„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Páll Samherjaskipstjóri hraunar yfir Helga Seljan- Góða fólkið oft hreinir hræsnarar

Páll Samherjaskipstjóri hraunar yfir Helga Seljan- Góða fólkið oft hreinir hræsnarar

„Í hnot­skurn má segja að starfs­menn Rík­is­út­varps­ins hafi í raun aftengt lög­bundið hlut­leysi RÚV með verkum sínum,” segir Páll Stein­gríms­son, skip­stjóri hjá Samherja, í aðsendri grein á Vísi.

„Góða fólkið“

Páll er ævar­eiður út í það sem hann segir stundum er nefnt „góða fólkið“ í opin­berri umræðu hér á landi en sé oft á tíðum alls ekki gott eða vel inn­rætt og oft hreinir hræsnarar upp til hópa. „Þetta fólk sér flís­ina í auga náung­ans en ef það er gert aft­ur­reka með sína gagn­rýni, eða þarf að kyngja henni, mætir það nið­ur­stöð­unni með þögn, hunsar hana eða telur hana ekki skipta máli fyrir sig.”

Hann segir við­brögð Rík­is­út­varps­ins og stuðn­ings­manna þeirra við nýbirtum úrskurði siða­nefndar rík­is­fjöl­mið­ils­ins vera klass­ískt dæmi um þetta. „Síð­ast­lið­inn föstu­dag kvað siða­nefndin upp úrskurð þess efnis að frétta­maður Rík­is­út­varps­ins hefði gerst brot­legur við siða­regl­urnar með skrifum sínum á Twitter og Facebook um mál­efni tengd Samherja. Um er að ræða ákvæði í siða­reglum Rík­is­út­varps­ins sem leggur bann við því að starfs­fólk, sem sinnir fréttum og dag­skrár­gerð, taki opin­ber­lega afstöðu um umdeild eða póli­tísk mál á sam­fé­lags­miðlum. Þessu ákvæði er meðal ann­ars ætlað að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra og tryggja hlut­leysi frétta­manna og frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins.”

„Helgi vanhæfur“

Páll skýtur einnig föstum skotum á Helga Seljan frétta­mann og bendir á að siða­nefndin telji brot Helga alvar­leg. Hann segir Helga van­hæfan til að fjalla um mál­efni Samherja. „Menn þurfa að vera sér­stak­lega inn­rétt­aðir til þess skrifa svona mikið um eitt fyr­ir­tæki í frí­tíma sínum. Sér­stak­lega þegar þeir fjalla mjög reglu­lega um þetta sama fyr­ir­tæki í starfi sínu sem frétta­menn. Þetta og margt fleira styður þá ályktun að við­kom­andi hafi haft Samherja á heil­anum og beitt sér sér­stak­lega gegn fyr­ir­tæk­inu í starfi sínu.“

„Fréttaflutningur af eigin geðþótta“

Og Páll heldur áfram. „Það virð­ist hafa farið fyrir brjóstið á frétta­mann­inum að Samherji rifj­aði upp á heima­síðu sinni, þegar úrskurður siða­nefnd­ar­innar lá fyrir, að við­kom­andi hefur ítrekað við­haft ámæl­is­verð vinnu­brögð í tengslum við umfjöllun um Samherja í miðlum Rík­is­út­varps­ins und­an­far­inn ára­tug. Hefur hann orðið upp­vís að því að hag­ræða gögnum, slíta upp­lýs­ingar úr sam­hengi og laga frétta­flutn­ing að eigin geð­þótta.“

Páll til­tekur mörg dæmi þar sem hann telur Samherja ekki hafa notið sann­mælis í frétta­flutn­ingi hjá Rík­is­út­varp­inu, meðal ann­ars um frétt um und­ir­verð­lækn­ingu fisks, nið­ur­fell­ingu saka­mála­rann­sóknar og Noregi á við­skiptum Samherja við norska bank­ann DBN. „Í þriðja lagi var óeðli­legum sam­skiptum frétta­manns­ins og fyrrum fram­kvæmda­stjóra hjá Seðla­bank­anum stungið undir stól í skjóli ein­hvers konar trún­aðar við starfs­menn og heim­ild­ar­menn. Höfðu þau tvö verið í sam­skiptum í margar vikur í aðdrag­anda hús­leitar hjá Samherja og hafði frétta­mað­ur­inn sent fram­kvæmda­stjór­anum upp­færð drög að frétt um hús­leit­ina til yfir­lestrar dag­inn áður en hún fór fram.”

„Skotgrafahernaður gegn Samherja“

„Í hnot­skurn má segja að starfs­menn Rík­is­út­varps­ins hafi í raun aftengt lög­bundið hlut­leysi RÚV með verkum sínum. Þá hafa þeir varpað heil­brigðum starfsvenjum fyrir róða í því skyni að halda áfram skot­graf­ar­hern­aði gegn Samherja.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins