„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Helgi, sonur Sesselju, tók eigið líf í Þýskalandi: „Þá ætlaði ég að drepa mig líka“

Helgi, sonur Sesselju, tók eigið líf í Þýskalandi: „Þá ætlaði ég að drepa mig líka“

Helgi Már Krist­jánssson tók í hitti­fyrra sitt eigið líf 31 árs gam­all á geð­deild í Leipzig í Þýska­landi. Vegna mann­legra mis­taka hér á landi frétti fjöl­skylda hans ekki af and­lát­inu fyrr en viku síðar og var móðir hans, Sesselja Anna Ólafs­dóttir, þá að fara að heim­sækja hann. Hún talar hér um son sinn og sorg­ina. „Ég gat eig­in­lega ekk­ert borðað í ábyggi­lega mánuð eftir þetta. Ég gat varla kyngt vatni. Það lok­að­ist allt. Ég fann alla lykt miklu sterkar. Allt bragð var miklu meira. Og lit­irnir voru allir miklu fal­legri. Þetta var hrika­legt áfall. Það er ekki hægt að lýsa því. Ég fór í djúpa holu. Þetta átti ekk­ert að ger­ast.“

Sesselja Anna Ólafs­dóttir var 21 árs þegar frum­burður hennar kom í heim­inn 20. febr­úar árið 1988. Fæðingin gekk vel og fljótt fyrir sig.

Lítill, fal­legur drengur. Með skoll­itað hár. Blá augu.

Helgi var ynd­is­legt barn á allan hátt. Hann var vina­margur, varð fljótt læs og var afbragð­snem­andi. Hann var alltaf góður og það elsk­uðu hann allir.

„Hann var ynd­is­legur þegar hann fædd­ist. Það var ynd­is­legt þegar hann kom. Það er sér­stakt að eign­ast sitt fyrsta barn. Það er svo dásam­legt. Hann var rosa­lega kröft­ugur þegar hann fædd­ist. Bara flottur. Ynd­is­legur. Mér fannst allt vera full­komið við hann.“

Tíminn leið og Sesselja og faðir Helga eign­uð­ust saman tvö önnur börn næsta ára­tug­inn og bjó fjöl­skyldan í Bol­ung­ar­vík.

„Lífið í Bol­ung­ar­vík var ynd­is­legt og okkur leið öllum vel. Helgi var ynd­is­legt barn á allan hátt. Hann var vina­margur, varð fljótt læs og var afbragð­snem­andi. Hann var alltaf góður og það elsk­uðu hann allir. Hann kom með hug­myndir og var frum­kvöð­ull í að gera eitt­hvað og allir krakk­arnir elsk­uðu að leika við hann. Hann var flottur skíða­maður og æfði sund og fót­bolta. Það var ekk­ert vesen á honum.“

Sesselja hefur lengi haft gaman af því að teikna og hún teikn­aði fal­legar myndir fyrir frum­burð­inn.

„Honum þótti vera gaman að láta teikna fyrir sig. Hann sagði einu sinni: „Mamma, þú getur teiknað allt.“ Hann hafði mik­inn áhuga á því að teikna sjálfur, leika og syngja. Hann fædd­ist lista­maður í sér. Mikill lista­maður.

Jú, tím­inn leið. Árin liðu.

„Við þroskuðmst frá hvort öðru, ég og pabbi hans. Við skildum þegar Helgi var 12 ára. Fórum í sitt­hvora átt­ina. Ég kynnt­ist síðan núver­andi mann­inum mínum. Hann vildi flytja til Bol­ung­ar­víkur en þar var ekk­ert starf fyrir hann þannig að við fluttum til Reykja­víkur. Í Árbæinn. Helga virt­ist líða vel og hann varð fljótt vina­margur. Hann fór að læra tón­list; hann spil­aði alltaf eftir eyr­anu en hann gat alveg spilað eftir nótum.“

Helgi var far­inn og allt búið. Mér finnst hluti af mér vera far­inn. Það er eins og hluti hjart­ans sé far­inn. Mig lang­aði ekk­ert til að lifa lengur

Gítar og píanó.

Sesselja og núver­andi maður hennar eign­uð­ust síðan tvö börn.

Magaverkir

Sesselja segir að Helga hafi farið að líða illa þegar hann var í 9. bekk.

„Hann fann sig ekki. Hann var alltaf með háar ein­kunnir en þá fór að þró­ast ung­linga­vanda­mál hjá honum. Ekkert alvar­legt samt. Hann sagði þó seinna meir að sér hafi ekki liðið vel í skól­anum. Hann átti kær­ustu á þessum tíma og fullt af vinum. Ég tók ekki eftir því að honum liði illa nema þessu áhuga­leysi á nám­inu. Ég átt­aði mig ekki á því. Hann hætti að stunda námið og ég hafði áhyggjur af því og sendi hann haustið eftir til frænku hans og ömmu og kláraði hann grunn­skól­ann á Lauga­landi og var hann sáttur við það. Hann tók 10. bekk­inn þar og útskrif­að­ist með góðar ein­kunnir. Það var erfitt fyrir mig þegar hann flutti þangað vegna þess að við vorum svo miklir vinir. Það var ekk­ert að þannig séð en ég hafði áhyggjur af því að hann hafði hætt að stunda námið í Árbæj­ar­skóla; kannski tengd­ist það ein­hverjum ung­linga­leiða. Hann kom alltaf til Reykja­víkur um helgar þennan vetur; ég sótti hann.“

Helgi hóf síðan nám við Mennta­skól­ann að Laug­ar­vatni.

„Honum leið þar vel og náði öllum prófum en hann var þar bara í einn vetur. Hann féll á mæt­ingu og skóla­stjór­inn vildi í raun­inni ekki leyfa honum að halda áfram. Hann þurfti að hætta í skól­anum sem var leið­in­legt af því að honum leið vel.“

Helgi hóf svo nám á mynd­list­ar­braut Fjöl­brauta­skól­ans í Breið­holti og útskrif­að­ist sem stúd­ent nokkrum árum síðar. Hann hafði áhuga á að fara í fram­halds­nám erlendis og fór að vinna til að safna sér pen­ing. Hann fékk á þessum tíma botn­langa­bólgu­kast, fór í aðgerð og segir Sesselja að hann hafi eftir það oft fengið mikla maga­verki sem héldu jafn­vel fyrir honum vöku en að aldrei hafi komið í ljós af hverju þeir stöf­uðu. Hann vann síðan á hesta­bú­garði í Belgíu í nokkra mán­uði og segir Sesselja að það hafi verið farið illa með hann þar og að það hafi í raun­inni verið um vinnu­þrælkun að ræða.

Hann hefur senni­lega gef­ist upp þegar hann fékk neitun um styrk. Eða vegna verkj­anna. Maður veit ekki hvað það var.

Peningaaðstoð

Helgi flutti árið 2012 til Leipzig í Þýska­landi þar sem hann stefndi á að fara í list­nám.

„Hann var ein­hvern tíma að koma sér fyrir og þurfti að taka þýsku­á­fanga þannig að hann fór ekki strax í háskóla­námið og hann kom heim til dæmis um jólin.“

Hann seldi samt örugg­lega myndir; maður veit svo lítið um börnin sín þó maður haldi sig vita allt.

Helgi flutti með vin­konu sinni til Lett­lands árið 2014 þar sem hann fór að vinna í grunn­skóla en hann vann sem leið­bein­andi og kenndi krökkum um mynd­list og tón­list auk þess sem hann hélt þar mynd­list­ar­sýn­ingar.

Helgi vann eftir þetta líka um tíma í grunn­skólum á Íslandi og vann líka í sjoppu á kvöldin. Hann fór svo aftur til Leipzig til að reyna aftur að kom­ast inn í lista­skól­ann og komst hann inn í skól­ann árið 2016.

„Hann var ótrú­lega ánægður. Það var eitt­hvað svo erfitt fyrir hann að halda nám­inu áfram; hann var alltaf í ein­hverju námi þarna úti en ég var eig­in­lega hætt að fylgj­ast með það mikið með.“

Hann hélt mynd­list­ar­sýn­ingar og spil­aði á gítar með hljóm­sveitum sem komu fram á tón­leikum hér og þar.

Hann var alltaf hæfur lista­maður en fékk senni­lega aldrei borgað fyrir neitt.

„Hann var alltaf hæfur lista­maður en fékk senni­lega aldrei borgað fyrir neitt. Þegar hann hélt eina mynd­list­ar­sýn­ing­una hringdi hann í mig rosa glaður og sagði: „Mamma, veistu hvað? Einni mynd­inni minni var stolið.“ Hann var svo ham­ingju­samur yfir því að ein­hver vildi stela mynd eftir hann.

Ég styrkti hann alltaf fjár­hags­lega og sendi honum pen­inga alltaf þegar hann þurfti – þegar hann var ekki með vinnu eða fékk ekki borgað fyrir vinn­una. Hann var barnið mitt. Maður vill alltaf styrkja barnið sitt. Hann var oft að bjóða mér í heim­sókn en ég var alltaf að styrkja hann og mér fannst vera betra að styrkja hann fjár­hags­lega heldur en að fara að heim­sækja hann. Pabbi hans hjálp­aði honum líka.“

Sesselja er spurð hvers vegna hann hafi ekki fengið náms­lán.

„Mögulega var hann ekki í fullu námi en alla­vega var hann alltaf á þeim jaðri að fá lán eða styrki. Hann seldi samt örugg­lega myndir; maður veit svo lítið um börnin sín þó maður haldi sig vita allt. Ég heyrði að það hafi verið settar upp myndir eftir hann í skól­anum í Lett­landi þar sem hann vann. Hann seldi líka myndir hér heima en ég veit mjög lítið um þetta allt. Ég vissi alltaf að hann fékk ekk­ert borgað sem lista­maður. Listin veitti honum aðal­lega ham­ingju. Hann var mik­ill lista­maður. Þetta var alltaf harka. Hann var að spila og syngja og skapa mynd­list. Allt þetta. Það komu aldrei pen­ingar. Því miður eru margir lista­menn ekki á launum og fá ekki greitt fyrir að vera lista­menn. Það var oft verið að spyrja bæði mig og hann hvort hann ætl­aði ekki að fara að vinna þegar hann var í lista­námi. Ég reyndi á sínum tíma að leita aðstoðar hér heima upp á hvort hann hefði rétt á styrk af því að hann var í námi. Ég fór til félags­ráð­gjafa sem spurði mig hvort ég gerði mér grein fyrir því að hann væri örugg­lega að nota pen­ing­inn sem ég sendi honum í fíkni­efni. Félags­ráð­gjaf­inn sagði að Helgi þyrfti að fara að hugsa um sig sjálfur fjár­hags­lega sem var vissu­lega rétt hjá henni. Ég fékk skömm­ina; að ég væri að fóðra fíkil­inn og að ég ætti að hætta að fóðra hann. Sem fag­maður á fólk að hugsa um hvað það segir áður en það segir það. Þá fór ég að hugsa um hvort ég ætti að hætta að styrkja hann fjár­hags­lega og hvort hann væri að neyta fíkni­efna en ég átti erfitt með að trúa því af því að ég sá ekki nein merki þess. Ég spurði vini hans þá en þeir könn­uð­ust ekki við að hann hafi verið í neyslu. Hann drakk mjög lítið; helst ef honum væri boðið rauð­vín með mat. Læknir á Íslandi lét hann einu sinni fá verkja­lyf vegna maga­verkj­anna sem Helgi hefði getað notað og selt en þegar hann fór svo til Þýska­lands í kjöl­farið skildi hann lyfin eftir í skápnum hjá mér og ég lét farga þeim. Hann var ekki fík­ill á neinn hátt.

Ég vissi alltaf að hann fékk ekk­ert borgað sem lista­maður. Listin veitti honum aðal­lega ham­ingju.

Ég gaf Helga síðan flotta afmæl­is­gjöf þegar hann varð þrí­tugur og hugs­aði með mér að nú væri ég hætt að styrkja hann. Ég sagði á þessum tíma að hann þyrfti að leita sér stuðn­ings og gera þetta sjálfur. Hann vissi að hann þurfti að leita sér aðstoðar. Ég sagði að ég og pabbi hans gætum ekki alltaf verið að styrkja hann. Ég sagð­ist myndi samt alltaf hjálpa honum ef hann þyrfti aðstoð en von­aði að hann myndi finna réttu leið­ina þar sem ég gæti ekki alltaf stutt hann í lista­manns­líf­inu.“

Ljóð eftir Helga:

Tíminn

Þegar ég vakn­aði var kom­inn vetur, og ég nennti ekki á fætur. Þegar ég kom fram var kom­inn febr­úar og ég var ekki búinn að hella upp á kaffi. Blaðið kom ekki fyrr en í apríl, það skreið inn um bréfalúg­una og hopp­aði ofan í hóp reikn­inga sem voru löngu komnir yfir eindaga. Þegar ég lagði af stað var komið vor, og ég var allt of seinn. Er ég kom í vinn­una var kom­inn júní, og ég fékk ekk­ert sum­ar­frí í kaffi­hléinu. Ég sett­ist við skrif­borðið og kom engu í verk fyrr en seint í ágúst. Ég lagði af stað heim í byrjun sept­em­ber og var kom­inn fyrir lok nóv­em­ber. Eftir kvöld­mat­inn sett­ist ég fyrir framan sjón­varpið og rétt misst af dag­skrár­lokum. Desember var að ljúka og tími til að fara í hátt­inn. Enn eitt ár á enda og engu komið í verk.

Búinn að vera látinn í viku

Helgi hélt áfram að stunda námið, mála og spila og áfram barð­ist hann við maga­verk­ina sem héldu stundum fyrir honum vöku.

„Það var ekk­ert hlustað á hann þegar hann fór til læknis vegna verkja og einu sinni sagði læknir að hann ætti að reyna að fita sig af því hann væri grannur en þannig var hann. Ég sem móðir hugsa að ef hann hefði verið of feitur hefði hann átt að grenna sig. Hann sagði mér einu sinni að hann gæti þetta ekki lengur og ætti erfitt með að sofa fyrir verkjum. Þá fór ég að tala um að kannski væri þetta and­legt af því að verkir tengj­ast oft and­legri líðan. Þá leit­aði hann sér í kjöl­farið aðstoðar á geð­deild sjúkra­húss í Leipzig. Ég hafði haustið 2018 fengið þá snilld­ar­hug­mynd að öll fjöl­skyldan myndi verja jól­unum saman á Spáni en ég var komin þar með hús til að dvelja í. Ég vildi gefa öllum börn­unum mínum flug­miða til Spánar í jóla­gjöf en þau þáðu það ekki öll. Mig lang­aði svo að við værum öll saman yfir jólin. Við höfum alltaf verið mjög náin sem fjöl­skylda og flestir upp­teknir við dag­legt líf í skóla og vinnu.“

Kerfið okkar er mann­legt. Starfs­fólk á sjúkra­hús­inu spurði mig hvernig sam­fé­lagið væri eig­in­lega á Íslandi,“ segir hún og var það vegna þess að fjöl­skyld­unni var ekki til­kynnt um and­látið eftir að sjúkra­húsið lét yfir­völd hér heima vita um and­látið.

Sesselja segir að Helgi hafi sagst vera mjög upp­tek­inn og ekki geta kom­ist til Spánar. Andleg líðan hans hafði versnað og sagði hann móður sinni síðar að hann vildi ekki lifa lengur með þessa verki. Hann fór á sjúkra­hús í Leipzig í októ­ber 2018 til að reyna að leita sér aðstoðar og var lagður inn á geð­deild.

„Ég var oft í sam­bandi við hann og hélt að hann myndi koma til Spánar um jólin. Ég hugs­aði með mér að kannski tengd­ust verkirnir kvíða. Hann var stundum ekki í síma­sam­bandi þegar hann var veikur. Ég taldi að hann yrði orð­inn góður um jólin og kæmi til að vera með okkur á Spáni sem hann gerði ekki. Hann var með okkur í netheimum sem er vissu­lega ekki alveg eins og ég gerði mér ekki grein fyrir því hversu veikur hann var í raun­inni.“

Helgi var búinn að vera um tíma á geð­deild­inni þegar hann sagði móður sinni í einu sím­tal­inu að sér væri farið að líða betur.

Sesselja og eldri dóttir hennar ákváðu að heim­sækja Helga á sjúkra­húsið í Leipzig í mars. Helgi hafði ekki svarað sím­tölum í nokkra daga áður en þær komu út. Hann vissi að þær væru að koma. Síðasta sím­talið var 28. febr­úar.

„Við áttum mjög langt sím­tal og ég man ekk­ert um hvað en það var mjög gott sam­tal.“

Sesselja sagði að hún hafi fundið á sér að eitt­hvað væri að.

„Ég hugs­aði með mér að honum hafi kannski versnað en ég er sjúkra­liði, fyrir utan að vera einnig þroska­þjálfi, og í störfum mínum sem sjúkra­liði veit ég að sím­inn er stundum tek­inn af sjúk­lingum ef þeim versnar.“

Hún er spurð hvort hún hafi ekki reynt að hringja í sjúkra­húsið og spyrj­ast fyrir um hann.

„Nei, mér datt það aldrei í hug. Vinir hans fóru reglu­lega á sjúkra­húsið að heim­sækja hann og þess vegna hringdi ég ekki.“

Mér finnst vera svo dap­urt að ég hitti hann ekki aftur. Að það sé ekk­ert meira. Að líf hans sé búið. Ég get ekki trúað því. Ég skap­aði hann, gekk með hann í níu mán­uði og fæddi hann.

Mæðgurnar flugu til Berlínar 7. mars og morg­un­inn eftir fóru þær á sjúkra­húsið í Leipzig. Þær spurðu um Helga. Það varð fátt um svör. Það tal­aði eng­inn almenni­lega ensku.

„Við þurftum að bíða og skildum ekki af hverju við mættum ekki tala við Helga. Við vorum búnar að sakna hans af því að við vissum að hann væri búinn að vera veikur. Við vorum búnar að bíða lengi, örugg­lega í tvo tíma, þegar okkur var vísað upp á næstu hæð en þá var búið að finna starfs­mann sem tal­aði ensku almenni­lega. Það hefur án efa eitt­hvað ferli verið sett í gang þegar við mættum án þess að vita að Helgi væri lát­inn og þess vegna höfum við verið látnar bíða svona lengi. Okkur var þá til­kynnt að Helgi hefði tekið líf sitt á deild­inni viku áður. Læknar sögðu að Helgi hefði fengið neitun um styrk en starfs­menn sjúkra­húss­ins höfðu reynt að aðstoða hann við að fá styrk. Okkur var sagt að hann hefði orðið mjög leiður yfir því; það hefur mögu­lega fyllt mæl­inn. Hann hefur senni­lega gef­ist upp þegar hann fékk neitun um styrk. Eða vegna verkj­anna. Maður veit ekki hvað það var.“

Sesselja segir að sjúkra­húsið hafi til­kynnt íslenskum yfir­völdum um and­látið fljót­lega eftir að Helgi lést en að lög­reglu­maður á Íslandi sem tók við tölvu­póst­inum hafi gleymt að láta þau vita þannig að fjöl­skyldan fékk ekki frétt­irnar. Þess má þó geta að lög­reglan hafði sam­band vegna and­láts­ins um viku síðar – sama dag og eftir að Sesselja og dóttir hennar voru á sjúkra­hús­inu til að reyna að hitta Helga og höfðu talað þar við starfs­menn. Þegar til Íslands kom fóru Sesselja og dóttir hennar á lög­reglu­stöð­ina þar sem þær voru beðnar afsök­unar og segir hún að ferl­inu vegna svona til­kynn­inga hafi verið breytt í kjöl­farið.

Hún er spurð hvort utan­rík­is­ráðu­neytið eigi ekki að sjá um svona til­kynn­ingar.

„Jú, það var mikið um að vera í Berlín og auð­vitað eiga svona hlutir aldrei að ger­ast. Ég átti líka örugg­lega að fá aðstoð frá þeim sem ég fékk ekki. Kerfið okkar er mann­legt. Starfs­fólk á sjúkra­hús­inu spurði mig hvernig sam­fé­lagið væri eig­in­lega á Íslandi,“ segir hún og var það vegna þess að fjöl­skyld­unni var ekki til­kynnt um and­látið eftir að sjúkra­húsið lét yfir­völd hér heima vita um and­látið.

Mig lang­aði ekki til að lifa lengur

Helgi lát­inn. Spurn­ing­arnar voru margar.

„Ég spurði lækni meðal ann­ars hvort Helgi hefði verið að taka eit­ur­lyf en hann sagði svo ekki vera og var hissa að ég skyldi spyrja að þessu.“

Sesselja og dóttir hennar fóru síðan út af sjúkra­hús­inu.

„Ég man að ég labb­aði út af sjúkra­hús­inu og ég vissi ekk­ert hvað ég ætti að gera. Ég sett­ist á bekk fyrir utan og sá þá fal­leg­asta regn­boga sem ég hef nokkurn tím­ann séð fyrir framan mig. Helgi elskaði allt og alla og tal­aði aldrei illa um neinn og var góður við menn og mál­leys­ingja. Þetta var tákn­rænt.“

Sesselja fór í lík­hús og sá son sinn lát­inn.

Hún segir að hún og dóttir sín hafi þurft að sjá um allt sjálfar eftir að Helgi lést en faðir hans og bróðir flugu svo fljót­lega til Þýska­lands til að hjálpa þeim. Þau hittu vini Helga og var haldin minn­ing­ar­at­höfn þar sem fólk var að mæta allan dag­inn og var rýmið skreytt með lista­verkum eftir hann. „Hann var rosa­lega vina­margur úti og elsk­aður og var að gera rosa­lega flotta hluti í Leipzig.“

Sesselja og dóttir hennar flugu svo til Íslands nokkrum dögum síðar og faðir Helga og bróðir komu síðar. Það þótti vera best að brenna líkið og komu þeir feðgar með ösk­una í duft­keri til Íslands.

Ég teikn­aði mikið þegar mér leið mjög illa. Þetta var svo vont. Mín útrás var að teikna.

Svo var það útförin.

Sesselja man eftir hvítum blómum þennan dag.

Hvað með sálma og lög? Hún nefnir nokkur. Heyr mína bæn. „Helgi var Ellýjar-maður.“ Hótel jörð. Ó, hve létt er þitt skó­hljóð. Somewhere over the Rainbow var spilað þegar kirkju­gestir gengu út úr kirkj­unni.

„Regnbogi mun alltaf tengja mig við Helga.“

Og í erf­is­drykkj­unni gátu gestir virt fyrir sér lista­verk hans á veggjum.

Heyr mína bæn mild­asti blær

Berðu kveðju mína’ yfir höf

Syngdu honum sakn­að­ar­ljóð

Vanga hans blítt vermir þú sól

Vörum mjúkum kysstu hans brá

Ástarorð hvísla mér frá

Syngið þið fuglar, ykkar feg­ursta ljóða lag

Flytjið honum, í indælum óði, ást­ar­ljóð mitt

Heyr mína bæn bára við strönd

Blítt þú vaggar honum við barm

Þar til svefn­inn sígur á brá

Draum­heimi í, dveljum við þá

Daga langa, saman tvö ein

Heyr mínar bænir og þrá

Syngið þið fuglar, ykkar feg­ursta ljóða lag

Flytjið honum, í indælum óði, ást­ar­ljóð mitt

Heyr mína bæn bára við strönd

Blítt þú vaggar honum við barm

Þar til svefn­inn sígur á brá

Draum­heimi í, dveljum við þá

Daga langa, saman tvö ein

Heyr mínar bænir og þrár

(Ólafur Gaukur)

Áfallastreituröskun

Þessi dagur. Þessi dagur þegar Sesselja frétti að sonur hennar væri lát­inn. Búinn að vera lát­inn í viku.

„Mig lang­aði ekki til að lifa lengur. Helgi var frum­burð­ur­inn minn. Maður er ekk­ert að fara að missa barnið sitt. Það er ekki í boði að barnið manns sé að fara að deyja á undan manni. Hann var kenn­ar­inn minn. Þó ég hafi verið mamma hans þá kenndi hann mér til dæmis að skilja list­ina. Þetta var rosa­lega erfitt. Þetta var ótrú­lega erfitt. Það stopp­aði allt. Klukkan stopp­aði. Hún var ekki að ganga áfram. Ég vildi ýta á pásu. Ég vildi stoppa tím­ann. Ég vildi að það kæmi ekki annar afmæl­is­dagur. Ég gat eig­in­lega ekk­ert borðað í ábyggi­lega mánuð eftir þetta. Ég gat varla kyngt vatni. Það lok­að­ist allt. Ég fann alla lykt miklu sterkar. Allt bragð var miklu meira. Og lit­irnir voru allir miklu fal­legri. Þetta var hrika­legt áfall. Það er ekki hægt að lýsa því. Ég fór í djúpa holu. Þetta átti ekk­ert að ger­ast.

Það var hula yfir mér.

Ég fékk áfallastreituröskun. Ég fékk martraðir og var að díla við þær lengi vel á eftir. Mér fannst ein­ver ætla að drepa okkur. Dauðinn var að koma að drepa mig líka. Hann var búinn að drepa Helga minn. Það var ekk­ert líf fram undan. Ég gat ekki talað við Helga; hann var alltaf svo skemmti­legur. Hann var alltaf að skapa og gera svo skemmti­lega hluti. Það var búið. Ég svaf lítið í um ár á eftir. Og þar sem ég borð­aði eig­in­lega ekki neitt þá grennt­ist ég mikið.“

Þá ætl­aði ég að drepa mig líka og það var þá sem ég átt­aði mig á að ég þyrfti að leita mér hjálpar.

Sesselja grætur.

„Ég gat ekk­ert borðað,“ segir hún með ekka. „Helgi var far­inn og allt búið. Mér finnst hluti af mér vera far­inn. Það er eins og hluti hjart­ans sé far­inn. Mig lang­aði ekk­ert til að lifa lengur.“

Tárin renna.

„Þá ætl­aði ég að drepa mig líka og það var þá sem ég átt­aði mig á að ég þyrfti að leita mér hjálpar. Það sem bjarg­aði mér var að eitt barnið mitt kom að mér en ég veit ekki hvað það sá. Ég tók hníf en veit ekki hvað ég hefði gert ef það hefði ekki komið. Mér leið svo illa af því að ég sakn­aði Helga svo ofsa­lega. Það var eitt­hvað dáið inni í mér. Einhvern veg­inn. Fólk fer í svo djúpa holu að það er ekk­ert sár­ara í líf­inu. Eitt af börn­unum mínum sagði seinna við mig að ég gerði mér grein fyrir því hversu mörgum ætti eftir að líða illa ef ég ætl­aði ekki að halda áfram. Það reif mig upp. Ég var í djúpu laug­inni að drukkna. Ég vildi að Helgi hefði líka skilið þetta.“’

Það elsk­uðu hann svo margir.

Það að missa barn er dýpsta sorg sem fólk getur upp­lifað. Maður fer ekki dýpra.

Hún berst við grát­inn.

Hún fór til heim­il­is­læknis síns og sagði honum frá líðan sinni og segir hún að hún hafi hitt lækn­inn reglu­lega næstu mán­uði og að hann hafi hjálpað sér.

„Lækn­ir­inn hlust­aði á mig og gaf mér þann stuðn­ing sem ég þurfti.“

Hún tal­aði auk þess við for­eldra sem höfðu misst barn.

„Það er svo erfitt að skilja þessa sorg. Þessir for­eldrar studdu mig.“

Hún fór að lesa bækur um sjálfs­víg og ýmsar sjálfs­hjálp­ar­bækur.

„Ég er búin að lesa mikið um hvernig ég get hjálpað mér sem móðir til þess að verða sterk­ari. Ég átt­aði mig á sorg­ar­ferl­inu. Ég teikn­aði mikið þegar mér leið mjög illa. Þetta var svo vont. Mín útrás var að teikna.“

Sesselja var í fullu starfi sem sjúkra­liði. Lækn­ir­inn ráð­lægði henni að taka frí í vinn­unni sem hún gerði.

„Ég missti eig­in­lega minnið á þessum tíma.“

Og hún missti trúna á guð.

„Ég hef alltaf verið trúuð og beðið bæna. Í reiði­fas­anum mínum, sorg­arfas­anum mínum, var ég lengi mjög reið við guð og ég ætl­aði ekki að biðja aftur bæna. Hann gat tekið son minn; hann gerði mér þann grikk. Þar henti ég minni reiði. Ég er hins vegar búin að sætta mig við guð og er farin að biðja aftur. Og í bænum mínum þakka ég guði fyrir að geta verið reið út í hann vegna þess að ég gat beint reiði minni þangað.“

Verður að lifa með þessu

Sesselja er eins og áður sagði bæði sjúkra­liði og þroska­þjálfi og þekkir fræðin því vel. Hún nýtir sér þekk­ingu sína til að vinna í sorg­inni auk þess sem hún notar það sem læknir hennar ráð­leggur henni.

„Ég held að þroska­þjálfa­námið hafi hjálpað mér svo­lítið við að takast á við sorg­ina. Ég þekki auk þess sorg­ar­ferlið úr starfi mínu sem sjúkra­liði. Það að missa barn er dýpsta sorg sem fólk getur upp­lifað. Maður fer ekki dýpra. Ég nota núvit­und mikið; að vera ekki að kroppa í sárið. Ættingi minn fékk á sínum tíma aðstoð hjá SÁÁ og á ég mynd við­kom­andi af Æðru­leys­is­bæn­inni sem hefur líka hjálpað mér. Maður þarf að tækla sjálfs­vígs­skömm; sem á ekk­ert að vera skömm. Það að sonur minn hafi tekið eigið líf er ekki eitt­hvað sem ég á að skamm­ast mín fyrir. Þetta er sjúk­dómur. Maður veit ekki hver er að díla við þennan sjúk­dóm.“

Svo er það hræðslan; ég er svo hrædd um að missa annað barn. Ég gæti það ekki. Maður þarf að styrkja sig hvað þá hræðslu varðar.

Hún á við þung­lyndi. Sjúk­dóm­inn sem Helgi var með en sem hann sýndi ekki; hann virt­ist vera glaður og hress.

„Svo er það hræðslan; ég er svo hrædd um að missa annað barn. Ég gæti það ekki. Maður þarf að styrkja sig hvað þá hræðslu varðar. Ég verð líka að passa að hugsa ekki á nei­kvæðan hátt. Sjá frekar hið góða og vera ekki að kroppa í sárið. Vera ekki að grafa í leið­ind­unum. Þessi æðru­leys­is­bæn hjálp­aði mér mikið í því. Svo er þetta ekk­ert mér að kenna; ég átta mig alveg á því. Það er frá­bær prestur sem gaf mér góða punkta – kannski hélt ég Helga lengur lif­andi af því að ég studdi hann fjár­hags­lega í list­inni. Ég gaf honum kannski færi á að vera lista­maður svona lengi. Peningar skiptu máli. Hann þurfti stuðn­ing.“

Ég gat eig­in­lega ekk­ert borðað í ábyggi­lega mánuð eftir þetta. Ég gat varla kyngt vatni. Það lok­að­ist allt. Ég fann alla lykt miklu sterkar. Allt bragð var miklu meira. Og lit­irnir voru allir miklu fal­legri. Þetta var hrika­legt áfall. Það er ekki hægt að lýsa því. Ég fór í djúpa holu. Þetta átti ekk­ert að ger­ast.

Hún seg­ist vera orðin sterk­ari.

„Staðan í sorg­ar­ferl­inu núna er að ég geri mér grein fyrir að ég get ekki breytt þessu. Ég þarf að hugsa um börnin mín sem eru nátt­úr­lega frá­bær.“ Svo á hún tvö barna­börn. „Ég sakna Helga samt enda­laust. Ég þarf að lifa með sorg­inni og ég þarf að lifa með þessu eins og hann sé ennþá mitt barn. Hann er það og verður það. Ég er ennþá með hann í hjart­anu og ég má alveg tala um hann eins og ég tala um hin börnin.“

Hreyfing er góð fyrir lík­ama og sál og það veit Sesselja.

„Ég kenndi lík­ams­rækt í mörg ár og ég hleyp mikið og lyfti. Mér finnst vera gott að vera úti í nátt­úr­unni. Ég fæ styrk úr nátt­úr­unni.“

Það var eitt­hvað dáið inni í mér. Einhvern veg­inn. Fólk fer í svo djúpa holu að það er ekk­ert sár­ara í líf­inu.

Hún nefnir núvit­und.

„Maður verður að vera hér og nú. Það hjálpar mér. Það má hugsa um góðu hlut­ina í for­tíð­inni en það á kannski ekki að hugsa um erf­iðu hlut­ina. Ef ég ætla að hugsa um for­tíð­ina þá á ég ekki að hugsa um þung­lyndið heldur um hið jákvæða. Og sjálfs­stjórnin verður að vera til staðar. Þegar ég hugsa um fram­tíð­ina þá verð ég að hugsa um hana á annan hátt en ég gerði. Einhvern veg­inn verð ég að lifa með þessu. Ég ætla að lifa með þessu. Ég geri það. Mun gera það. Og mér finnst ég vera sterk­ari. Ég hef alltaf trúað að það sé líf eftir dauð­ann. Ég tala við Helga. Ég man eftir rödd­inni hans. Ég syng stundum innra með mér lög sem hann elskaði. Og þá finnst mér hann vera í kringum mig. Mér finnst vera svo dap­urt að ég hitti hann ekki aftur. Að það sé ekk­ert meira. Að líf hans sé búið. Ég get ekki trúað því. Ég skap­aði hann, gekk með hann í níu mán­uði og fæddi hann.“

Ég þarf að lifa með sorg­inni og ég þarf að lifa með þessu eins og hann sé ennþá mitt barn. Hann er það og verður það. Ég er ennþá með hann í hjart­anu og ég má alveg tala um hann eins og ég tala um hin börnin.

Sesselja seg­ist oft hugsa til þess að Helgi megi ekki gleym­ast.

Minning hans lifir.

Somewhere over the rainbow way up high

There’s a land that I heard of once in a lullaby

Somewhere over the rainbow skies are blue

And the dreams that you dare to dream really do come true

Someday I wish upon a star

And wake up where the clouds are far behind me

Where troubles smelled like lemon drops

Way above the chimney tops

That’s where you’ll find me

Somewhere over the rainbow blue birds fly

Birds fly over the rainbow

Why then, oh why can’t I

Somewhere over the rainbow blue birds fly

Birds fly over the rainbow

Why then, oh why can’t I

If happy little blue birds fly beyong the rainbow

Why, oh why can’t I

(Harold Arlen / E. Y. Harburg)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætluðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfsmenn“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætl­uðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfs­menn“

„Við vorum búnir að pæla í því í ein­hvern tíma hvernig hægt væri að koma með eitt­hvað nýtt inn á mat­vöru­mark­að­inn og við lágum yfir þessu á eld­hús­borð­inu. Pabbi hafði verið með snefil af ódýrum vörum í Aust­ur­veri; það var svona „afslátt­ar­þurr­vöru­mark­aður“ og við lögðum upp með þennan ein­fald­leika,“ segir Jón Ásgeir um það hvernig Bónus varð til en rætt...
Aníta Briem: „Krakkarnir, voru að fela sig í runnunum þegar hann kom og sótti mig“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Aníta Briem: „Krakk­arnir, voru að fela sig í runn­unum þegar hann kom og sótti mig“

„Ég var svo ótrú­lega heppin að ég fékk að spreyta mig svo­lítið í Þjóð­leik­hús­inu frá því að ég var níu ára gömul. Þá var ég fyrst í Emil í Katt­holti og lék þar Idu og var svo alveg í fjórum leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu, þannig að ég var ótrú­lega lánsöm að ég ein­hvern veg­inn fékk svo­lítið að kanna hvað leik­listin væri...
Tony var sakaður um mansal: „Íslendingar tóku mjög vel á móti mér, en ríkisstjórnin ekki“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Tony var sak­aður um man­sal: „Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki“

„Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki,“ segir Tony Omos í við­tali í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Tony Omos er nafn sem flestir Íslend­ingar kann­ast við. Tony er níger­íski hæl­is­leit­and­inn sem felldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur úr stóli dóms­mála­ráð­herra árið 2014 vegna „Leka­máls­ins“ svo­kall­aða. Málið hafði gríð­ar­leg áhrif á Tony Omos og hans fjöl­skyldu enda var hann sak­laus sak­aður...
Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Ragnar Erling Her­manns­son vill millj­arð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og...
Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margréti Esther mis­þyrmt með hesta­svipum og nagla­spýtum: „Skóla­systir mín var stungin 18 sinnum“

Margrét Esther Erlu­dóttir fata­hönn­uður átti erf­iða æsku. Óregla var á heim­ilnu og frá unga aldri flakk­aði hún á milli fóst­ur­heim­ila. Hún segir að á einu þeirra, sveitabæ norður í landi, hafi tveir nauðgað sér auk þess sem hún hafi meðal ann­ars verið barin. „Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í...
Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Hanna Rún lam­að­ist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Það breytti öllu að verða móðir.“ Og parið dans­aði saman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu