„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mikð að gera hjá Sigþrúði og stöllum hennar í Kvennaathvarfi: „Heimilisofbeldið aukist í Covid“

Mikð að gera hjá Sigþrúði og stöllum hennar í Kvennaathvarfi: „Heimilisofbeldið aukist í Covid“
Sig­þrúður Guð­munds­dóttir, fram­kvæmda­stýra Kvenna­at­hvarfs­ins.

Það er mikið að gera hjá Kvenna­at­hvarf­inu þessa dag­ana en starfs­konur leita allra leiða til að búa íbúum gott og öruggt heim­ili.

Sig­þrúður Guð­munds­dóttir, fram­kvæmda­stýra Kvenna­at­hvarfs­ins, segir erfitt að segja til um hver ástæðan sé. „Hér eru reyndar barn­margar konur núna svo að það hefur vissu­lega áhrif.”

Sig­þrúður segir að Kvenna­at­hvarfið hafi tek­ist á við Covid bylgur með margs konar aðgerðum. „Við höfum leigt hús­næði til að skipta upp hópum svo og gripið til aðgerða innan húss til að halda athvarf­inu smit­fríu“.

„Við vitum að það eru vís­bend­ingar um að heim­il­is­of­beldi hafi auk­ist í Covid far­aldr­inum, þær upp­lýs­ingar höfum við fengið bæði frá lög­reglu og barna­vernd­ar­yf­ir­völdum. En það er erfitt að segja til um hvort aðsóknin sé vegna auk­ins ofbeldis eða hvort sé um að ræða að konur séu dug­legri að leita sér aðstoðar.”

Ljós í myrkinu

Sig­þrúður segir að þegar Covid skall á hafi hún ótt­ast aukið heim­il­is­of­beldi en það hafi komið ánægju­lega á óvart hversu dug­legir allir við­bragðs­að­ilar hafi verið að tengja Covid og heim­il­is­of­beldi saman.

„Eig­in­lega alveg frá byrjun má segja að yfir­völd hafi gert sér grein fyrir þess­ari áhættu og komið þeim skila­boðum út í þjóð­fé­lagið með aug­lýs­ingum, á blaða­manna­fundum og við­tölum svo fátt eitt sé nefnt.” Að sögn Sig­þrúðar er fátt gott að segja um Covid far­ald­ur­inn en þarna sé þó ljós í myrkr­inu, upp­lýs­inga­gjöf hafi auk­ist og í kjöl­farið séu  konur með­vit­aðri og leitað sér frekar hjálpar. „Við vitum að lít­ill hluti kvenna sem verða fyrir heim­il­is­of­beldi leita til okkar. En því fleiri sem vita af okkur, því betra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins