„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fréttamenn standa þétt við bak Helga Seljan – Fordæma nýtt áróðursmyndband Samherja

Fréttamenn standa þétt við bak Helga Seljan – Fordæma nýtt áróðursmyndband Samherja
Helgi Seljan blaða­maður.

„Félagar í Félagi frétta­manna og starfs­menn frétta­stofu RÚV í öðrum félögum harma nýjasta áróð­urs­mynd­band útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Samherja þar sem enn eina ferð­ina er ráð­ist per­sónu­lega að Helga Seljan frétta­manni,“ segir í yfir­lýs­ingu félags frétta­manna og starfs­mönnum frétta­stofu RÚV.

Frétta­menn RÚV lýsa yfir ein­dregnum stuðn­ingi við Helga í þess­ari ófræg­ing­ar­her­ferð Samherja á hendur honum sem er for­dæma­laus í sögu fjöl­miðl­unar á Íslandi.

„Samherji hefur und­an­farin miss­eri valið þá leið að veit­ast að blaða- og frétta­mönnum frekar en að svara efn­is­lega spurn­ingum um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins og ásak­anir um lög­brot. Þetta hefur fyr­ir­tækið meðal ann­ars gert með fjar­stæðu­kenndum dylgjum í færslum á vef sínum og með því að borga fyrir dreif­ingu áróð­urs­mynd­banda þar sem gróf­lega er vegið að fjöl­miðlum, einkum og sér í lagi að frétta­mann­inum Helga Seljan.

Starf­semi Samherja er til rann­sóknar hjá þar til bærum yfir­völdum hér­lendis og erlendis. Það hefur meðal ann­ars leitt til þess að hér­lendis hafa menn fengið rétt­ar­stöðu grun­aðra og erlendis sæta menn sak­sókn og gæslu­varð­haldi. Í stað þess að svara efn­is­lega reynir Samherji að láta málið hverf­ast um per­sónu Helga. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um hversu frá­leitt það er.

Ákvæði í siða­reglum RÚV sem siða­nefnd byggði úrskurð sinn á var fært í letur til að fanga þann anda sem ríkir á frétta­stofu RÚV um að frétta­menn taki ekki afstöðu á opin­berum vett­vangi í umdeildum málum. Það er hins vegar mik­il­vægt að geta borið hönd fyrir höfuð sér og haldið réttu til haga þegar stór­fyr­ir­tæki heldur ítrekað fram ósann­indum með skipu­lögðum hætti.“

Starfs­menn RÚV segja að hér sé um ofbeldi og skipu­lega aðförð Samherja að ræða í garð frétta­manna og ábyrgs frétta­flutn­ings. Þeir benda á að Ísland lækk­aði milli ára á lista sam­tak­anna Frétta­menn án landamæra þar sem fjöl­miðla­frelsi er kannað. „Í umsögn sam­tak­anna um fjöl­miðla­frelsi á Íslandi var meðal ann­ars minnst á her­ferð Samherja til að reyna að gera tor­tryggi­lega þá frétta­menn sem unnið hafa að umfjöllun um mál­efni fyr­ir­tæk­is­ins.“

Nýjasta útspil Samherja gegn Helga má sjá hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins