„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kvíði og þunglyndi hröktu tveggja barna móður úr námi – 18 þúsund krónur til að lifa af mánuðinn

Kvíði og þunglyndi hröktu tveggja barna móður úr námi – 18 þúsund krónur til að lifa af mánuðinn

„Ég hafði lokið þremur árum í lækn­is­fræði við Háskóla Íslands þegar ég varð að hætta námi vegna kvíða og þung­lyndis,“ segir rúm­lega fer­tug tveggja barna móðir.

Í dag, 11 árum seinna, er hún ein af 73 konum sem Mennt­un­ar­sjóður Mæðra­styrks­nefndar Reykja­víkur styrkir til náms þetta skóla­árið. Hún leggur nú loka­hönd á masters­rit­gerð í mat­væla­fræði og treystir sér ekki til þess að koma fram undir nafni.

Lífið er ófyr­ir­sjá­an­legt og tekur oft óvæntar sveigjur. Eftir að hafa orðið að hverfa frá námi í lækn­is­fræði, tóku við ár þar sem áherslan var fyrst og fremst lögð á að ná betri tökum á heilsu og líðan. Fyrir um fimm árum síðan var hins vegar aftur komið að því að halda áfram námi.

Bætur fara stutt

Mögu­leikar til atvinnu þennan tíma höfðu verið tak­mark­aðir og hún hafði reitt sig á end­ur­hæf­ingar- og örorku­bætur. Hins vegar duga slíkar bætur stutt þegar óvænt útgjöld koma upp á líkt og oft ger­ist í barna­fjöl­skyldum. „Það var fyrir ári, eftir röð atvika, sem ég leit­aði til Mæðra­styrks­nefndar.“

„Ég átti 18 þús­und inni á banka­reikn­ingi í upp­hafi mán­aðar og það voru að koma páskar.“ Þetta var í fyrsta sinn sem hún hafði leitað eftir stuðn­ingi og lýsir því að það hafi verið ákveð­inn þrösk­uldur að stíga þetta skref, en að sér hafi verið tekið af hlýju í þessum erf­iðu aðstæðum og meðal ann­ars bent á að hún gæti sótt um styrk fyrir skóla­gjöldum og náms­gögnum í Mennt­un­ar­sjóð Mæðra­styrks­nefndar.“

Stuðningurinn breytir öllu

„Að vita að ég stend ekki ein og á stuðn­ing vísan hefur bein áhrif á líðan mína,“ segir hún og bendir á að stöðugar áhyggjur af því að láta enda ná saman auki aðeins á og við­haldi sjúk­dóms­ein­kennum. „Það skiptir svo miklu máli fyrir heilsu mína að vita að ég hef stuðn­ing. Til dæmis hafði ég miklar áhyggjur af því hvað tölvan mín, þar sem öll mín gögn voru vistuð og þar sem kennslan fór fram, var orðin léleg. Meira að segja hljóðið var hætt að virka. Þá tók Mennt­un­ar­sjóður við og styrkti mig með tölvu og létti þannig af mér þessum kvíða­valdi.“

Hún lýsir því jafn­framt hvernig áhyggjur af því að eiga fyrir skóla­gjöldum og námstengdum kostn­aði hafi bæst ofan á áhyggjur af öðrum útgjöldum heim­il­is­ins. „Að eiga fyrir þessu var streitu­valdur sem lagð­ist yfir og eyði­lagði sum­arið. Þess vegna, þegar ég veit nú að allir þessir hlutir, náms­gjöld og bóka­styrkur eru tryggir, þá er það svo stór partur af því að draga úr áhyggjum…

Mér líður miklu betur af því að ég veit að þetta verður allt í lagi,“ segir hún og bætir svo við, „það verður allt svo miklu skemmti­legra og létt­ara þegar ég veit að endar ná saman.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins