„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bryndís og Bogi segjast í járnkló barnsmóður og kerfisins: „Þú hvorki beygir okkur né brýtur“

Bryndís og Bogi segjast í járnkló barnsmóður og kerfisins: „Þú hvorki beygir okkur né brýtur“

Hjónin Bryndís Rán Birg­is­dóttir og Bogi Hall­gríms­son verj­ast nú fyrir dóm­stólum gagn­vart barns­móður Boga sem fyrir ári síðan krafð­ist með­lags sjö ár aftur í tím­ann þrátt fyrir að þau hafi fram til þessa haft jafna umgengni. Í jan­úar síð­ast­lið­inn bætt­ist svo við krafa um tvö­falt með­lag og skerta umgengi Boga við barnið miðað við það sem verið hefur.

Frá þessu greinir Bryndís í færslu á Facebook þar sem hún seg­ist hrein­lega eiga við ofurefli að etja. Eitt sé reiði barns­móð­ur­innar en annað og verra sé gallað kerfið. „Ég ætla ekki að fara út í smá­at­riði hvernig líð­anin hefur verið. en ég get alla­vega sagt að þetta mál hefur haft mikil og víð­tæk áhrif á líf okkar. Þetta hefur ekki bara reynt á okkur, heldur fjöl­skyldur okkar, börn og þá vini sem standa okkur næst,“ segir Bryndís.

„Eina fólkið sem græðir eru lög­fræð­ingar, allir aðrir tapa.“

Í gær var krafan um með­lag sjö ár aftur í tím­ann tekin fyrir í hér­aðs­dómi og þurfa þau hjónin þú að bíða nið­ur­stöð­unnar í ofvæni. Krafan nemur rúmum þremur millj­ónum króna. „Aðförin að okkur af hálfu barns­móð­ur­innar hefur verið hörð og ósann­gjörn. Það sjá það flestir að það er gjör­sam­lega galið að lög­heim­il­is­for­eldri geti dregið hitt for­eldrið sem ekk­ert hefur unnið sér til saka inn í slíka atburð­ar­rás. Eins og stór­vinur okkar orð­aði það þá liggur vand­inn hjá kerf­inu en ekki reiðu fólki í hefnd­ar­hug,“ segir Bryndís og heldur áfram:

„Við höfum ekk­ert að fela. Við höfum staðið við allar okkar skuld­bind­ingar og ekki er hægt að sýna fram á neitt annað. Við erum með­vituð um að sprengjuregn­inu er hvergi nærri lokið. Auðvitað er ákveðin léttir að málið sé komið þetta langt enda þýðir það að við sjáum fyrir endan á því. En þessu er hvergi nærri lokið, á sama tíma erum við að berj­ast gegn kröfu um tvö­falt með­lag ár aftur í tím­ann og að berj­ast fyrir að við höldum í for­sjá og umgengn­is­rétt.“

Bryndís segir málið sorg­legt í alla staði þar sem eng­inn sig­ur­veg­ari standi uppi. „Hverja hags­muna er verið að gæta með svona aðför? Er verið að gæta hags­muna barns með því að gera hitt heim­ilið gjald­þrota? Þegar horft er á heild­ar­mynd­ina eru það ekki pen­ingar sem skipta máli. Þetta er ekki mál sem ein­hver vinnur. Eina fólkið sem græðir eru lög­fræð­ingar, allir aðrir tapa. Eftir stendur að dýr­mætur tími og fjár­munir sem fóru til spillis og sál­ar­líf allra sem sviðin jörð. Við vitum að sprengjuregn­inu er hvergi nærri lokið, spurn­ing er bara hvenær næsta sprengja fellur og af hvaða strærð­argráðu hún verður. En eitt mátt þú vita að þú hvorki beygir okkur né brýtur,“ segir Bryndís ákveðin.

Hér að neðan má sjá frek­ari frá­sögn Bryn­dísar af átökum þeirra hjóna við barns­móð­ur­ina og kerfið:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins