„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Stjórnarmaður RÚV harðorður: „Fokkið ykkur“ Samherji – Siðareglurnar endurskoðaðar

Stjórnarmaður RÚV harðorður: „Fokkið ykkur“ Samherji – Siðareglurnar endurskoðaðar

„Mín túlkun á bréf­inu til Samherja er sú að við séum að segja, fokkið ykkur,“ segir Mörður Árnason, stjórn­ar­maður hjá Rík­is­út­varp­inu.

Stjórnin hélt fund í gær þar sem meðal ann­ars var tekin fyrir krafa Samherja, stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækis lands­ins, um að einn frétta­manna RÚV, Helgi Seljan, fjalli ekki um mál­efni fyr­ir­tæk­is­ins á vett­vangi RÚV og að hann verði áminntur fyrir brot í starfi.

„Við fengum bréf frá Samherja og við svörum bréfum. Það er bara almenn kur­steisi og það sem fólk gerir þegar það fær bréf,” segir Mörður. „Per­sónu­legt álit mitt og nokk­urra ann­arra stjórn­ar­manna er að Helgi sé að bregð­ast við árás stór­fyr­ir­tækis á sig og ell­efu aðra starfs­menn RÚV. En þetta er ekki á okkar verk­sviði og við komum því á fram­færi við Samherja með form­legu og þurru bréfi. Við munum ekki aðhaf­ast neitt frekar í mál­inu.“

Mörður segir enga drama­tík hafa verið í spil­inu. „Þetta var bara venju­legur stjórn­ar­fundur og þetta bréf fór undir lið­inn önnur mál. Við fylgj­umst með rekstri og störfum RÚV en það er af og frá að við förum að skipta okkur að verka­skipt­ingu ein­stakra ein­stak­linga sem þar starfa. Það er á hendi útvarps­stjóra og ef stjórnin væri óánægð með störf hans myndi hún reka hann. En hann, ásamt frétta­stjóra og vara­f­rétta­stjóra, eru að standa sig. Sumir telja að Helgi hafi ef til vill farið fram úr sér en hann fellur á þessu ákvæði í siða­regl­unum, þar er fund­inn högg­staður á honum. En það er verið að end­ur­skoða þær.”

Að mati Marðar eru siða­regl­urnar nokkuð sér­kenni­legar. „Okkur er sagt að starfs­menn hafi samið þær en eng­inn starfs­maður vill kann­ast við að hafa komið nálægt því. Þetta er allt saman hæfi­leik­a­ríkt fólk sem situr í siða­nefnd en vegna þessa ákvæðis gátu þau lítið annað. En þær komust ein­hvern veg­inn í gegn og nú bítur þetta ákvæði í rass­inn á RÚV,“segir Mörður.

Formlegt svar stjórnar má sjá hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins