„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Seðlabankastjóri vill lög til að verjast Samherjamönnum – Hundelt persónulega

Seðlabankastjóri vill lög til að verjast Samherjamönnum – Hundelt persónulega
Þor­steinn Már Bald­vins­son. Mynd / Kjarninn

„Ég skil bara ekki hvern and­skot­ann þessi lög­reglu­stjóri þarf að rann­saka og  af hverju þessu er ekki bara vísað frá. Ég ótt­ast það að mörgu leyti, í svona eft­ir­lits­stofnun eins og Seðla­bank­inn er, að við lendum í því að við verðum hund­elt per­sónu­lega eins og farið var á eftir þessu starfs­fólki,“ segir Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri í við­tali við Stundina sem birt er í blað­inu í dag.

Ásgeir vísar þarna til þess að Samherji kærði fimm af starfs­mönnum Seðla­bank­ans til lög­reglu vegna rann­sóknar bank­ans á Seðla­banka­máli Samherja sem snérist um brot á gjald­eyr­is­lögum og hófst með hús­leit árið 2012. Málið féll á end­anum vegna þess að ráð­herra láð­ist að und­ir­rita reglu­gerð sem tryggði Seðla­bank­anum vald­heim­ildir við rann­sóknir mála.

Auk þess að elta uppi emb­ætt­is­menn Seðla­bank­ans þá veitt­ist Baldvin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más og einn lyk­il­manna Samherja, að Má Guð­munds­syni þáver­andi seðla­banka­stjóra á opin­berum vett­vangi með ógn­andi fram­komu og hrak­yrðum. Þing­mað­ur­inn Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé gekk á milli.

Helgi Seljan frétta­maður er einn þeirra sem mátt hefur þola ein­elti Samherja og liðs­manna félags­ins. Jón Óttar Ólafsson. einka­spæj­ari félags­ins, sat fyrir Helga á kaffi­húsi auk þess að senda honum nafn­laus ógn­andi SMS-skila­boð. Jón Óttar neydd­ist til að biðj­ast afsök­unar á aðför sinni þegar flett var ofan af honum sem elti­hrelli. Jón Óttar hefur unnið náið með Þor­steini Má og í umboði hans. Þá hefur Samherji notað heima­síðu félags­ins til árása á Helga og starfs­fé­laga hans hjá Rík­is­út­varp­inu. Einnig hefur verið veist að blaða­mönnum Stund­ar­innar sem hafa fjallað ítar­lega um mútu­mál Samherja í Namibíu. Var blaða­mönnum líkt við und­ir­heima­lýð af meintum brota­mönnum.

Fram­sal­skrafa hefur verið gerð á for­svars­menn Samherja svo þeir svari til saka í Namibíu. Ekki er í gildi fram­sals­samn­ingur milli þjóð­anna tveggja og hinir grun­uðu sleppa því við að mæta þar fyrir dóm. Engin vonu er talin vera til þess að þeir hafi kjark eða vilja til að mæta af fúsum og frjálsum vilja. Sá mögu­leiki hefur verið nefndur að gerður verði samn­ingur um fram­sal á milli Íslands og Namibíu.

Íarlegt við­tal er við seðla­banka­stjóra í prentút­gáfu Stund­ar­innar sem kom út í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins