa til dæmis sagt að sjálfs­fróun sé örugg­asta leiðin til að fá sér gott í kropp­inn á meðan heims­far­ald­ur­inn geisar.

Það má nota margt annað en Lóu Fimmboga til að gera vel við sig en það er eins í kyn­lífstækja­brans­anum og öðru að það er auð­velt að láta plata sig til að kaupa kött­inn í sekknum. Svo má líka finna ýmis­legt á heim­il­inu sem kostar ekki neitt en gleður.

Að míga í skó­inn sinn er skamm­góður vermir
Úrval kyn­lífstækja er mikið og fjöl­breytt svo eng­inn þarf að kvíða þurrka­tíð eða ótt­ast að verða hand­lama næstu daga vegna áreynslu. Það má kaupa alls konar græjur af öllum stærðum og gerðum. Besta er svo að maður þarf ekki einu sinni að fara út úr húsi til að fjár­festa í einu slíku, það er bara hægt að panta á net­inu og fá sent heim sam­dæg­urs.

Það er þó að ýmsu að huga þegar fjár­fest er í slíku tæki, því þarna úti er líka alls konar dót og drasl sem ekk­ert er jákvætt við nema kannski verð­mið­inn. En það er með hann eins og að míga í skó­inn sinn; ódýr verð­miði er skamm­góður vermir. Bíddu bara þar til græjan gefur sig og í stað þess að fá full­næg­ingu færðu raf­lost. Tala ég af reynslu? Mögulega.

Ekki kaupa kött­inn í sekknum
Í dag eru lang­flest kyn­lífstæki, að minnsta kosti þau vönd­uðu, gerð úr umhverf­is­vænu sili­koni sem auð­velt er að þrífa með ilm­efna­lausri sápu eða þartil­gerðri kyn­lífstækja­sápu. Eft­ir­lík­ing­arnar eru gjarnan gerðar úr efni sem dregur auð­veld­lega í sig bleytu sem þýðir að þar geta óhrein­indi auð­veld­lega safn­ast fyrir. Meiri raki þýðir meiri hættu á sveppa- eða bakt­er­íu­sýk­ingu.

Þá geta gæðin til dæmis hvað varðar raf­hlöðu­end­ingu og kraft verið minni í eft­ir­lík­ing­unum, og eru það pott­þétt, en það sem verra er að í eft­ir­lík­ing­arnar er oft notað þalat, efni sem talið er að geti valdið krabba­meini svo sú ástæða ein og sér ætti að nægja til að maður forð­ist þær eins og heitan eld­inn.

Þú munt örugg­lega ekki sjá ítar­legt, eða einu sinni rétt, yfir­lit yfir inni­halds­efnin sem eru í eft­ir­lík­ing­unum. Oft eru þær nefni­lega fram­leiddar undir litlu eft­ir­liti sem þýðir að reglu­verkið er lítið eða jafn­vel ekki neitt.

Það má líka redda sér á með hinu og þessu sem til er á heim­il­inu.
Ef þú átt maka (skyndikynni ekki í boði í heims­far­aldri manstu) þá kemur til dæmis við­arsleif sterk inn sem áhald til að flengja með, fast eða laust – nefndu það. Og já, nefndu það fyrst við maka þinn til að vera viss um að það sé stemn­ing fyrir fleng­ingu. Gúrkan í ísskápnum hentar vel sem dildó ef þú sérð ekki fram á að ætla að nota hana í sal­atið. Það er samt best að vefja plasti utan um hana, eða smokk, til að forð­ast bakt­er­íu­sýk­ingu. Sturtu­haus­inn, þú veist handúð­ar­inn, er líka til­val­inn að því er kyn­lífs­ráð­gjaf­inn Rachel Needle segir. Þannig nái maður að slá tvær flugur í einu höggi: Verða hreinn og fá full­næg­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynlíf

Samfélagsmiðlaherferð gegn kynsjúkdómum – Lekandasmit á Íslandi ekki fleiri í 30 ár
Innlent

Sam­fé­lags­miðla­her­ferð gegn kyn­sjúk­dómum – Lek­anda­smit á Íslandi ekki fleiri í 30 ár

Ástráður – kyn­fræðslu­fé­lag lækna­nema hófu sam­fé­lags­miðla­her­ferð um kyn­sjúk­dóma í dag, í sam­starfi við Sótt­varn­ar­svið Embættis land­læknis. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu frá Ástráði – kyn­fræðslu­fé­lagi lækna­nema, er helsta mark­mið félags­ins með sam­fé­lags­miðla­her­ferð­inni, sem ber nafnið Trúnó með Ástráði, vera þá að vekja athygli á fjölgun lek­anda­smita í sam­fé­lag­inu og ná tökum á útbreiðslu þeirra. Sjötíu pró­sent auk­ing varð á slíkum smitum milli áranna...
Dóttir Heidi Klum fann kynlífstæki móður sinnar: „Mér fannst þetta það svalasta sem ég hafði séð“
Menning

Dóttir Heidi Klum fann kyn­lífstæki móður sinnar: „Mér fannst þetta það svalasta sem ég hafði séð“

Eldri dóttir Heidi Klum fann kyn­lífstækja­skúffu mömmu sinnar og sýndi vinum sínum. Ofur­fyr­ir­sætan Heidi Klum við­ur­kenndi í við­tali nýlega að eldri dóttir hennar, Leni Klum, sem hún á með fyrr­ver­andi eig­in­manni sínum, söngv­ar­anum Seal, hafi eitt sinn fundið kyn­lífstækja­safn hennar, fyrir til­viljun, eða eins og Heidi orðar það: „Hún fann kyn­lífs­skáp­inn minn.“ Þrátt fyrir að atvikið hafi átt sér stað...
Britney lýsir kynlífi hennar og Farrell við „götubardaga“: „Slagsmál er eina orðið yfir þetta“
Menning

Britney lýsir kyn­lífi hennar og Farrell við „götu­bar­daga“: „Slagsmál er eina orðið yfir þetta“

Britney Spears líkir kyn­lífi sínu með Colin Farrell við „götu­bar­daga“, í nýrri ævi­sögu, sem beðið er með óþreyju en bókin heitir The Woman in Me. Hin 41 ára poppprinsessa, átti tveggja vikna ást­ar­æv­in­týri með írska stór­leik­ar­anum Colin Farrell árið 2003, stuttu eftir að hún hætti með Justin Tim­berlake. Britney hitti Colin í gegnum vin sinn en hún sagði að þau...
„Tantrafræðin lýsa kynlífi sem einni af grunnþörfum mannsins“
Innlentkynlíf

„Tantra­fræðin lýsa kyn­lífi sem einni af grunn­þörfum manns­ins“

„Kynorkan knýr okkur áfram, ýtir undir lang­anir og gerir okkur for­vitin um heim­inn. Kynorkan kveikir í okkur og fær okkur til að upp­götva nýjar hliðar á til­ver­unni, sér­stak­lega ef þær lofa nautn og vellíðan. Ef þessi orka er í ójafn­vægi getur það fram­kallað allskyns fíkn, lang­anir eða sjúk­dóma sem geta dregið okkur til dauða.“ Blaða­maður Mannlífs ræddi við Serafim Arnar...
Hvað myndi breytast hjá þér ef þú hlustaðir á hvað kynhvötin þín hefur raunverulega að segja?
Innlentkynlíf

Hvað myndi breyt­ast hjá þér ef þú hlust­aðir á hvað kyn­hvötin þín hefur raun­veru­lega að segja?

„Ég ákvað að rann­saka and­lega hlið kyn­lífs svo ég gæti kafað dýpra ofan þessa unaðstengdu kennslu,“ segir Birna M. Gustafs­son, kyn­fræð­ingur hjá Losta, í sam­tali við Mannlíf. Birna fer yfir ýmiss konar tækni tengda kyn­lífi, en segir að lyk­il­at­riðið sé að njóta sín. „Það getur verið erfitt að ein­beita sér að unaði þegar hug­ur­inn vill vera ann­ars staðar – stundum...
Sigga Dögg telur ýmislegt vanta upp á umræðu um BDSM: „Masterclass í valdadýnamík“
Innlent

Sigga Dögg telur ýmis­legt vanta upp á umræðu um BDSM: „Masterclass í valda­dýnamík“

Sigríður Dögg Arn­ar­dóttir kyn­fræð­ingur, eða Sigga Dögg eins og hún er alltaf kölluð, var í ein­lægu og opin­skáu helg­ar­við­tali Mannlífs um liðna helgi. Sigga Dögg hefur verið í þunga­miðj­unni á heitri og oft óvæg­inni sam­fé­lags­um­ræðu und­an­farið. Í við­tal­inu fer hún um víðan völl; ræðir þeyti­vindu sam­fé­lags­miðla, berg­máls­hella og fræðir blaða­mann um hluti tengda kyn­fræðslu, BDSM og það hvernig hún nálg­ast...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu