„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Hættu´að telja, þetta´er ég!“

Ég er frekar nægju­söm og hef kinn­roða­laust sætt mig við eina full­næg­ingu þegar ég stunda kyn­líf með öðrum því ein er jú betri en engin og allt það. Undur og stór­merki gerð­ust hins vegar um dag­inn þegar þær urðu fleiri en ein. Enginn annar en ég hafði náð að veita mér full­næg­ingu oftar en einu sinni í röð svo þú getur rétt ímyndað þér ham­ingju mína þegar toppnum var náð í fyrsta skipti, annað skipti og það þriðja!

Þegar ég ræddi þetta við vin­konur mínar á kok­teila­kvöldi sem við héldum nýlega, hver fyrir framan sinn tölvu­skjá, (ekki annað í boði á þessum tíma heims­far­ald­urs), varð ég ekk­ert hissa þegar þær sögð­ust aldrei hafa fengið fleiri en eina full­næg­ingu í kyn­lífi með mönn­unum sínum. Ef þær voru yfir höfuð svo heppnar að ná einni. Karlar hafa þann eig­in­leika fram yfir okkur að eiga frekar auð­velt með að fá það í kyn­mökum og jafn­vel án lít­illar fyr­ir­hafnar. Við þurfum margar, kannski flestar, að hafa aðeins meira fyrir því en þeir en svo leggja sumar konur ekk­ert upp úr því að fá full­næg­ingu í kyn­mökum og finnst nándin ein og sér nóg. „Ég hef ekki alltaf náð að fá full­næg­ingu en samt verið full­nægð,“ sagði til dæmis ein vin­kona mín á kok­teila­kvöld­inu áður­nefnda.

Í bók­inni The Multi-Orgasmic Woman segir höf­und­ur­inn og lækn­ir­inn Rachel Carlton Abrams að með­al­kona geti fengið það mörgum sinnum. Konur þurfi ekki hvíld­ar­tíma á milli full­næg­inga eins og karlar, svo þær geti haldið kyn­ferð­is­legri örvun lengur og náð full­næg­ingu aftur án lít­illar fyr­ir­hafnar.

Dr. Jessica O’Reilly segir í bók sinni The New Sex Bible að þótt hægt sé að ná fleiri en einni full­næg­ingu í einni atrennu sé það ekk­ert endi­lega betra en að ná einni. Hún segir að þótt rann­sóknir hafi sýnt að um 43% kvenna hafi upp­lifað rað­full­næg­ingar sé hlut­fall þeirra kvenna sem geti fengið þær hærra, þær vilji það bara ekk­ert endi­lega. Þannig að engin kona þarf að örvænta þótt hún hafi ekki náð fleiri en einni full­næg­ingu í röð. Hins vegar er ýmis­legt hægt að gera til að auka lík­urnar á því, langi mann (eða í þessu til­felli konu) að láta á það reyna.

Gott er að byrja ein með sjálfri þér.
Gald­ur­inn er að hætta ekki heldur halda örvun­inni gang­andi. Ef þú finnur að svæðið er orðið við­kvæmt fyrir snert­ingu skaltu bíða í u.þ.b. 10 sek­úndur og byrja svo aftur.
Vertu opin fyrir því sem er í gangi.
Tengdu saman huga og lík­ama. Ef þú hefur litlar vænt­ingar um að fá full­næg­ingu þá getur það haft áhrif á það hvernig lík­am­inn svarar nautn­inni. Í stuttu máli sagt: Ef þú gerir ekki ráð fyrir því að fá fleiri en eina full­næg­ingu í kyn­mök­unum … þá verður ein allt og sumt.
Styrktu grind­ar­botn­inn.
Rann­sóknir hafa sýnt að vel þjálfaðir grind­ar­botns­vöðvar auka á unað í kyn­lífi. Með því að spenna og styrkja vöðvana eykst blóð­flæði á svæð­inu en gott blóð­flæði er einn grunn­þáttur kyn­lífs­nautnar og full­næg­ing­ar­stjórn.Til­finn­ingin við að gera grind­ar­botns­æf­ingar er eins og að hætta að pissa í miðjum klíðum, spenna og sleppa.
Ekki van­meta for­leik­inn.
Munnmök eru málið að því er dr. Rachel Carlton Abrams segir í bók sinni The Multi-Orgasmic Woman. Hún segir að fyrir flestar konur sé auð­veld­ast að fá full­næg­ingu þegar sníp­ur­inn sé örv­aður með munn­mökum og það að fá full­næg­ingu fyrir sam­farir auð­veldi þeim að fá aðra full­næg­ingu í sam­för­unum því lík­am­inn svari þá betur örvun­inni í leggöng­unum.
Ekki stoppa.
Mundu að lyk­ill­inn að því að fá fleiri full­næg­ingar en eina í einu er að stoppa ekki.

Full­næg­ing skv. Íslensku alfræði­orða­bók­inni:
„Hámark kyn­maka eða sjálfs­fró­unar; ein­kenn­ist af sterkri vellíð­un­ar­kennd og auknum blóð­þrýst­ingi og hjartslætti; skap­ast hjá karl­manni einkum við örvun getn­að­ar­lims og leiðir oft­ast til sáð­láts, og hjá konum einkum við örvun sníps. Hjá báðum kynjum fylgir slökun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynlíf

Samfélagsmiðlaherferð gegn kynsjúkdómum – Lekandasmit á Íslandi ekki fleiri í 30 ár
Innlent

Sam­fé­lags­miðla­her­ferð gegn kyn­sjúk­dómum – Lek­anda­smit á Íslandi ekki fleiri í 30 ár

Ástráður – kyn­fræðslu­fé­lag lækna­nema hófu sam­fé­lags­miðla­her­ferð um kyn­sjúk­dóma í dag, í sam­starfi við Sótt­varn­ar­svið Embættis land­læknis. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu frá Ástráði – kyn­fræðslu­fé­lagi lækna­nema, er helsta mark­mið félags­ins með sam­fé­lags­miðla­her­ferð­inni, sem ber nafnið Trúnó með Ástráði, vera þá að vekja athygli á fjölgun lek­anda­smita í sam­fé­lag­inu og ná tökum á útbreiðslu þeirra. Sjötíu pró­sent auk­ing varð á slíkum smitum milli áranna...
Dóttir Heidi Klum fann kynlífstæki móður sinnar: „Mér fannst þetta það svalasta sem ég hafði séð“
Menning

Dóttir Heidi Klum fann kyn­lífstæki móður sinnar: „Mér fannst þetta það svalasta sem ég hafði séð“

Eldri dóttir Heidi Klum fann kyn­lífstækja­skúffu mömmu sinnar og sýndi vinum sínum. Ofur­fyr­ir­sætan Heidi Klum við­ur­kenndi í við­tali nýlega að eldri dóttir hennar, Leni Klum, sem hún á með fyrr­ver­andi eig­in­manni sínum, söngv­ar­anum Seal, hafi eitt sinn fundið kyn­lífstækja­safn hennar, fyrir til­viljun, eða eins og Heidi orðar það: „Hún fann kyn­lífs­skáp­inn minn.“ Þrátt fyrir að atvikið hafi átt sér stað...
Britney lýsir kynlífi hennar og Farrell við „götubardaga“: „Slagsmál er eina orðið yfir þetta“
Menning

Britney lýsir kyn­lífi hennar og Farrell við „götu­bar­daga“: „Slagsmál er eina orðið yfir þetta“

Britney Spears líkir kyn­lífi sínu með Colin Farrell við „götu­bar­daga“, í nýrri ævi­sögu, sem beðið er með óþreyju en bókin heitir The Woman in Me. Hin 41 ára poppprinsessa, átti tveggja vikna ást­ar­æv­in­týri með írska stór­leik­ar­anum Colin Farrell árið 2003, stuttu eftir að hún hætti með Justin Tim­berlake. Britney hitti Colin í gegnum vin sinn en hún sagði að þau...
„Tantrafræðin lýsa kynlífi sem einni af grunnþörfum mannsins“
Innlentkynlíf

„Tantra­fræðin lýsa kyn­lífi sem einni af grunn­þörfum manns­ins“

„Kynorkan knýr okkur áfram, ýtir undir lang­anir og gerir okkur for­vitin um heim­inn. Kynorkan kveikir í okkur og fær okkur til að upp­götva nýjar hliðar á til­ver­unni, sér­stak­lega ef þær lofa nautn og vellíðan. Ef þessi orka er í ójafn­vægi getur það fram­kallað allskyns fíkn, lang­anir eða sjúk­dóma sem geta dregið okkur til dauða.“ Blaða­maður Mannlífs ræddi við Serafim Arnar...
Hvað myndi breytast hjá þér ef þú hlustaðir á hvað kynhvötin þín hefur raunverulega að segja?
Innlentkynlíf

Hvað myndi breyt­ast hjá þér ef þú hlust­aðir á hvað kyn­hvötin þín hefur raun­veru­lega að segja?

„Ég ákvað að rann­saka and­lega hlið kyn­lífs svo ég gæti kafað dýpra ofan þessa unaðstengdu kennslu,“ segir Birna M. Gustafs­son, kyn­fræð­ingur hjá Losta, í sam­tali við Mannlíf. Birna fer yfir ýmiss konar tækni tengda kyn­lífi, en segir að lyk­il­at­riðið sé að njóta sín. „Það getur verið erfitt að ein­beita sér að unaði þegar hug­ur­inn vill vera ann­ars staðar – stundum...
Sigga Dögg telur ýmislegt vanta upp á umræðu um BDSM: „Masterclass í valdadýnamík“
Innlent

Sigga Dögg telur ýmis­legt vanta upp á umræðu um BDSM: „Masterclass í valda­dýnamík“

Sigríður Dögg Arn­ar­dóttir kyn­fræð­ingur, eða Sigga Dögg eins og hún er alltaf kölluð, var í ein­lægu og opin­skáu helg­ar­við­tali Mannlífs um liðna helgi. Sigga Dögg hefur verið í þunga­miðj­unni á heitri og oft óvæg­inni sam­fé­lags­um­ræðu und­an­farið. Í við­tal­inu fer hún um víðan völl; ræðir þeyti­vindu sam­fé­lags­miðla, berg­máls­hella og fræðir blaða­mann um hluti tengda kyn­fræðslu, BDSM og það hvernig hún nálg­ast...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu